Fréttablaðið - 18.07.2005, Page 2
2 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Alvarleg líkamsárás á Ísafirði um helgina:
Me›vitundarlaus eftir fólskulega árás
LÖGREGLUMÁL Tveir menn á þrí-
tugsaldri gengu í skrokk á manni
fyrir utan skemmtistaðinn Krús-
ina í miðbæ Ísafjarðar um
þrjúleytið aðfaranótt sunnudags.
Maðurinn var fluttur meðvitund-
arlaus á slysadeild sjúkrahússins
á Ísafirði eftir árásina.
Hinir meintu árásarmenn voru
fluttir á lögreglustöðina á Ísafirði.
Þeir virtust ósárir eftir átökin.
Mennirnir voru yfirheyrðir fram
eftir degi en var sleppt úr haldi
síðdegis í gær en liggja áfram
undir grun í málinu.
Lögreglan á Ísafirði rannsakar
nú tildrög árásarinnar og vildi
ekki gefa frekari upplýsingar um
ástæður hennar síðdegis í gær. Á
næstu dögum fara fram frekari
yfirheyrslur vegna málsins.
Fram eftir sunnudeginum var
fylgst náið með líðan fórnar-
lambsins, sem er á þrítugsaldri,
og fékk það að fara heim eftir há-
degi í gær. Honum heilsast vel
eftir atvikum að sögn lögreglu.
- ifv
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson um orð Össurar:
R-listinn er a› li›ast í sundur
STJÓRNVÖLD Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn, segir
orð Össurar Skarphéðinssonar
athyglisverð.
„Það vekur að sjálfsögðu at-
hygli að einn helsti þungavigtar-
maður Samfylkingarinnar og
fyrrum formaður skuli í tvígang
fjalla ítarlega um framboðsraun-
ir R-listans á vefsíðu sinni og
leggja á ráðin um á hvern hátt
best væri fyrir Samfylkinguna
að komast út úr þessum vanda.“
Vilhjálmur segir umræðuna
veikleikamerki á R-listanum.
„Þetta er til marks um að R-list-
inn er að liðast í sundur og sýnir
líka veika stöðu Steinunnar Val-
dísar Óskarsdóttur sem borgar-
stjóra.“ Þar vísar Vilhjálmur til
orða Össurar um að Dagur B.
Eggertsson, óháður borgarfull-
trúi R-listans, gæti orðið borgar-
stjóraefni í opnu prófkjöri.
Yfirlýsing Össurar kemur Vil-
hjálmi þó ekki á óvart. „Það er
ekki skrýtið að Steinunn Valdís
hafi ekki stuðning Össurar eftir
að hún notaði aðstöðu sína í borg-
arkerfinu til stuðnings Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur í for-
mannskosningunni gegn Össuri. -
- bþs
Yfirl‡singin sög› heimskuleg
Oddvitar samstarfsflokka Samfylkingarinnar í Reykjavíkurlistanum segjast vilja a› nefndin sem nú ræ›ir
áframhaldandi samstarf flokkanna fái vinnufri› til a› ljúka flví starfi. Stefán Jón Hafstein oddviti Sam-
fylkingarinnar er sama sinnis. Árni fiór Sigur›sson segir or› Össurar Skarphé›inssonar heimskuleg.
STJÓRNMÁL Oddvitar flokkanna sem
standa að Reykjavíkurlistanum
gefa lítið fyrir þá skoðun Össurar
Skarphéðinssonar að Samfylkingin
eigi að bjóða fram R-lista hvort
sem samstarfsflokkarnir taki þátt
í framboðinu eður ei.
„Mér finnst yfirlýsing Össurar
í raun vera heimskuleg, það er í
mínum huga ljóst að það verður
ekkert sem heitir R-listi nema að
honum standi flokkarnir sem
stóðu að honum síðast,“ segir Árni
Þór Sigurðsson
oddviti Vinstri
grænna í borg-
arstjórn.
