Fréttablaðið - 01.04.2005, Side 39

Fréttablaðið - 01.04.2005, Side 39
FÖSTUDAGUR 1. apríl 2005 27 Banki allra landsmanna 410 4000 | landsbanki.is Eyddu í sparnað og fermingargreiðslan vex jafnt og þétt í framtíðinni. Framtíðargrunnur Landsbankans er góður kostur til fermingargjafa. • Hæstu vextir sparireikninga Landsbankans • Bundinn til 18 ára • Verðtryggður Fermingargreiðsla sem vex iBook Þau fermingarbörn sem leggja ferm ingarpeningana inn á Fram tíðargrunn Landsbankans lenda sjálfkrafa í lukkupotti þar se m hæ gt e r a ð v inn a gl æ si le ga 1 2” iB oo k fa rt öl vu e ða f jö ld a af g læ ný ju m iP od Sh uff le m p3 s pilurum. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 77 98 03 /2 00 5 Vin Diesel skiptir um bleiur Hasarmyndahetjan Vin Diesel sýnir á sér nýja hlið í kvikmynd- inni The Pacifier sem er frum- sýnd í dag. Myndin segir frá sérsveitarmanninum Shane Wolfe sem fenginn er til þess að leiða björgunarhóp sem á að frelsa vísindamanninn Howard Plummer úr höndum bosnískra hryðjuverkamanna. Einhver brögð eru þó í tafli og Plummer er drepinn og Wolfe særist. Þegar hann nær sér ákveður hann að taka að sér að vernda fimm börn Plummer-fjölskyld- unnar fyrir glæpamönnum sem vilja komast yfir uppgötvun Plummers. Wolfe þarf því að takast á við ný vandamál á borð við það að kenna á bíl og skipta um bleiur auk þess sem hann berst við hættulega hryðju- verkamenn. Vin Diesel er ef til vill best þekktur sem harðjaxl úr mynd- um á borð við „XXX“ og „The Fast and the Furious“. Hann er þó ekki að fara ótroðnar slóðir því sællar minningar lék Arnold Schwarzenegger fyrir fimmtán árum rannsóknarlögreglumann- inn John Kimble í kvikmyndinni Kindergarten Cop en sú mynd naut mikilla vinsælda. Sjálfur segist Vin Diesel hafa notið þess að leika á móti börn- unum. „Ég var í góðu skapi allan þann tíma sem tökur fóru fram enda fékk ég að leika mér í tölvuleikjum, elta krakka og henda smábörnum upp í loftið.“ Hann segir að erfiðara hafi verið að ná sambandi við öndina sem leikur stórt hlutverk í myndinni. „ Sem betur fer vorum við með góða andarþjálf- ara,“ segir harðjaxlinn sem þykir sýna á sér nýja og mýkri hlið í myndinni. Meðal annarra leikenda í myndinni má nefna Brad Garret sem er betur þekktur sem Robert úr Everybody Loves Raymond og Brittany Snow sem er að verða ein skærasta ung- lingastjarna Bandaríkjanna. ■ VIN DIESEL Þykir sýna á sér skemmtilega og nýja hlið í kvikmyndinni The Pacifier. Pitt og Jolie saman? Það eru ekki liðnar margar vikur síðan Jennifer Aniston sótti um lög- skilnað frá Brad Pitt. Flestir héldu að Pitt myndi taka sér góðan tíma til þess að komast yfir skilnaðinn, enda reyndu þau að bjarga hjónabandinu. Nú virðist sem Pitt hafi ekki verið með allan hugann við Aniston held- ur mótleikkonu sína, Angelinu Jolie. Á meðan skilnaður Aniston og Pitt var á forsíðum slúðurblaðanna kepptust þau við að bendla leikkon- una Jolie við Pitt og sögðu hana ástæðuna fyrir s k i l n a ð i n u m . Pitt og Jolie voru þá að leika saman í kvik- myndinni Mr. and Mrs.Smith og bárust fregn- ir af djörfum samtölum þeirra á milli í síma. Var þetta sagt hafa ollið því að Aniston ákvað að slíta samband- inu. Nú hafa Jolie og Pitt gefið þessum sögu- sögnum byr und- ir báða vængi því þegar þau mættu til þess að láta taka kynningamyndir af sér fyrir Mr. and Mrs.Smith skráðu þau sig inn á svítu Meridien hótelsins sem hjón undir nöfnunum Bryce og Jasmine Pilaf. Þessu hefur reyndar verið tekið með fyrirvara, því svítan er útbúin mörgum herbergjum og halda ein- hverjir því fram að þetta sé ein- göngu hluti af kynningarherferð myndarinnar. The Pacifier Internet Movie Database 5/10 Rottentomatoes.com 18% = Rotin Metacritic 31/100 The Life and Death of Peter Sellers Internet Movie Database – 6,6/10 rottentomatoes.com – 70% = Fersk Danny the Dog Internet Movie Database – 6,9 / 10 FRUMSÝNDAR UM HELGINA (DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) ANGELINA JOLIE Er sögð hafa deilt svítu um með Brad Pitt páskana og gefið þannig sögusögnum um að þau væru meira en vinir byr undir báða vængi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.