Fréttablaðið - 01.04.2005, Page 40
Í kvöld eru fyrstu útskriftartón-
leikar í tónleikaröð útskriftarnema í
tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Fluttar verða tónsmíðar Ásrúnar
Ingu Kondrup og Guðmundar
Steins Gunnarssonar en þau ljúka
bæði námi í tónsmíðum í vor.
„Verkið mitt heitir Solus Christ-
us og það er fyrsti kaflinn af fjór-
um. Þeir eru allir samdir í kringum
fjögur slagorð mótmælendakirkj-
unnar sem aðgreina hana frá
kaþólsku kirkjunni. Síðasti kaflinn
heitir Sola Gratia og hann er saminn
við texta sem ég þýddi úr hollensku.
Verkið er fyrir litla hljómsveit
og messósópran en söngkonan
heitir Sólveig Samúelsdóttir,“ segir
Ásrún.
Tónsmíðanámið er þriggja ára
nám og segir Ásrún mikla tónfræði
og greiningu á tónsmíðum felast í
náminu. „Við æfum okkur í alls
kyns tæknilegum atriðum í sam-
bandi við vinnubrögð við að semja
tónlist. Einnig lærum við töluvert í
tölvutækni sem er alltaf verið að
nota meir og meir við tónsmíðar.“
Útskriftartónleikarnir eru átta
talsins og standa til 9. maí. Á þeim
verða meðal annars flutt ný verk
eftir tónsmíðanemendur auk þess
sem fram koma söngvarar og ungir
einleikarar á flautu og píanó.
Tónleikarnir í kvöld fara fram í
Salnum í Kópavogi og hefjast
klukkan átta. ■
28 1. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
... Línu Langsokk sem kveður í
Borgarleikhúsinu um helgina.
Leikritið um hana var frumsýnt í
september 2003. Lína ætlaði upp-
haflega að drífa sig í siglingu til
Suðurhafseyja með pabba sínum
fyrir páskana, en hún frestaði för og
gaf færi á tveimur sýningum til við-
bótar núna fyrstu helgina í apríl.
Langur biðlisti á síðustu sýningu og
tárvot augu þeirra sem ekki komust
að gerðu útslagið. Enn eru nokkur
sæti laus á sýningarnar á laugardag
og sunnudag.
... því þegar hljómsveitin Jak-
obínarína treður upp í Smekk-
leysu/Gallerí humar eða frægð á
laugardaginn klukkan 15. Hljóm-
sveitin vann Músíktiraunir á dögun-
um og kemur að þessu sinni fram
með meðlim úr sveitinni Lada
Sport.
Einn þekktasti plötusnúður Bretlands,
Alan McGee, mun þeyta skífum á Gauki
á Stöng helgina 1. og 2. apríl. McGee er
afar þekktur í bresku tónlistarlífi enda
uppgötvaði hann meðal annars Oasis,
Jesus & Mary Chain og Primal Scream
og er nú umboðsmaður The Libertines.
Hann rekur umboðsskrifstofuna The
Poptones, sem hefur m.a. á sínum
snærum The Hives, The Cosmic Rough
Riders, og The Bellrays, auk þess sem
hann stofnaði hina þekktu Creation
Records á sínum tíma.
Óli Palli verður gestaplötusnúður bæði
kvöldin og bætist þar með í hóp
margra mætra einstaklinga sem hafa
spilað með Alan. Þeirra á meðal eru
Courtney Love, Shane MacGowan og
sveitirnar The Libertines, The Hives og
Primal Scream.
Sign og 911 hita upp fyrir McGee og
Óla Palla á föstudagskvöldið og kvöldið
eftir hita Dúndurfréttir upp. Stuðið byrj-
ar kl. 22.00 bæði kvöldin og kostar
1500 kr. inn.
