Fréttablaðið - 01.04.2005, Side 18
Actavis stefnir að frekari
sókn á Bandaríkin.
Skráning í London er á
dagskrá ársins í ár.
Síðasta rekstrarár var eitt það
besta í sögu Actavis Group. Fé-
lagið jók veltu sína um 47 prósent
milli ára og hagnað um 51 prósent.
Félagið er nú komið í hóp tíu
stærstu lyfjafyrirtækja heims
hvað markaðsvirði varðar.
Fjárfestar hafa beðið spenntir
eftir skráningu Actavis á erlend-
an markað en Kauphöllin í London
hefur verið nefnd sérstaklega til
sögunnar. Í máli Björgólfs Thors
Björgólfssonar, stjórnarformanns
Actavis, kom fram að undirbún-
ingur að skráningu félagsins er-
lendis væri langt á veg kominn en
ekki hefði verið ákveðið með dag-
setningu. Róbert Wessman, for-
stjóri félagsins, sagði að enn væri
stefnt á skráningu á þessu ári.
Actavis hefur beint spjótum
sínum að Bandaríkjamarkaði og
ætlar sér að vaxa þar með kaup-
um og yfirtökum. Samhliða þessu
ætlar félagið að fjárfesta á Ind-
landi en þar er þróunarkostnaður
mun lægri en annars staðar.
- eþa
Skamm Birgir
Greiningardeild Landsbankans beindi spjótum
sínum að Birgi Ísleifi Gunnarssyni seðlabanka-
stjóra, í Vegvísi Landsbankans í gær, vegna ræðu
sem hann flutti á aðalfundi Seðlabankans í fyrra-
dag. Þar beindi Birgir Ísleifur sjálfur spjótum sínum
að viðskiptabönkunum og sagði þá hafa farið offari
í útlánum og ættu þar af leiðandi verulegan þátt í
þenslu hagkerfisins og verðbólgu. „Þessar ávirðing-
ar seðlabankastjóra koma nokkuð á óvart og
hljóma óneitanlega sem endurómur gamalla tíma,
þegar lánsfjárskömmtun og haftastefna
einkenndu íslensk efnahagsmál,“ sagði í
Vegvísinum. Var það svar við þeirri
gagnrýni Birgis að þar sem bankarnir
geri kröfur um að Seðlabanki og ríkis-
vald sýni aðhald og
stuðli að efnahags-
legum stöðug-
leika verði þeir
einnig að gera
sambærilegar
kröfur til sjálfs sín. Starfsfólk greiningardeildarinnar
segja ekki góða latínu að gera fjármálafyrirtækin
að blórabögglum. Ábyrgðin á hagstjórninni liggi
hjá stjórnvöldum en ekki hjá fyrirtækjum og
heimilum.
Skamm Halldór
„Öfugt við það sem oft er gefið til kynna er ís-
lenska krónan ekki óstöðugri en aðrir gjaldmiðlar
sem eru á floti,“ segir greiningardeild KB banka í
Hálfimm fréttum í gær og setur þar með ofaní við
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, sem einmitt
hélt þessu fram á aðalfundi Seðlabankans. Vitnar
KB banka-fólkið í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
frá árinu 2000 máli sínu til stuðnings. Íslenska
krónan þurfi ekki að vera óstöðugri en aðrir gjald-
miðlar vestrænna ríkja ef vel tekst til með stjórnun
peningamála. Er þá spjótum greiningardeildarinnar
í þessu samhengi beint gegn Seðlabankanum sjálf-
um og hinu opinbera. Jafnframt kemur fram að á
árunum 1995 til 2000 hafi dollarinn sveiflast meira
en gengisvísitalan en evran svipað.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.917
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 327
Velta: 6.100 milljónir
+0,45%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Eskja var rekin með 178 milljón
króna hagnaði á árinu 2004.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði var 730 milljónir, eða
24,2 prósent af rekstrartekjum
sem er þremur prósentustigum
lakari framlegð en í fyrra.
Fiskeldi Eyjafjarðar gekk illa í
fyrra og tapaði 165 milljónum
króna. Tekjur drógust verulega
saman og var undirritun endur-
skoðenda með fyrirvara um að
ljóst væri að félagið þyrfti aukið
fjármagn til áframhaldandi starf-
semi.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur selt
allan hlut sinn í Samherja. KEA
átti tíu prósent hlutafjár í Sam-
herja og var einn af kjölfestufjár-
festum eftir kaup Burðaráss á
Kaldbaki. Stefnt er á skráningu
Samherja af markaði.
18 1. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Flótti sjávarútvegsfyrir-
tækja af markaði hefur
staðið yfir á fjórða ár.
Margar ástæður skýra
flóttann.
Um áramótin síðustu voru tæp-
lega 4.000 fjárfestar eigendur að
sjávarútvegsfyrirtækjum í Kaup-
höllinni en með brotthvarfi Sam-
herja fækkar þeim um nær helm-
ing. Sjávarútvegur hefur því átt
undir högg að sækja sem fjárfest-
ingarkostur á hlutabréfamarkaði
á undanförnum árum. Ávöxtun af
hlutabréfum sjávarútvegsfélaga
hefur verið óviðunandi á sama
tíma og verð á hlutabréfum í
öðrum greinum hefur hækkað
nær látlaust. Tólf sjávarútvegs-
fyrirtæki hafa yfirgefið Kauphöll
Íslands frá 2002, þar af tvö á
þessu ári. Ef Samherji fer af
markaði verða aðeins þrjú,
hefðbundin sjávarútvegsfélög
eftir í Kauphöllinni, HB Grandi,
Vinnslustöðin og Þormóður
rammi – Sæberg.
Ýmsar skýringar hafa verið
nefndar fyrir þessari þróun. Aug-
ljósasta ástæðan er sú að félög í
sjávarútvegi hafa sameinast eða
verið yfirtekin. Þar má nefna að
Eimskip eignaðist Harald Böðv-
arsson (HB), Skagstrending og ÚA
árið 2002. Grandi eignaðist síðar
HB og sameinaðist Tanga snemma
á þessu ári. Síldarvinnslan samein-
aðist SR- mjöli árið 2003 en nýja
félagið var síðar tekið af markaði
af Samherja og fleiri aðilum.
Þá hefur verið bent á óviðun-
andi arðsemi af hlutabréfum í
sjávarútvegsfélögum og þá póli-
tísku ókyrrð sem ríkir um grein-
ina. Fáir hluthafar eiga mikið, við-
skipti með bréf félaganna eru fá-
tíð, arðsemi greinarinnar oft slök
og eilíft karpað um kvótakerfið.
Gott dæmi um ávöxtun hluta-
félags í sjávarútvegi er Samherji
sem fór á markað fyrir átta árum.
Gengi félagsins var þá um 9 krón-
ur á hlut en yfirtökuverð, sem
brátt mun bjóðast hluthöfum,
verður 12,1. Ávöxtunin er því að-
eins um 35 prósent á átta árum án
þess að tillit sé tekið til arð-
greiðslna.
Að lokum er rétt að nefna að að-
stæður til þess að taka félög af
markaði eru mjög hagstæðar um
þessar mundir. Stjórnendur og
stórir eigendur í sjávarútvegsfélög-
um hafa séð sér leik á borði á tím-
um lágra vaxta og farið út í skuld-
settar yfirtökur. Sömu aðilar telja
að markaðsverðmæti félaganna sé
oft lægra en eðlilegt getur talist og
bent á að með því að leysa upp eign-
ir félagsins fáist meira fyrir þær en
sem nemur virði á markaði. - eþa
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 40,900 -0,97% ... Atorka 6,10
– ... Bakkavör 31,80 +0,63% ... Burðarás 14,15 +0,71 ... FL Group 13,70
– 0,36... Flaga 5,38 -0,92% ... Íslandsbanki 12,45 +1,22% ... KB banki
528,00 +0,57% ... Kögun 60,30 +0,50 ... Landsbankinn 14,95 +0,67% ...
Marel 57,10 +1,06% ... Og fjarskipti 4,09 -0,73% ... Samherji 12,25- ...
Straumur 10,30 -0,48% ... Össur 83,50 +0,60%
Stolt sigldi fleyið mitt
Fiskmarkaður Íslands 1,82%
Tryggingamiðstöðin 1,33%
Íslandsbanki 1,22%
Actavis -0,97%
Og fjarskipti -0,73%
Straumur Fjárfest.b.-0,48%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Enn stefnt að
skráningu 2005
Stjórnin opnar á viðræður
Baugur hækkar boð sitt í
Somerfield, en formlegt
tilboð verður ekki lagt
fram fyrr en eftir langt
samningaferli.
Stjórn smásölukeðjunnar Somer-
field hefur ákveðið að hefja við-
ræður við bjóðendur sem leitt geti
til yfirtökutilboðs.
Þrír aðilar hafa lýst áhuga á að
bjóða í fyrirtækið og samkvæmt
breskum reglum skal eitt yfir alla
ganga og fá því allir aðgang að
bókhaldi fyrirtækisins.
Baugur hefur lagt fram óform-
legt tilboð, líklega upp á 205 pens
á hlut, en síðasta tilboð Baugs var
upp á 190 pens á hlut í Somerfield.
Í framhaldi af þessu hefst
nokkurra vikna ferli sem, ef sam-
komulag næst, mun leiða til form-
legs tilboðs þeirra sem vilja taka
yfir félagið. Auk Baugs eru það
fasteignafélög í eigu Tchenguiz-
bræðra annars vegar og
Livingstone-bræðra hins vegar.
Verðmæti Somerfield samkvæmt
þessu er um 130 milljarðar króna.
Baugur á fyrir fimm prósenta
hlut í Somerfield og myndi inn-
leysa góðan hagnað ef „bræðra-
lögin“ keyptu Somerfield. Hins
vegar mun Baugur hafa mikinn
áhuga á að kaupa fyrirtækið og
telja menn þar á bæ sig hafa
ágæta möguleika. Bæði hafi
Baugur náð að klára slíkar yfir-
tökur, auk þess sem þeir séu í
smásölubransanum og meiri
áhugi hjá stjórnendum Somer-
field á að fá slíka eigendur en
hreina fasteignafjárfesta. - hh
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
SJÁVARÚTVEGUR Fyrirtækjum í sjávarútvegi hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 2002. Óviðunandi arðsemi, sameiningar, deilur um
kvótakerfi og hagstæð skilyrði til skuldsettra fyrirtækjakaupa eru nefndar sem ástæður fyrir afskráningu félaganna.
AÐALFUNDUR Róbert Wessman, for-
stjóri Actavis, og Björgólfur Thor Björgólfs-
son stjórnarformaður