Fréttablaðið - 15.04.2005, Side 55
Nýjasta mynd Michaels Winter-
bottom, 9 songs, gengur ansi
langt með opinská kynlífsatriði
svo ekki sé sterkara að orði kveð-
ið. Hún fjallar í stuttu máli um
Matt og Lisu sem eiga í ástríðu-
fullu sambandi og tjá tilfinningar
sínar gagnvart hvort öðru með
„eðlilegum“ hætti, í gegnum kyn-
líf sitt. Auk þess fara þau á
rokktónleika og það kemur fyrir
að þau neyti ólöglegra vímuefna.
Kvikmyndin leggur þó áherslu á
kynlífsathafnir Matt og Lisu auk
rokktónleikana. Fjöldi þekktra
tónlistarmanna kemur fram í
myndinni og má þar nefna Franz
Ferdinand, Bobby Gillespie, for-
sprakka Primal Scream, og Super
Furry Animals.
Kynlífsatriðin í myndinni birt-
ast á hvíta tjaldinu á algjörlega
nýjan hátt. Þau eru sýnd á þá vegu
að þeir sem farnir eru að stunda
kynlíf ættu að geta tengt ein-
hverja athöfn í myndinni við sína
eigin kynlífsreynslu.
Að stunda kynlíf er í hugum
flestra eðlilegur tjáningarmáti
tveggja einstaklinga sem þykir
vænt um hvorn annan. Klámmynd-
ir, seldar í lokuðum klámbúllum,
reyna eftir fremsta megni að
brengla þessa hugmynd með öfug-
uggahætti. Reyna að græða á þess-
um frumkrafti mannkynsins með
uppblásnum dúkkum og íturvöxn-
um kraftajötnum. 9 Songs er ekki
klámmynd því hún sýnir kynlífinu
þá virðingu sem það á skilið. Hún
er einmitt svar kvikmyndanna við
klámmyndum.
Leikarar myndarinnar, Kieran
O’Brien og Margot Stilley, eiga
hrós skilið fyrir hugrekki sitt.
Leikur þeirra beggja er bæði trú-
verðugur og eðlilegur, hvort sem
þá er átt við samtölin eða ástar-
atlot þeirra. Winterbottom fær
sömuleiðis klapp á bakið fyrir
dirfsku sína. Að vilja gera mynd
um kynlíf án þess að láta það vera
tilgerðarlegt.
Það verður þó ekki komist hjá
því að vara suma við myndinni.
Hún særir án efa blygðunarkennd
þeirra sem telja kynlífið eingöngu
eiga heima inni í svefnherberginu
en ekki á hvíta tjaldinu. Þeir ættu
að láta það vera að fara á þessa
sýningu.
Freyr Gígja Gunnarsson
35FÖSTUDAGUR 15. apríl 2005
Klámmynd eða óður til kynlífs?
9 SONGS
SÝND Á IIFF 2005 KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI
LEIKSTJÓRI: MICHAEL WINTERBOTTOM
AÐALHLUTVERK: KIERAN O'BRIEN OG MARGOT STILLEY
NIÐURSTAÐA: Það verður ekki hjá því komist að vara suma við myndinni en 9 Songs er þó ekki
klámmynd því hún sýnir kynlífinu þá virðingu sem það á skilið.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Það verður heilmikið að gerast á
IIFF-kvikmyndahátíðinni um helg-
ina en í kvöld klukkan 22.30 verður
hin umdeilda 9 Songs frumsýnd í
Háskólabíói að viðstöddum einum
aðalleikaranum, Kieran O'Brien,
sem mun svara spurningum áhorf-
enda að sýningu lokinni.
Á laugardaginn verður svo gala-
frumsýning á nýjustu mynd hins
spænska Pedro Almódóvar, La
Mala educacion. Sýningin hefst
klukkan 18.30 og aðalleikari henn-
ar, Fele Martines, mætir á staðinn
og kynnir myndina.
Þá er frumsýningin á heimildar-
myndinni Omagh ekki síður athygl-
isverð. Myndin segir frá eftirmál-
um bílsprengjutilræðis í Omagh á
N-Írlandi árið 1998 en 29 manns
fórust og 300 særðust í árásinni.
Sýningin hefst klukkan 20 í Há-
skólabíói að viðstöddum Michael
Gallagher og Gerard McSorley, að-
alleikara myndarinnar og einnar
aðalpersónunnar en Gallagher
missti son sinn í árásinni.
Heimildarmyndin Bítlabærinn
Keflavík verður sýnd í Sambíó í
Keflavík klukkan 20 í kvöld. Leik-
stjórinn Þorgeir Guðmundsson
verður viðstaddur sýninguna og
allar hetjurnar úr Keflavík mæta í
partí á eftir.
Á sunnudagskvöld klukkan 20
verður myndin Bomb the System
sýnd í Regnboganum og munu höf-
undar hennar, Adham Bhala Lough
og Mark Webber, svara spurning-
um áhorfenda. Þetta er sannkölluð
New York-mynd um og eftir ungt
fólk sem lifir á jaðrinum í borginni
sem aldrei sefur. Að meðaltali sér
meðalmaður i New York um það bil
50 graffiti-myndir á dag, en fólk
nemur aldrei staðar til að velta
fyrir sér sögunum á bak við þessi
listaverk. Hér er sjónum beint að
þessu menningarfyrirbæri. ■
PEDRO ALMÓDÓVAR Nýjasta mynd
þessa spænska æringja verður frumsýnd
með pompi og prakt á laugardaginn.
Spurningar og svör á IIFF