Fréttablaðið - 01.04.2005, Síða 46

Fréttablaðið - 01.04.2005, Síða 46
Hef verið að velta því fyrir mér hversu auð- veldlega maður getur orðið fyrir áhrifum ein- hvers í kringum mann. Ekki endilega á slæm- an hátt. Þetta gerist án þess að maður geri sér raunverulega grein fyrir því. Ef við horfum til baka á það sem hefur verið að gerast í líf- inu er iðulega hægt að skipta því upp í tíma- bil. Til dæmis eftir vinum eða fólki sem mað- ur hefur verið að hitta. Þá er það þannig að þessi ákveðna manneskja verður til þess að maður fer að haga sér á sérstakan hátt, lifa eftir ákveðnum lífsstíl eða klæða sig öðruvísi. Einu sinni var vinkona mín að hitta mann og stuttu síðar tók ég eftir því að hún var farin að klæða sig meira klassí og fara á staði sem við höfðum ekki lagt í vana okkar að sækja. Þá var það vegna þess að hún var búin að reikna út hvað honum þótti aðlaðandi og var ómeð- vitað farin að klæða sig meira eftir því. En hún var auðvitað að gera það fyrir hann að sækja þessa staði, því hann átti alls ekki heima þar sem hún var vön að skemmta sér. Mér þótti þetta mjög skrýtið í fyrstu og var alveg furðu lostin á því hversu ósjálfstæð hún væri að láta hann hafa svona mikil áhrif á sig. En við nánari pælingar færðist ég yfir á þá skoðun að þetta væri ekki ósjálfstæði heldur málamiðlun. Allavega svo lengi sem þetta fer ekki út í öfgar og fólk heldur persónuleikan- um. En það eru víst alltaf til tvær hliðar á öll- um málum. Þannig er mál með vexti að ég þekki enn aðra konu sem skipti alveg um stíl þegar hún eignaðist nýja vini. Í hvert sinn sem ég sá hana gat ég reiknað út hvernig og jafnvel hverjir nýju vinir hennar væru með því aðeins að horfa á klæðaburðinn og stílfærsl- una á lúkkinu. Við vinkonurnar vor- um farnar að kalla hana kamel- ljónið því það var allsvakalegt hvernig hún tók stakkaskiptum. Einn daginn var hún í „poncho“ og hinn daginn í plastbuxum! Þetta getur ekki kallast málamiðlun heldur óöryggi og ósjálfstæði. En hversu miklu á maður að þurfa að breyta við sjálfan sig til að samband gangi upp og hversu miklu má mað- ur ætlast til að hinn aðilinn breyti til að halda manni ánægðum? Er þetta ekki spurning um hið fullkomna jafnvægi staðfestu og málamiðlunar eða er maður búinn að finna þann rétta þegar maður getur verið hundrað prósent maður sjálfur? REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR VELTIR FYRIR SÉR UMHVERFISÁHRIFUM Ósjálfstæði eða málamiðlun 34 Skáksnillingurinn og Íslendingur-inn Bobby Fischer er smám saman að koma sér fyrir hér á landi með hjálp vinar síns, Sæmundar Pálssonar. Nýverið fóru þeir í versl- unarleiðangur um höfuðborgar- svæðið í leit að hentugum farsíma fyrir meistarann. Sú leit var nokkuð tímafrek, því Fischer var með ákveðna tegund í huga sem hann vildi eignast. Rétti síminn fannst þó að lokum. Fischer er víst enn ekki búinn að finna sér íbúð en getur huggað sig við það að fjar- skiptin eru loksins komin í lag. Það fauk heldur betur í fjölmiðla-parið Svanhildi Valsdóttur og Loga Bergmann Eiðsson þegar Séð og heyrt birti myndir af baðherberg- inu í nýju íbúðinni þeirra. Myndirnar voru teknar fyrir Hús&Hýbíli áður en Logi og Svanhildur festu kaup á eigninni þannig að þeim þótti eðli- lega illa á sér brotið. Parið hugðist upphaflega kæra vinnubrögð Séð og heyrt til Siðanefndar Blaða- mannafélags Íslands en féll þó frá því þegar þeim rann mesta reiðin. Fullar sættir hafa nú náðst á milli Loga, Svanhildar og Séð og heyrt eftir að Róbert Róbertsson, aðstoð- arritstjóri tímaritsins, féllst á að miðla málum með því að hleypa Svanhildi inn á sitt eigið baðher- bergi og gefa henni kost á að fjalla opinberlega um salernisaðstöðuna. Ekki er þó enn ljóst hvort af þessu verði og þá ekki heldur hvort bað- herbergisumfjöllun Svanhildar verði birt í Séð og heyrt eða jafnvel í Inn- lit/Útlit hjá Völu Matt an Svanhildur sýndi eldhúsið sitt í þeim þætti skömmu eftir að bað- herbergisdeilan braust út. Lárétt: 2 ekki saklausa, 6 