Fréttablaðið - 01.04.2005, Page 36

Fréttablaðið - 01.04.2005, Page 36
24 1. apríl 2005 FÖSTUDAGUR Jákvæð mismunun er hugtak sem hefur reglulega skotið upp kollinum síð- ustu ár, sérstaklega þegar ráðið er í stöð- ur hjá hinu opinbera. Jákvæð mismunun er þegar einstakling- ur af því kyni sem hallar á er ráðinn í starf að uppfylltum lágmarksskil- yrðum. Þá skiptir engu þótt hæfari einstaklingur af hinu kyninu sækist einnig eftir starfinu, hugmyndin er jú að rétta hlut þess kyns sem á undir högg að sækja. Jákvæð mismunun á ekki ein- göngu við um þegar konur eru tekn- ar fram yfir karla við mannaráðn- ingar, því slíkum aðferðum er einnig hægt að beita þegar karlar sækja um, svo lengi sem það hallar á þá í þeirri starfsstétt sem um er að ræða. Aðferðir eins og jákvæð mis- munun hafa verið notaðar til að rétta hlut kvenna í stjórnunarstöð- um í þó nokkrum löndum og oft með góðum árangri. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um ágæti slíkra aðferða, enda alls óvíst að hæfasti einstak- lingurinn sé ráðinn. Margir virðast standa í þeirri trú að jákvæðri mismunun hafi verið beitt hér á landi. Staðreyndin er sú að slíkum aðferðum hefur nánast aldrei verið beitt. Þess í stað hefur svokallaðri sjálfbærri mismunun verið beitt. Sjálfbær mismunun er, eins og nafnið gefur til kynna, þeg- ar einstaklingur úr stjórnarflokki sem hallar á í opinberum störfum er ráðinn, oftast að uppfylltum lág- marksskilyrðum. Þá skiptir engu þótt hæfari einstaklingur úr öðrum eða engum flokki sækist einnig eft- ir starfinu, hugmyndin er jú að rétta hlut flokks sem á undir högg að sækja. Skiptar skoðanir hafa verið um ágæti sjálfbærrar mismununar, því það sama gildir þar og um jákvæða mismunun, það er alls óvíst að hæf- asti einstaklingurinn sé ráðinn. Hitt er þó ljóst að sjálfbær mismunun er mun vinsælli aðferð en sú jákvæða. Að minnsta kosti er hlutfall kvenna í stjórnunarstöðum mun lægra en pólitískra hunda. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA KRISTJÁN HJÁLMARSSON VELTIR FYRIR SÉR RÁÐNINGUM Sjálfbær mismunun M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Heyrðu, pabbi! Hvað ertu að búa til? 1949! Sögur úr athvarfinu Páll Þarna er herra Páll! Hann bjargar dýrum... Þeim meiddu... Þeim misnotuðu... Þeim týndu... Þeim yfirgefnu... Við dáumst að þér Herra Páll. Hvað gerðu krakkarnir svo í dag? Krakkar! Krakkar! Krakkar! Allt snýst um krakkana! Af hverju getum við aldrei talað um neitt annað en krakkana? Fyrir- gefðu! Það er alveg rétt hjá þér! Hvað gerðir þú í dag? Passaði krakkana! Hæ, Mikki og Halla. Eruð þið saman í öllum tímum? Öllum nema einum. Af ýmsum ástæðum vorum við sett í sitthvorn efnafræðitímann. Úff! Það hlýtur að vera erfitt fyrir ykkur. Þú myndir aldrei skilja það. Sakna þín. Vertu sterk. REKSTRARVÖRULISTINN BORÐBÚNAÐUR A rc ad e að al ré tt ar ga ff al l o g hn ífu r Sími 520 6666 www.rv.is Réttarháls 2 R V 20 30 D

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.