Kl. 17.00
Markús og Donna Mezz leika í Smekkleysu/Gallerí
humar eða frægð. Markús Bjarnason er söngvari hljóm-
sveitanna Sofandi, Skáta og Campfire Backtracks en
Donna Mezz er hljómsveit skipuð þremur ungum
konum, þeim Björgu, Iðunni og Söru. Heilinn á bak við
sveitina er Björg Sveinsdóttir, hún semur tónlistina og
syngur ásamt þeim stöllum.
menning@frettabladid.is
Þekktur plötusnúður á Gauknum
ÁSRÚN INGA KONDRUP Hún og Guðmundur Steinn Gunnarsson halda tónleika í kvöld
í Salnum Kópavogi. Þau eru bæði útskriftarnemar í tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Verk fyrir hljómsveit
og messósópran
!
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20, Fi 14/4 kl 20
Síðustu sýningar
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Lau 2/4 kl 14 - Aukasýning
Su 3/4 kl 14 - Aukasýning
Lokasýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
Í kvöld kl 20 - AUKASÝNING
Síðasta sýning
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Í kvöld kl 20, Lau 9/4 kl 20, Su 17/4 kl. 20
AUSA eftir Lee Hall
Í samstarfi við LA.
Su 3/4 kl 20
Fi 21/4 kl 20 - Síðasta sýning
- Ath: Miðaverð kr. 1.500
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson. Í samstarfi við
Hið lifandi leikhús.
Í kvöld kl 20 Síðasta sýning
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Lau 2/4 kl 20 - UPPSELT,
Su 3/4 kl 20 - UPPSELT,
Fi 14/4 kl 20 - UPPSELT,
Fö 15/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 16/4 kl 20, - UPPSELT,
Su 17/4 kl 20
Mi 20/4 kl. 20 - UPPSELT,
Fi 21/4 kl 20
Fö 22/4 kl 20 - UPPSELT,
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds.
Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
Aðalæfing fi 7/4 kl 20 - kr. 1.000
Frumsýning fö 8/4 kl 20 - UPPSELT
Fö 15/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
MIÐASALAN ER HAFIN
á www.borgarleikhus.is
og í síma 568 8000
Fimmtudagur 21. apríl FRUMSÝNING kl. 14.00
- Sumardagurinn fyrsti
Laugardagur 23. apríl 2. sýning kl. 14.00
Sunnudagur 24. apríl 3. sýning kl. 14.00
Sunnudagur 1. mai 4. sýning kl. 17.00
Sunnudagur 1. mai 5. sýning kl. 14.00
Fimmtudagur 5. maí 6. sýning kl. 14.00
- Uppstigningardagur
Laugardagur 8. mai 7. sýning kl. 14.00
Sunnudagur 9. mai 8. sýning kl. 14.00
Sýnt í
Borgarleikhúsinu!
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Hljómsveitin Skakkamanage
heldur veislu í fyrrum Hvítakoti í
Lækjargötu í tilefni þess að út er
komin
splunkuný
sjötommu-
hljómplata
hljómsveitar-
innar, Hold
Your Heart.
20.00 Þrettán nemendur úr tónlist-
ardeild Listaháskóla Íslands verða
með útskrifartónleika í Salnum
Kópavogi. Fluttar verða tónsmíðar
eftir Ásrúnu Ingu Kondrup og Guð-
mund Stein Gunnarsson. Tónleik-
arnir eru þeir fyrstu í níu raða tón-
leikaröð.
22.30 Blúskvöld með Mike Poll-
ock, Sigga Sig og Gunnar Erlings á
Café Rosenborg.
■ ■ OPNANIR
Ólöf Björg opnar sýningu á málverk-
um í kaffihúsinu Energía í Smáralind.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 DJ Sóley og Áki Pain spila á
Pravda
23.00 Hljómsveitin Sixties heldur
fjörinu uppi alla helgina á Kringlu-
kránni þann 1. og 2. apríl. Stuðið
hefst kl:23 báða dagana.
Dúettinn Halli og Kalli skemmtir á
Ara í Ögri.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
29 30 31 1 2 3 4
Föstudagur
APRÍL
ALAN MCGEE Þessi þekkti plötusnúður
þeytir skífum á Gauki á Stöng 1. og 2. apríl.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI