Fréttablaðið - 15.04.2005, Side 10

Fréttablaðið - 15.04.2005, Side 10
ÓLÖGLEGT GÓSS Lögreglan í Addis Ababa gerði á dögunum upptæk 500 kíló af fílabeinum auk upp- stoppaðra ljóna og hlébarða. Einnig fund- ust nokkur strútsegg í góssinu. Selja átti varninginn úr landi. 10 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR Reykjavíkurborg: Samgönguáætlun gagnrýnd BORGARMÁL Höfuðborgarsvæðið og Reykjavíkurborg, sérstaklega, fara verulega varhluta af fyrirhuguðum framkvæmdum ríkisins í sam- göngumálum að mati meirihluta borgarráðs. Ný fjögurra ára sam- gönguáætlun Sturlu Böðvarssonar er gagnrýnd þar sem innan við tíu prósent framkvæmdafjár fari til höfuðborgarbúa þar sem 40 prósent landsmanna búa. Segir í bókun borgarráðs að Sjálfsstæðisflokkurinn beri höfuð- ábyrgð á fjársvelti höfuðborgarinn- ar í samgöngumálum enda hafi samgönguráðuneytið verið í þeirra höndum óslitið frá árinu 1991. Á því tímabili hafi aðeins 22 prósent framlaga til vegamála skilað sér til höfuðborgarbúa. Algerlega óviðun- andi sé að hvorki Sundabraut né samgöngubætur við Mýrargötu séu á dagskrá ráðherra næstu fjögur ár. Sundabrautin sé væntanlega hag- kvæmasta framkvæmdin sem hægt sé að ráðast í vegna þess fjölda sem um hana mun fara og yfirlýst áform um sérstaka fjármögnun eigi ekki að standa í vegi fyrir að hægt verði að tímasetja framkvæmdina. - aöe Lík fannst sundurhlutað í Stokkhólmi: Maðurinn er af norrænum uppruna SVÍÞJÓÐ Sænsku lögreglunni hefur enn ekki tekist að bera kennsl á lík af karlmanni sem fannst sundur- hlutað í tvennu lagi í miðborg Stokkhólms um síðustu mánaða- mót. Fingraför mannsins hafa verið borin saman við fingafarasöfn sænsku, dönsku, norsku og finnsku lögreglunnar án nokkurs árangurs. Engu að síður er sænska lögreglan sannfærð um að maðurinn sé af norrænum uppruna og byggir það á tannviðgerðum sem talsmenn lögreglunnar segja tvímælalaust gerðar af norrænum tannlækni. Talið er víst að upplýsingar um manninn séu því að finna á skrá einhvers tannlæknis í Skandinavíu og verður myndum af tönnum mannsins dreift meðal tannlækna á Norðurlöndum í þeirri von að hægt verði að bera kennsl á manninn. Enn hefur enginn verið hand- tekinn vegna þessa óhugnanlega máls en sænska Aftonbladet sagði í gær að leit lögreglunnar beinist að konu og hefur það eftir heimildum innan lögreglunnar. - ssal Sættir náðust á síðustu stundu Meirihlutasamstarfi í sveitarstjórn Skagafjarðar var bjargað fyrir horn á elleftu stundu. Oddviti sjálfstæðismanna ætlar að hætta í stjórnmálum. SKAGAFJÖRÐUR Sættir hafa náðst í deilum milli sjálfstæðismanna í sveitarstjórn Skagafjarðar. Með því var komið í veg fyrir að van- traust yrði sam- þykkt á Gísla Gunnarsson for- seta sveitarstjórn- ar og oddvita sjálf- s t æ ð i s m a n n a . Meirihluti sjálf- stæðismanna og Vinstri grænna í Skagafirði heldur því velli enn um sinn. Séra Gísli Gunnarsson boðar hins vegar brotthvarf sitt af sviði stjórnmálanna þegar þessu kjör- tímabili lýkur að ári, en hann hefur þá verið oddviti D-listans í átta ár. „Ég reikna alls ekki með því að ég sækist eftir því að leiða lista sjálf- stæðismanna né að vera á lista í næstu kosningum,“ segir hann og kveðst ætla að einbeita sér að prestsstörfum en hann er starfandi sóknarprestur