Fréttablaðið - 23.06.2005, Page 68
40 23. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Halldór Sighvatsson hljómlistar-
maður býr til alveg sérstaka kjöt-
súpu sem hann nefnir sem sína
uppáhalds uppskrift. „Ég verð að
nefna kjötsúpuna mína, þó hún sé
kannski ekki mjög sumarleg, því
hún er rosalega góð á bragðið og í
algjöru uppáhaldi hjá heimilis-
fólki,“ segir hann um ástæðuna.
Halldór segist elda oft heima
hjá sér og hann hafi mjög gaman
að matargerð almennt. Það hefur
ekki alltaf verið auðvelt fyrir hann
að finna hráefni við hæfi því hann
er með óþol fyrir öllum kúaafurð-
um. Slíkt kallast mjólkuróþol og
fólk sem þjáist af því getur ekki
neytt mjólkurafurða eins og venju-
legrar mjólkur, jógúrts og osta.
„Í dag er þó ekkert mál að
sneiða hjá mjólkurvörum og ég
nota sojavörur mjög mikið í stað-
inn. Matvöruverslanir eru í
mikilli sókn hvað þetta varðar og
það eru ekki lengur bara sérhæfð-
ar verslanir sem selja sojavörur.
Til dæmis bjóða nágrannar mínir í
Nóatúni og Nettó upp á gott
úrval,“ segir hann.
Dæmi um hvernig hann notar
sojasost í matargerð er grilluðu
tómatarnir hans. „Tómatarnir eru
skornir í tvennt og ég tek aðeins
innan úr þeim. Svo set ég nokkra
dropa af kryddsósu, til dæmis
Nandos peri-peri, og fylli síðan
tómatinn með sojaosti, Cheddar
eða Mozzarella. Þetta grilla ég þar
til tómaturinn og fyllingin eru
orðin vel heit.“
Ráð Halldórs til þeirra sem
hafa mataróþol er að láta sér ekki
fallast hendur því lausnirnar séu
úti um allt. „Fyrir þá sem eru að
uppgötva að þeir séu með
mjólkuróþol get ég bent á að ef
þeim finnist asískur matur góður
þekkjast mjólkurvörur ekki í
asískri matargerð.“
Mjólkurleysi er hægt að bæta
upp með öðrum hráefnum og er
aðalatriðið að láta hugmyndaflug-
ið ráða. „Í kjötsúpunni eru allar
magntölur byggðar á tilfinningu
en ekki nákvæmum fræðum.
Stundum nota ég mjög mikið
grænmeti og verður þá úr það
sem börnin á heimilinu kalla
grænmetiskássuna hans pabba,“
segir Halldór.
SPUNAKJÖTSÚPAN HANS
HALLA
6-800 g svínakjöt (hnakkasneiðar) en má
örugglega nota hvaða kjöt sem er.
1 laukur
2 hvítlauksrif (eða meira)
2 teningar gerlaus grænmetiskraftur 2
dósir niðursoðnir tómatar skornir í ten-
inga eða maukaðir
1 lítri vatn
2 gulrætur
1 paprika (hálf rauð og hálf gul)
250 g spergilkál
250 g kúrbítur
Smakkist til með Herbamare kryddsalti
og svörtum pipar.
Brúnið kjötið og laukinn í
pottinum og setjið marinn hvítl-
aukinn út í. Svo eru niðursoðnu
tómötunum, vatninu og kraftin-
um bætt við. Látið þetta sjóða í
45 mínútur.
Því næst er restinni af græn-
metinu, skornu í hæfilega bita,
skellt saman við og allt saman
látið sjóða í 10 mínútur til við-
bótar.
Súpan er svo smökkuð og
krydduð til og gott er bjóða upp
á hvítlauksbrauð með.
HALLDÓR SIGHVATSSON Þykir mjög gaman að elda og matreiðir gjarnan ítalskan mat. Þá hikar hann ekki við að skipta hefðbundum
mjólkurvörum út fyrir sojavörur.
NR. 24 - 2005 • Verð kr. 499
9 771025 956009
STÆRRA BLAÐ - NÝTT VERÐ
23.-29.júní
Jón Ásgeir og Ingi
björg
Pálma lifa ótrúleg
u þotulífi:
Aldrei heima
hjá sér!