eink. st. flugvéla, 8 reið, 9 sagt á spáni, 11 ekki, 12 gáðir, 14 tolla, 16 bardagi, 17 fatnaður, 18 ambátt, 20 í röð, 21 ganga. Lóðrétt: 1 sæti, 3 ekki, 4 björg, 5 fæði, 7 nærri allar, 10 trjátegund, 13 hvíldi, 15 áflog, 16 leiða, 19 eink. st. skipa. Lausn: 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 ” Framúrskarandi“ ÍS LE NS KA A UG L† SI NG AS TO FA N/ SI A. IS RO L 26 34 2 0 2/ 20 05 Heimildarmyndin Gargandi snilld verður lokamynd Iceland Inter- national Film Festival sem hefst 7. apríl og stendur yfir í þrjár vikur í kvikmyndahúsum víðs- vegar um landið. Gargandi snilld, sem kallast Screaming Masterpiece á ensku, er framleidd af Sigurjóni Sig- hvatssyni, Ergis Filmproduction og Zik Zak kvikmyndum. Handrit og leikstjórn er í höndum Ara Alexander Ergis Magnússonar. Myndin fjallar um gróskuna í íslensku tónlistarlífi að undan- förnu. Meðal þeirra listamanna sem koma fram í myndinni eru Björk, Sigur rós, Steindór Ander- sen, Bang Gang, Mugison, Mínus, Slow Blow, Múm, Quarashi, Eivör Pálsdóttir, Ghostigital og Nilfisk. Tónlistarmennirnir eru sýndir í sínu besta formi, hér heima og erlendis við ýmis tækifæri. Mugi- son er aleinn í kirkju úti á landi að spila á gítar á ullarsokkum og Björk leikur fyrir þúsundir í New York með kór og stórhljómsveit. Gargandi snilld var frumsýnd í Gautaborg 5. febrúar sl. og hlaut þann heiður að keppa til aðalverð- launa, en heimildarmyndir eru jafnan ekki valdar inn í þá keppni. Þá var myndin sýnd á lokuðum markaðssýningum á kvikmynda- hátíðinni í Berlín, þar sem hún naut einnig mikillar athygli og fékk góðar viðtökur. Veglegri kvikmyndahátíð lýkur með Gargandi snilld MUGISON Mugison spilar á ullarsokkum í kirkju í heimildarmyndinni Gargandi snilld. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Kári Árnason. 14 til 16 ára unglinga. Samherja. Arnmundur Ernst Björnsson er drengurinn sem fer á kostum í Gott Start auglýsingunni en þar er verið að auglýsa bankareikning fyrir fermingarbörn. Arnmundur Ernst leikur ungan strák sem skipuleggur fermingu sína upp á eigin spýtur og veit upp á hár hvernig hann vill hafa hana. Hann á ekki langt að sækja leikhæfileika sína enda sonur Eddu Heiðrúnar Backman og Björns Inga Hilmarssonar en þau eru bæði leikarar. „Eskimo mod- els hafði samband við mig og vildi fá mig til að leika í auglýs- ingu fyrir Sparisjóðina, ég þáði boðið og sé ekkert eftir því enda frábær auglýsing þar á ferð,“ sagði Arnmundur í spjalli við Fréttablaðið. Arnmundur þykir sýna stór- skemmtilega takta í auglýsing- unni enda veit hann hvernig ferm- ingar fara fram, hann fermdist fyrir tveimur árum. Hann er nú í tíunda bekk í Hagaskóla og spreytir sig á samræmdu prófun- um í vor. Það er ekki hægt að segja að Arnmundur sé óvanur leik en hann leikur í Mýrarljósi sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu og en þar leikur hann einmitt undir stjórn móður sinnar. Íslendingar mega búast við að sjá meira af þessum unga og mjög svo efnilega leikara í fram- tíðinni en hann æfir nú af fullum kappi fyrir leikritið Kalli á þakinu sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu á sumardaginn fyrsta. Þar leikur hann meðal annars með Sveppa úr Strákunum á Stöð 2 og undir leikstjórn Óskars Jónassonar. FRÉTTIR AF FÓLKI ...fær Jón Gnarr sem fékk nafnið sitt loks samþykkt hjá mannanafnanefnd. HRÓSIÐ ARNMUNDUR ERNST Strákurinn þykir sýna stórleik þegar hann skipuleggur ferm- ingu í auglýsingu fyrir sparisjóð. Næsta verkefni Arnmundar er Kalli á þakinu eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Óskars Jónas- sonar. ARNMUNDUR ERNST: FER Á KOSTUM Í AUGLÝSINGU Kalli á þakinu næst á dagskrá Lárétt: 2 seka, 6 tf, 8 ill, 9 óle, 11 ei, 12 leist, 14 skatt, 16 at, 17 tau, 18 man, 20 rs, 21 arka. Lóðrétt: 1 stól, 3 ei, 4 klettar, 5 ali, 7 flestar, 10 eik, 13 sat, 15 tusk, 16 ama, 19 nk. » BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á FÖSTUDÖGUM 1. ap ÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.