Fréttablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 51
FÖSTUDAGUR 15. apríl 2005 31
Fáðu þér 2005
árgerðina
í Sony Center!
*Miðað við 12 jafnar vaxtalausar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
www.sonycenter.is
DCR-HC22
Stafræn MiniDV
myndbandstökuvél.
• 800 þúsund pixla myndflaga
• 20x aðdráttur um Carl Zeiss linsu
• 800x stafrænn aðdráttur
• DV inn/út • Snertiskjár • Tengistöð fylgir
Verð 5.980 krónur
vaxtalaust* í 12 mán. eða
71.760 krónur staðgreitt
DCR-HC32
Stafræn MiniDV
myndbandstökuvél.
• 800 þúsund pixla myndflaga
• 20x aðdráttur um Carl Zeiss linsu
• Analog inn • 800x stafrænn aðdráttur
• DV inn/út • Snertiskjár • Tengistöð fylgir
Verð 6.580 krónur
vaxtalaust* í 12 mán. eða
78.960 krónur staðgreitt
Carl Zeiss linsa
Linsurnar frá Zeiss tryggja
hámarks dýpt og lita-
aðgreiningu myndarinnar.
Snertiskjár
Allar aðgerðir er framkvæmdar
á skjánum í stað hefðbundina
hnappa.
• Tekur
ljósmyn
dir
á minn
iskort.
• Analog
inn!
20x optical og800x stafrænn
aðdráttur!
Enska úrvalsdeildin:
Þrír menn
frá Chelsea
FÓTBOLTI Chelsea á þrjá af þeim
sex leikmönnum sem koma til
greina sem leikmenn ársins í
ensku úrvalsdeildinni. Það eru
leikmenn ensku úrvalsdeildarinn-
ar sem velja og tilnefningarnar
voru gefnar út í gær.
Miðjumaðurinn Frank Lam-
pard, varnarmaðurinn John Terry
og markvörðurinn Petr Cech eru
allir á listanum en Chelsea er
komið langleiðina með að landa
fyrsta meistaratitli félagsins í 50
ár. Aðrir sem koma til greina eru
Steven Gerrard miðjumaður
Liverpool, Andy Johnson sóknar-
maður Crystal Palace og síðast en
alls ekki síst framherjinn Thierry
Henry hjá Arsenal en hann hefur
unnið þessa viðurkenningu tvö
síðustu ár.
Fyrirfram er búist við að
annaðhvort Lampard eða Terry
vinni að þessu sinni en það yrði þá
í fyrsta sinn síðan Teddy Shering-
ham var valinn sem leikmaður
Manchester United árið 2001, að
enskur leikmaður hlýtur þessi
virtu verðlaun.
Erlendir leikmenn hafa einok-
að verðlaunin síðustu tímabil en
auk Henry hafa Hollendingarnir
Ruud van Nistelrooy og Dennis
Bergkamp, Írinn Roy Keane og
Frakkinn David Ginola verið
kosnir bestir af kollegum sínum í
ensku úrvalsdeildinni.
Einnig er valinn besti ungi
leikmaður deildarinnar og í ár
koma þar til greina Wayne Roon-
ey og Cristiano Ronaldo hjá
Manchester United, Shaun
Wright-Phillips hjá Manchester
City, Arjen Robben hjá Chelsea,
Stewart Downing hjá Middles-
brough og að lokum Jermain
Defoe hjá Tottenham.
Sigurvegarnir í ár verða
verðlaunaðir í sérstöku hófi 24.
apríl næstkomandi. -ooj
VERÐUR LAMPARD VALINN BESTUR?
Frank Lampard hjá Chelsea þykir ásamt
félaga sínum John Terry líklegastur til að
verða valinn besti leikmaður ensku úrvals-
deildarinnar í vetur.
Stjörnuleikur Evrópudeildar FIBA á Kýpur í gær:
Jón Arnór með 10 stig
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
skoraði 10 stig og tók þrjú fráköst
á 21 mínútu í Stjörnuleik Evrópu-
deildar FIBA sem fram fór á Kýp-
ur í gær. Jón Arnór var í
byrjunarliði Evrópuúrvalsins sem
tapaði með fjórum stigum, 102-
106, fyrir heimsúrvalinu.
Jón Arnór setti meðal annars
niður tvo þrista úr fjórum skot-
um, átti eina stoðsendingu og tap-
aði þremur boltum. Félagar Jóns
Arnórs í liði Dynamo St. Péturs-
borg áttu ágætan leik fyrir
Heimsúrvalið sem hafði gott
forskot allan leikinn. Lettinn
Kaspars Kambala var stigahæst-
ur hjá Evrópuúrvalinu með 20 stig
en fjórir leikmenn liðsins skoruðu
meira en Jón í leiknum.
Shammond Williams, þrítugur
bakvörður og leikmaður Unics
Kazan, var valinn besti maður
leiksins en Williams skoraði 20
stig og gaf 6 stoðsendingar á þeim
30 mínútum sem hann spilaði.
Næst á dagskrá hjá Jóni Arnóri
og félögum hans í Dynamo St.
Pétursborg eru undanúrslitariðill
Evrópudeildarinnar -ooj
TÍU STIG Á KÝPUR Jón Arnór Stefánsson
skoraði 10 stig á 21 mínútu í Stjörnuleik
Evrópudeildar FIBA á Kýpur í gær. Hér sést
hann í leiknum. Fréttablaðið/AP