Fljúga úr ein
u partíi í ann
að!
GEISLUÐU AF ÁST!
BARA 499 KR.
HVAÐ KOM
FYRIR JÓN
ÓLAFSSON?
SJÁIÐ
HANA Í
AFRÍKU!
Sjónvarpsstjarnan Sirrí:
SJÁIÐ LÚXUSNEKKJUNA
ONE O ONE!
LÍFIÐ ER
KABARETT!
Kolbrún Halldórsdóttir
opnar dyrnar:
Brúðkaup Loga og Svanhildar:
Kúl í
Kenýa
GERIR LÍFIÐ SKEMMTILEGRA
!
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Hafragrautar. Hann er yfirleitt mín
fyrsta máltíð.
Fyrsta minningin um mat? Pönnu-
kökur hjá ömmu. Hún bakaði frábærar
pönnukökur sem mér fannst rosalega
góðar og fyrsta minningin er sú að eitt
sinn borðaði ég þær þangað til að ég
gubbaði.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Lúða í rjómalagaðri appelsínusósu.
Mamma eldar hana yfirleitt á milli jóla
og nýárs þegar allir eru komnir með
nóg af kjöti.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur? Já, mér finnst sellerí hræði-
lega vont. Það er eitthvað við það sem
er eins og eitur í mínum munni.
Leyndarmál úr eldhússkápnum?
Ég elda besta lambalæri í heimi. Ég
set það í stóran járnpott og fylli svo
pottinn með kartöflum, rófum og öðru
grænmeti. Svo set ég lok á pottinn og
hann inn í ofn við 200˚C í 2 klukku-
stundir. Þá fer ég út og hleyp tuttugu
kílómetra og það er tilbúið þegar ég
kem til baka. Sérstaklega gott eftir
hlaupið því þá er ég svo svangur.
Hvað borðar þú þegar þú þarft að
láta þér líða betur?
Harðfisk með smjöri. Helst steinbít.
Hvað áttu alltaf í ískápnum?
Ég á alltaf kaldar appelsínur. Ég vil
geyma appelsínurnar í ísskáp frekar en
á borðinu
því mér
finnst
þær
best-
ar
kald-
ar.
Ef þú yrðir fastur
á eyðieyju, hvaða rétt myndir þú
taka með þér? Bara nóg af vatni.
Hvað er það skrítnasta sem þú
hefur borðað? Ég borðaði einu
sinni kanínu í París og svo krókódíl í
New Orleans. Í bæði skiptin var mat-
urinn samt óskaplega venjulegur,
það var bara tilhugsunin sem var
skrýtin.
MATGÆÐINGURINN HLYNUR ÁSKELSSON, CERES 4, TÓNLISTARMAÐUR
WOODBRIDGE: Eftir
meistara Mondavi
Woodbridge Cabernet Sauvignon eftir meistara
Robert Mondavi er djúpkryddað með keim af
súkkulaði og anís, sem gefur víninu lakkrís-
kenndan þokka. Vínið er þroskað í litlum
eikartunnum sem gefa víninu mjúkan eikarkeim
og langt lifandi eftirbragð. Vínið hentar vel með
nautakjötssteikum og vel krydduðu rauðu kjöti.
Yndislegt með súkkulaði og eftirréttum. Sérstak-
lega gott með ostum.
Verð í Vínbúðum 1.290 kr.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
:
G
VA
Hleypur á me›an lambi› eldast
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Mjólkuróþol engin hindrun
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
MALESAN:
Bordeaux
á góðu verði
Malesan Bordeaux er vandað vín
sem gert er úr þrúgunum caber-
net sauvignon, merlot og cabernet
franc eða hinni klassísku Bord-
eaux-blöndu. Vínið hefur fallegan
blárauðan lit, er með fínlega
blómaangan og vott af ávöxtum.
Mýkt og góður þroski vínsins stað-
festir hvað vínið er þægilegt og auð-
velt drykkjar. Þetta vín fer frábærlega
með svínakjötinu hvort heldur sem það er
grillað eða steikt, en einnig er hægt að
njóta Malesan með dökku kjöti og mildum
ostum.
Verð í Vínbúðum 1.090 kr.
- mest lesna blað landsins
Á MÁNUDÖGUM
Fasteignaauglýsingar sem fara
inn á 75% heimila landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is