Fréttablaðið - 15.04.2005, Qupperneq 16
TILBÚIN TIL BROTTFARAR
Rússnesk Soyuz-eldflaug stendur tilbúin á
skotpalli sínum í Kasakstan en í dag verð-
ur þremur geimförum skotið þaðan áleiðis
til alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
16 15. apríl 2005 FÖSTUDAGUR
Framkvæmdastjóri Hive:
Byrjar með rafrænan sjónvarpsvísi
SJÓNVARP Fjarskiptafyrirtækið
Hive ætlar að vera með vikulegan
rafrænan dagskrárvísi í tengslum
við sjónvarpsútsendingar sínar
sem hefjast á netinu í vor. Dag-
skrárvísirinn verður unninn í
samstarfi við tölvufyrirtæki og
hafa þegar átt sér stað viðræður
við ýmsa, til dæmis EJS og Tölvu-
dreifingu.
„Hluti af því að vera með góða
framsetningu er að vera með raf-
rænan dagskrárvísi sem fólk get-
ur haft inni á tölvunni sinni. Þar
kemur fram dagskrá vikunnar og
fólk getur fengið yfirlit yfir þætti.
Þetta er hlutur sem við erum að
íhuga hvernig við leysum og von-
andi í samstarfi við aðra aðila sem
eru á markaðnum,“ segir Arnþór
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Hive.
Ekki er gert ráð fyrir að raf-
ræni dagskrárvísirinn heiti neitt
sérstakt. Í hann verður safnað
upplýsingum um dagskrárliði,
hvenær þættir hefjast og hvenær
þeim lýkur, efnistök og bak-
grunnsefni af ýmsu tagi. „Þetta er
nauðsynleg forsenda þess að
tæknin virki eins og henni er ætl-
að,“ segir Arnþór. -ghs
Samningur um nýtt húsnæði í Kópavogi:
Heilsugæsla á brú og bjargi
HEILBRIGÐISMÁL Kópavogsbúar
geta nú státað af nýrri heilsu-
gæslustöð „sem bæði er byggð á
brú og bjargi,“ eins og Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra komst
að orði við undirritun samninga
um nýtt húsnæði fyrir stöðina.
Byggingin stendur á brú þvert
yfir gjána í Kópavogi og verður
heilsugæslustöðin til húsa á efri
hæðinni.
Í nýju stöðinni verður starfs-
aðstaða fyrir sex lækna og rúm-
lega 30 aðra starfsmenn. Þar verð-
ur einnig miðstöð heimahjúkrunar
fyrir Kópavog. Á þjónustusvæði
stöðvarinnar eru um tíu þúsund
íbúar. Húsnæðið sem um ræðir
hefur verið tekið á leigu og verður
innréttað eins og þörf krefur.
Í Kópavogi eru fyrir tvær
heilsugæslustöðvar, önnur í Sala-
hverfi sem tekin var í notkun á
liðnu ári og heilsugæslustöðin í
Smárahvammi sem tekin var í
notkun 1999. - jss
VIÐSKIPTI Fjárfestingarbankinn
Straumur seldi í gær um 38 pró-
senta eignarhlut sinn í Trygginga-
miðstöðinni (TM). Kaupendur
hlutarins eru Sund, sem er í eigu
fjölskyldu Óla heitins í Olís (20
prósent), Fjárfestingarfélag
sparisjóðanna (12,9 prósent) og
Höfðaborg ehf. (5 prósent) sem er
í eigu Péturs Guðmundssonar
verktaka í Eykt ehf. Voru átta
milljarðar króna greiddir fyrir
hlutabréfin. Söluhagnaður
Straums gæti verið um 2,2 millj-
arðar króna en viðskiptin eru háð
samþykki Fjármálaeftirlitsins.
Straumur var með tvær stórar
stöður í fjármálafyrirtækjum,
annars vegar í Tryggingamiðstöð-
inni en hins vegar um fimmtungs-
hlut í Íslandsbanka. Það var vitað
að félagið gæti ekki verið með
virkan eignarhlut á báðum þess-
um vígstöðvum því að Fjármála-
eftirlitið setti það sem skilyrði
fyrir samþykki sínu á eignarhlut
Straums í Íslandsbanka að félagið
mætti hvorki eiga beinan né
óbeinan hlut í hvoru félagi til
lengri tíma.
