Fréttablaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 49
FÖSTUDAGUR 15. apríl 2005
Nýtt kortatímabil
að Hlíðarsmára 11
Re
yk
jan
es
br
au
t
Sm
ár
ah
va
m
m
sv
eg
ur
Hl
íða
sm
ár
i
Smáralind
LAGERSALAN
hefst í dag!
Opnunartími
mán-fös 14-19
laugard og sunnud 13-18
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
28
04
1
0
4/
20
05
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
Corolla - Tilfinningin er góð
Verð frá 1.755.000 kr.
Tíminn er ekki það eina sem flýgur
þegar þú ekur Corolla
Corolla er ríkulega hlaðin staðalbúnaði. Þar má nefna fjóra loftpúða fyrir
ökumann og farþega, ABS-hemlakerfi, krumpusvæði, Optitronmæla í
mælaborði og útvarpsfjarstýringu í stýri. Það er sama hvaða gerð af
Corolla höfðar til þín. Frábær hönnun, öryggi, framúrskarandi aksturs-
eiginleikar og frábært verð einkenna þær allar. Taktu skynsamlega
ákvörðun. Komdu og reynsluaktu Corolla.
og vitum að því fylgir dirfska og
fjör þegar slett er úr klaufunum,
en ef eitthvað fer úrskeiðis er sök
sett á allan hópinn. Það er ósann-
gjarnt.“
Jafnrétti er hamingjan
Vigdís hefur ekki farið í grafgöt-
ur með álit sitt á landsspjöllum,
enda mikill náttúruverndarsinni.
„Við eigum ekki þetta land,
heldur þeir sem koma á eftir
okkur. Við verðum að fara mjög
varlega í öllu sem lýtur því að
skemma landið.
Manneskjan er skynsöm og
ætti að geta fundið upp annað til
að byggja upp atvinnuvegi og
framtíð fólks en að höggva svo
nærri náttúrunni. Svarið felst
ekki í álverum og það er tvímæla-
laust tímabært að staldra við og
hugsa um framhaldið á öðrum
nótum.“
Kvennabarátta hefur einnig
verið Vigdísi hugleikin. Hún segir
konuna ekki farna fram úr sjálfri
sér í framapoti eða vera að kikna
undan kröfum þjóðfélagsins.
„Þetta er nýtt lífsmunstur
fyrir konuna, en við verðum að
þrauka. Það er enginn vafi á að
enn er miklu meira lagt á konuna
en karlinn. Konum er enn haldið
niðri í launum, sem er hrikalega
auðmýkjandi og rýrir sjálfs-
myndina. Konur verða að mennta
sig og standa körlum jafnfætis
andlega jafnt sem þekkingarlega
til að breyta þessu. Þjóðfélagið
verður miklu hamingjusamara
þegar það finnur að jafnrétti
hefur náðst og hamingjan er það
dýrmætasta sem við eigum,“
segir Vigdís og skilgreinir ham-
ingjuna betur.
„Hamingja er að komast hjá
því að óánægja nagi mann innan
frá.
Hamingja er líka að sjá verk
manns, hugðarefni og hugsjónir
verða að veruleika, og hamingja
er að sjá litlu börnin vaxa og
finna að maður er að gefa þeim
það besta.“
Virkjun gamla fólksins
Þegar Vigdís er spurð hví hún er
alltaf svo fögur segir hún það
engu einu að þakka. Hún hafi
aldrei lagst undir hnífinn til að
líta betur út, en geri kínverskar
leikfimiæfingar Gunnars Eyjólfs-
sonar, fyrir orkuna.
„Ég er svo lánsöm að eiga stór-
an heim og hugsýnir að vinna að.
Held að yngingarmeðalið sé í
höfði okkar. Í útlöndum er ég
aldrei spurð um aldur, en hér
velta menn honum mikið fyrir
sér. Það er hryggilegt að eldra
fólki hefur verið ýtt í sérbás en
ég trúi að fólk átti sig brátt á að
nýta krafta elstu kynslóðarinnar.
Gamla fólkið býr yfir svo mikilli
reynslu og ég vil sjá það virkjað í
skólum, svo börnin kynnist elstu
kynslóðinni, heyri af sögum þess
og hugarheimum.“
Farið fyrir horn
Vigdís fagnar afmælisdeginum á
ráðstefnunni „Samræður menn-
ingarheima“ sem Stofnun Vigdís-
ar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum stendur fyrir í til-
efni afmælisins. Á ráðstefnunni
munu framámenn og virtir sér-
fræðingar víðs vegar að úr heim-
inum fjalla um hnattvæðingu og
fjölbreytileika menningar og
tungumála.
Vigdís býr nú á Íslandi mest-
allt árið, í indælu nábýli við dótt-
ur sína, tengdason og ömmustelp-
urnar tvær. „Það skiptir máli að
eignast börn. Lífið hefði verið
mér tómt ef ég hefði ekki eignast
dóttur mína. Það gefur lífinu
gífurlegt gildi að fá að fylgjast
með börnum, því sem er nýtt og
fá að vera með í fjörinu. Ævin
hefur verið viðburðarík og
skemmtileg, oftast háð tilviljun-
um. Ég hef alltaf verið að fara
fyrir horn, en það haft svo mikinn
tilgang að ég hef smitast með og
ekki annað getað en fylgt því
eftir,“ segir afmælisbarnið Vig-
dís, sem alltaf verður Vigdís for-
seti í hugum landsmanna. ■