Fréttablaðið - 01.04.2005, Síða 41

Fréttablaðið - 01.04.2005, Síða 41
FÖSTUDAGUR 1. apríl 2005 Opið frá kl. 12-16 laugardaga Söluumboð: Bílás sf., Akranesi - BSA, Akureyri - Betri bílasalan, Selfossi - SG Bílar, Reykjanesbæ 1.720.000 kr. Komdu, reynsluaktu og gerðu verðsamanburð. Gæðin eru augljós. Gegnheil gæði og gott verð Kynntu þér fjölda freistandi tilboða! Sími 540 5400 H im in n o g h a f / SÍ A Mazda er japanskur bíll, framleiddur í Japan sem vermir nú toppsætið samkvæmt stærstu gæðakönnun Evrópu og skarar fram úr hvað varðar endingu og lága bilanatíðni. Aukahlutir á mynd: álfelgur Mazda3 T 5 dyra 1,6 l kostar aðeins HÁSKÓLABÍÓI, LAUGARDAGINN 2. APRÍL KL. 15.00Tónsprotinn #4 Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Ævintýralegir tónleikar Hljómsveitarstjóri ::: Guðmundur Óli Gunnarsson Sögumaður og kynnir ::: Örn Árnason Árni Björnsson ::: Forleikur að Nýársnóttinni Fuzzy / H.C. Andersen ::: Förunauturinn Benjamin Britten ::: Hljómsveitin kynnir sig ER BAKHJARL TÓNSPROTANS Tónleikaröð fjölskyldunnar, Tónsprotinn, hefur slegið í gegn í vetur. Þessir ævintýralegu tónleikar eru tileinkaðir H.C. Andersen á 200 ára fæðingarafmæli hans. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir: Vegna fjölda áskorana verða tvær aukasýningar Föstudaginn 15. apríl kl. 20 Laugardaginn 23. apríl kl. 20 Tenórinn Ástandið Sögur kvenna frá hernámsárunum Kvöldsýning sunnudagskvöldið 3. apríl kl. 20 Síðasta sýning miðvikudag 6. apríl kl. 15 Glerbrotið blað í sögu þjóðar Það verður brotið blað í sögu gler- listar hér á landi þegar fjórar gler- listarsýningar opna í Kópavogi á morgun. Sýningarnar eru allar á vegum Listasafns Kópavogs, Gerð- arsafns, og eru framlag safnsins til 50 ára afmælis Kópavogsbæjar. Þær eru jafnframt hluti af alþjóð- legu glerlistaþingi, Iceland 2005, sem haldið verður í Salnum dagana 5.-7. apríl. Sýningarnar sem um ræðir eru Gerður Helgadóttir – meistari glers og málma, Samræður eftir Caroline Swash, Andi manns eftir Leif Breiðfjörð og Íslensk sam- tímaglerlist. Á síðastnefndu sýn- ingunni sýna listamennirnir Bryn- hildur Þorgeirsdóttir, Jón Jóhanns- son, Jónas Bragi Jónasson, Pía Rakel Sverrisdóttir, Rakel Stein- arsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir og Sigrún Ó. Einarsdóttir. „Þetta er örugglega stærsta glerlistasýning sem haldin hefur verið hér á landi,“ segir glerlista- maðurinn Leifur Breiðfjörð, einn þeirra sem hefur haft veg og vanda að sýningunni. Hugmyndin að sýn- ingunum og þinginu kviknaði fyrir þremur árum þegar Leifi bauðst að halda einkasýningu í London. „Þá kviknaði hugmyndin að þinginu hjá mér og konu minni Sigríði Jóhanns- dóttur. Hún hefur mestmegnis unn- ið að skipulagningu þingsins síðan og nú er það komið í gang.“ Margir frægustu glerlistafræði- menn heims og forsvarsmenn safna koma á þingið og er það því kjörið tækifæri fyrir íslenska gler- listamenn að fá að sýna verk sín. Glerlist á sér ekki langa sögu á Íslandi. Upphaf hennar má rekja til Nínu Tryggvadóttur og Gerðar Helgadóttur sem héldu fyrstu sýn- ingar sínar í kringum 1950. „Þær létu vinna öll sín verk er- lendis en ég var eiginlega fyrsti Ís- lendingurinn sem opnaði verk- stæði hér heima til að vinna verkin. Frá árinu 1969 hef ég unnið flest verkin hérna en stærri verkefnin hafa verið unnin í Þýskalandi,“ segir Leifur. Leifur segir að erfitt sé að setja upp svona sýningu enda þungir og viðkvæmir hlutir sem unnið er með. „Svona sýning krefst mikillar undirbúningsvinnu. Við undirbúum þær í tölvu og ákveðum hvert verk- in eiga að fara í salnum,“ útskýrir Leifur. „Ef undirbúningurinn geng- ur vel og færir menn sjá um upp- setningu verkanna gengur þetta allt mjög vel eins og nú.“ Heiðursgestur á Iceland 2005 verður Patrick Reyntiens sem er einn frægasti glerlistamaður heims. Hann er mikill áhrifavaldur í heimi glerlista og lærifaðir margra frægustu glerlistamanna heims. Hann hefur auk þess skrif- að bækur sem eru nokkurs konar biblíur glerlistamanna. Sýningarnar eru í Gerðarsafni, forrými Salarins, Bókasafni og Náttúrufræðisafni Kópavogs. Af- mælissýningin opnar sem fyrr seg- ir á morgun og stendur til 1. maí. ■ LEIFUR BREIÐFJÖRÐ Hann verður sextugur á þessu ári en fyrir tíu árum hélt hann eina stærstu einkasýningu sína í Gerðarsafni. „Það var gríðarlega stór sýning og ætli þetta sé ekki stærsta einkasýning mín síðan þá,“ segir Leifur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.