Straumur losar um mikið fé
með sölunni á Tryggingamiðstöð-
inni og gefur honum færi til fjár-
festinga annars staðar. Greining-
ardeild Landsbankans áætlar að
Straumur hafi um 20 milljarða
umleikis til fjárfestinga.
Nokkur óvissa hafði verið í
kringum eignarhald í Trygginga-
miðstöðvarinnar eftir að Straum-
ur keypti þriðjungshlut af Kald-
baki í maí fyrir ári síðan en nú
verða línur skýrari. Sund, sem
verður þar með næststærsti eig-
andi TM á eftir Eyjafjölskyld-
unni, stendur í miklum fjárfest-
ingum með TM og Landsbankan-
um í gegnum Fjárfestingarfélagið
Gretti og eru þessi kaup talin vera
liður í því að binda þetta við-
skiptasamband enn fastari bönd-
um. Sundsmenn líta á kaupin sem
ágætustu fjárfestingu en höfðu
ekkert meira að segja um kaupin.
Stærstu eignir Grettis eru einmitt
í Straumi og svo einnig í Keri og
SH. – eþa
Stjórnarformaður Hive:
Frítt net-
sjónvarp
FJÖLMIÐLAR Hive er í viðræðum við
Popptíví og Skjá einn um að dreifa
sjónvarpsefni þeirra um gervi-
hnött, að sögn Sigurðar G. Guð-
jónssonar stjórnarformanns Hive.
Að auki er Hive að undirbúa frítt
netsjónvarp sem fer í loftið í vor
eða byrjun sumars.
Spurður um það hvort nafn
nýja netsjónvarpsins verði Frí
tíví segir Sigurður að ekkert nafn
sé komið á það. „Ég er bara í ró-
legheitum að vinna fyrir við-
skiptavini mína í Þýskalandi og er
ekkert að velta þessu fyrir mér,“
sagði hann í gær.
- ghs
Aðeins 599 kr.
5 690691 2000
08
14. tbl. 67. árg., 13. ap
ríl 2005.
Aðeins
599 kr.
Lífsreynslusaga • Heil
sa • • Matu
r • Krossgáturg•á~t
Persónuleikaprófið
Er vetrarslenið
að buga þig?
Góð ráð
til að auka
orkuna
Hættar
að fara
í ljós
Brynja
Valdimars-
dóttir úr Idol-
Stjörnuleit
var ættleidd
frá Sri Lanka
að vera
Íslendingur
Við hvað
starfa þær?
Skoðaðu
týpurnar!
Lagar ungbarnakveisu
með Bowen-tækni!
Bestu staðirnir
til stefnumóta!
Heppin
Öðruvísi
sumarfrí
4 ævintýrakonur
Það sem þú
vissir ekki!
Bjarni
Ármannsson
0 Vikan14.t
bl.'05-1 1
.4.2005 11
:52 Page 1
Náðu í eintak á næsta sölustað
ý og fersk í hve
rri viku
M
YN
D
A
P
ARNÞÓR HALLDÓRSSON HJÁ HIVE
Hive verður með vikulegan rafrænan dag-
skrárvísi í tengslum við sjónvarpsútsend-
ingar sínar sem hefjast á netinu í vor.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
UNDIRRITUN
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og
fulltrúar fyrirtækisins Ris ehf. undirrituðu
samning um leigu á húsnæði heilsugæsl-
unnar í Kópavogi.
FIMM STÆRSTU EIGENDUR
Í TRYGGINGAMIÐSTÖÐINNI
NAFN EIGNARHLUTUR Í %
Fram ehf. 33,17
Sund ehf 20,00
Fjárfestingarfélag sparisjóðanna 12,90
Ísfélag Vestmannaeyja hf. 9,95
Höfðaborg ehf. 5,00
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN
Straumur er ekki lengur stærsti hluthafinn í Tryggingamiðstöðinni eftir að Sund ehf., Fjár-
festingarfélag sparisjóðanna og Höfðaborg ehf. keyptu eignarhlut hans. Kaupverðið er um
átta milljarðar króna. Söluhagnaður Straums gæti verið um 2,2 milljarðar króna.
Straumur selur
fyrir átta milljarða
Sund ehf. verður næststærsti hluthafinn í Tryggingamiðstöðinni á eftir Eyja-
fjölskyldunni. Fjármálaeftirlitið hafði úrskurðað að Straumur gæti ekki átt
virkan eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni og Íslandsbanka til lengri tíma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.