Fréttablaðið - 01.04.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
61,26 61,56
115,20 115,76
79,27 79,71
10,64 10,70
9,69 9,75
8,67 8,72
0,57 0,57
92,37 2,93
GENGI GJALDMIÐLA 31.03.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
109,22 -0,21%
4 1. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Íslendingurinn og skákmeistarinn Bobby Fischer teflir á ný:
Fischer býður þjóðinni í skák
SKÁK Skákmeistarinn Bobby
Fischer ætlar að þakka íslensku
þjóðinni stuðninginn við sig með
því að bjóða landsmönnum í
fjöltefli í Vetrargarðinum í
Smáralind í dag. Verður það í
fyrsta sinn í þrettán ár sem
Fischer teflir hefðbundna skák á
opinberum vettvangi en síðast
gerðist það í einvíginu fræga við
Spasskí í Júgóslavíu árið 1992.
Sem kunnugt er hefur Fischer
þróað eigin tegund skákar og í
raun snúið baki við hefðbundinni
skák. Hann tefldi þó við samfanga
sína í fangelsinu í Japan og kann
enn réttu tökin á taflmönnunum.
Sæmundur Pálsson, vinur
Fischers, segir
gott að hann vilji
tefla fjöltefli við
Íslendinga og
fagnar því sér-
staklega að hann
vilji tefla hefð-
bundna skák.
„Mér finnst þetta
mjög gott hjá hon-
um og held að
margir hljóti að taka þátt. Skákin
er í miklum blóma á Íslandi, sér-
staklega fyrir tilstuðlan Hrafns
Jökulssonar sem hefur unnið
ómetanlegt starf fyrir
skákina,“ segir Sæmundur.
Fjölteflið fer fram í Vetrar-
garðinum í Smáralind í dag og
hefst klukkan tólf á hádegi. Allir
eru velkomnir. - bþs
Starfsmenn deila enn
hart á útvarpsstjóra
Nýráðinn fréttastjóri Útvarps er umboðslaus að mati nær 200 starfsmanna Ríkisútvarpsins sem funduðu
um komu nýs fréttastjóra. Þar var vantraust samþykkt í þriðja sinn á skömmum tíma á útvarpsstjóra.
RÍKISÚTVARPIÐ Tæplega 200 starfs-
menn Ríkisútvarpsins samþykktu á
fundi í gær vantraust á Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóra. Starfs-
mennirnir segja að Markús Örn
hafi, ásamt útvarpsráði, tínt til
„falsrök, ýkjur og skrök“ til að
varpa ryki í augu almennings vegna
ráðningar Auðuns Georgs Ólafs-
sonar í starf fréttastjóra Útvarps.
Þetta er þriðja vantrauststil-
lagan sem samþykkt er á útvarps-
stjóra vegna málsins, en að hinum
tveimur fyrri stóðu fréttamenn Rík-
isútvarpsins. Í samþykkt þeirri sem
starfsmenn RÚV sendu frá sér eftir
fundinn í gær segir að þeir harmi að
útvarpsstjóri skuli virða að vettugi
ítrekaðar áskoranir fréttamanna og
yfirgnæfandi meirihluta annarra
starfsmanna RÚV að endurskoða
ákvörðun um ráðningu Auðuns
Georgs. Með því sýni útvarpsstjóri
öllum starfsmönnum stofnunarinn-
ar og því starfi sem þeir vinna van-
virðingu. Fundurinn lýsir van-
trausti á útvarpsstjóra vegna fram-
göngu hans í þessu máli sem hljóti
að vekja spurningar um hvort hann
hafi í raun hagsmuni RÚV að leiðar-
ljósi.
Við ráðningu Auðuns Georgs
hafi útvarpsráð og útvarpsstjóri
vikið til hliðar öllum faglegum
sjónarmiðum. Falsrök, ýkjur og
skrök hafi verið tínd til í þeim
tilgangi að kasta ryki í augu al-
mennings.
„Í þessu ljósi telja starfsmenn
Ríkisútvarpsins að nýráðinn frétta-
stjóri sé umboðslaus til þess að
gegna því starfi og líta á ráðningu
hans, sem hvert annað aprílgabb,“
segir í samþykktinni. „Mæti hann til
starfa í Ríkisútvarpinu verði það á
ábyrgð útvarpsstjóra eins. Hann
einn réð hann og hann einn er þess
umkominn að koma í veg fyrir að
frekara tjón hljótist af.“
Fundurinn lýsti fullum stuðningi
við áframhaldandi baráttu frétta-
manna fyrir sjálfstæði fréttastofa
útvarps og sjónvarps.
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri vildi ekki tjá sig um viðbrögð
við ályktuninni þegar eftir því var
leitað í gær.
jss@frettabladid.is
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Tveggja ára
dómur
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær mann til
tveggja ára fangelsisvistar fyrir
margvísleg afbrot, þar á meðal
líkamsmeiðingar, þjófnað, fíkni-
efnamisferli og umferðarlaga-
brot.
Er um síbrotamann að ræða
sem hefur hlotið alls 23 dóma
fyrir margvísleg afbrot síðustu
fjórtán árin og þóttu brot hans
nú afar ófyrirleitin og sýna ein-
beittan brotavilja.
Var hann ennfremur dæmdur
til greiðslu miskabóta að upphæð
300 þúsund og missi ökuleyfis
ævilangt. ■
TERRI SCHIAVO FYRIR ÁFALLIÐ
Michael Schiavo var einn með konu sinni á
dánarstundinni en nokkrum mínútum áður
hafði hann rekið foreldra hennar á dyr.
Terri Schiavo:
Hefur kvatt
þennan heim
BANDARÍKIN Terri Schiavo andaðist í
gærmorgun á hjúkrunarheimilinu í
Pinellas Park í Flórída. Þar með
lýkur sjö ára löngu stríði um örlög
hennar sem foreldrar hennar og
eiginmaður háðu. Deilurnar náðu
hámarki þegar Bandaríkjaforseti
blandaði sér í málið.
Terri Schiavo var 41 árs en 1990
skaðaðist hún alvarlega á heila.
Síðustu þrettán sólarhringana var
hún án næringar.
Foreldrar hennar voru að vonum
miður sín og sagði lögmaður þeirra
að þau væru afar döpur yfir að hafa
ekki fengið að vera hjá dóttur sinni
á dánarstundinni. ■
SUNDURHLUTAÐ LÍK Í STOKK-
HÓLMI Vegfarendur fundu líkams-
parta í ruslapoka sem komið hafði
verið fyrir undir brú í Stokkhólmi.
Að sögn Aftonbladet vantaði
nokkra líkamshluta í pokann til að
hægt væri að bera kennsl á líkið.
Sænska lögreglan rannsakar málið
sem morð.
SVÍAR Á NIAS-EYJU KOMA Í LEIT-
IRNAR Tveir Svíar sem saknað var
eftir jarðskjálftann við Indónesíu á
sunnudaginn eru komnir í leitirnar.
Þeir höfðu farið til Nias-eyju til
brimbrettaiðkunar og var talið að
þeir hefðu farist í hamförunum.
Þeir eru hins vegar við hestaheilsu.
■ SVÍÞJÓÐ
NÝRÁÐINN FRÉTTASTJÓRI Í HEIMSÓKN
Auðun Georg Ólafsson kom við í Útvarpshúsinu í gær og kastaði kveðju á fólk.
ATKVÆÐATALNING
Jóhanna Margrét Einarsdóttir og G. Pétur Matthíasson, fréttamenn á Ríkissjónvarpinu,
með atkvæðaseðla starfsmanna. 178 samþykktu harðorða ályktun, 12 sögðu nei og einn
skilaði auðu.
SÆMUNDUR
PÁLSSON
BOBBY FISCHER
Ætlar að þakka íslensku þjóðinni stuðning-
inn við sig með því að bjóða landsmönn-
um í fjöltefli í Vetrargarðinum.