í Glaumbæ. Deilur spruttu nýverið milli Gísla og Bjarna Maronssonar, eins þriggja fulltrúa sjálfstæðismanna í sveitarstjórn, og oddvita flokksins, eftir að Gísli hafði úrskurðað Bjarna vanhæfan til þátttöku í af- greiðslu fundargerðar. Í kjölfarið lýsti Bjarni því yfir að hann styddi Gísla ekki lengur sem forseta og hefði meirihlutinn því fallið að óbreyttu. Á fundi sjálfstæðismanna í Skagafirði í fyrrakvöld tókst hins vegar að bera klæði á vopnin og þar með var lífi meirihlutans borg- ið um sinn að minnsta kosti. Deilendur sættast á að hæfi Bjarna Maronssonar í áðurgreindu máli hafi orkað tvímælis en að Gísla hafi jafnframt borið að leggja hæf- ið í dóm fundarins í stað þess að úr- skurða um það sjálfur. „Það var mín ákvörðun að þiggja þessar sættir í málinu bæði vegna þess að Gísli viðurkenndi að hafa misbeitt valdi sínu en líka að stutt er eftir af kjörtímabilinu og óvíst hvað við tæki í sveitarstjórn ef meirihlutinn félli,“ segir Bjarni Maronsson. ssal@frettabladid.is Samruni mjólkur- framleiðenda: Nýtt félag í lok apríl SAMRUNI Mjólkursamsalan í Reykjavík (MS) og Mjólkurbú flóa- manna hafa sameinast undir einn hatt. Ný stjórn sameinaðs félags verður kosin 29. apríl næstkom- andi, að sögn Magnúsar Sigurðs- sonar, stjórnarformanns MS. Magnús segir formlegt samein- ingarferli hafa staðið síðan sam- runi var samþykktur á aðalfundi félaganna í mars. Magnús telur töluverða hagræðingu og sparnað skapast við þetta. Áætlað er að fé- lagið fái nýtt nafn en vörumerki MS verði notað áfram. -sgi Árleg söfnun ABC: Byggja heimili fyrir drengi SÖFNUN Í árlegri söfnun ABC barnahjálpar verður að þessu sinni safnað fyrir stórri bygg- ingu á Heimili litlu ljósanna á Indlandi, þar sem verður svefn- aðstaða fyrir 800 drengi. Áætlað- ur byggingarkostnaður er tæp- lega 10 milljónir króna. Söfnunin hefst formlega í dag með því að forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og Vigdís Finnbogadóttir opna hana með táknrænum hætti, Vigdís í Háskóla íslands og forsetinn að Bessastöðum. Reikningur fyrir söfnunina Börn hjálpa börnum er í Íslands- banka nr: 515-14-110000, kt. 690688-1589. - jss GÍSLI GUNNARSSON Séra Gísli ætlar að hætta í stjórn- málum. Fjármálaráðherra: Skipaskrá hér óþörf KAUPSKIP Skipafélög í millilanda- flutningi þurfa ekki fjárhagsleg- an stuðning, sagði Geir H. Haarde í utandagskrárumræðum á Al- þingi. Íslensk alþjóðleg skipaskrá væri því óþörf. Geir sagði menn sammála um að styðja þyrfti við bakið á far- mönnum svo að þeir væru sam- keppnishæfir. Sjónarmið Geirs eru í samræmi við hugmyndir Sjómannafélags Reykjavíkur. Aðrir vilja alþjóðlega skipaskrá hér eins og í nágrannalöndunum. Geir benti á að þó að íslensk skipafélög í flutningum hafi skráð skip sín í Færeyjum væru sjó- mennirnir íslenskir. - gag M YN D A P FRAMTÍÐARSKIPULAG MÝRARGÖTU Þær framkvæmdir eru ekki á samgöngu- áætlun en eru forsenda þess að fyrirhuguð uppbygging svæðisins geti hafist. GÁMAR EIMSKIPS Eimskip, eitt félaga í millilandaflutningi á sjó, skráir áhafnir hér heima. Ekkert fyrir- tækjanna skráir skipin hér. SKAGAFJÖRÐUR Það er fallegt í Skagafirði og allt fallið í ljúfa löð í sveitarstjórn eftir deilur undanfarinna vikna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.