Össur Skarp-
héðinsson, þing-
maður Samfylk-
ingarinnar og
fyrrverandi for-
maður, sagði í
Fréttablaðinu í
gær að hann
væri þeirrar
skoðunar að
Samfylkingin ætti undir öllum
kringumstæðum að bjóða fram
undir merkjum Reykjavíkurlista,
hvort sem samstarfsflokkarnir
vildu vera með eða ekki.
Árni Þór segist undrandi á
þeim misvísandi
skilaboðum sem
koma úr herbúð-
um Samfylking-
arinnar þar sem
allur gangur
virðist vera á
því hvað fólk
ætlist fyrir með
framtíð R-lista-
samstarfs ins .
Hann segir að
honum virðist
S a m f y l k i n g i n
hálfhölt í þessum efnum. Eins
segist Árni Þór vera þeirrar skoð-
unar að eðlilegt sé að leyfa við-
ræðunefndinni sem hefur umræð-
ur um áframhaldandi samstarf á
sínu borði að fá vinnufrið til að
ljúka því starfi, enda hafi hún
fullt umboð til þess.
Alfreð Þorsteinsson, oddviti
Framsóknarmanna, segir eðlilegt
að menn spari yfirlýsingarnar á
meðan málið er á borði viðræðu-
nefndarinnar, þar sé málið í
ákveðnu ferli og rætt um sam-
starf á sama grunni og verið hef-
ur. Á meðan verið sé að ræða
þessi mál ætlar hann í það
minnsta sjálfur að spara digur-
barkalegar yfirlýsingar.
Stefán Jón Hafstein, oddviti
Samfylkingarinnar, í borgarstjórn
tekur í sama streng og segir um-
boð viðræðunefndarinnar skýrt
og að það beri að virða. Umboð
hennar komi úr baklandi flokk-
anna og því ekki eðlilegt að aðrir
skipti sér að því.
Fulltrúar viðræðunefndarinn-
ar hafa lýst því yfir að þeir muni
ekki tjá sig frekar um málið við
fjölmiðla að svo stöddu. Nefndin
er nú í stuttu sumarfríi en síðasti
fundur var haldinn fyrir réttri
viku. Búist er við því að hún komi
aftur saman snemma í næsta
mánuði og að línurnar skýrist
fljótlega eftir það.
Skiptar skoðanir virðast innan
allra flokkanna um það hvort
halda beri samstarfinu áfram.
oddur@frettabladid.is
Alvarlegt slys:
Kasta›ist tólf
metra út úr bíl
SLYS Tvítugur maður slasaðist al-
varlega í bílveltu við Gljúfur-
foss, um 10 km frá Seyðisfirði,
aðfaranótt sunnudags.
Maðurinn var einn á ferð er
hann missti stjórn á bifreið sinni
svo að hann lenti utan vegar. Í
veltunni kastaðist hann tólf
metra út úr bifreiðinni
Farið var með manninn á
sjúkrahúsið á Egilsstöðum og í
kjölfarið var hann svo fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Í gærkvöld lá hann þungt
haldinn í öndunarvél á gjör-
gæsludeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss. - ifv
Flugslys í Afríku:
Tugir létust
MIÐBAUGS-GÍNEA, AP Rússnesk flug-
vél hrapaði í frumskógum Mið-
baugs-Gíneu í gær og létust allir
sem voru um borð. Að minnsta
kosti 50 farþegar voru í vélinni,
auk áhafnar.
Vélin hrapaði um 30 kílómetra
suður af höfuðborginni Malabo
skömmu eftir flugtak í gær.
Lík fórnarlamba slyssins
dreifðust um frumskóginn og ótt-
ast björgunarmenn að ekki muni
takast að finna þau öll. Sökum
ófullkominna flugskýrslna er ekki
vitað upp á hár hversu margir
voru í vélinni sem sennilega hefði
aldrei verið hleypt á loft á Vestur-
löndum, enda gamalt hrak frá
kaldastríðsárunum. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
AMFETAMÍN Á AKRANESI Lögregl-
an á Akranesi hafði afskipti af öku-
manni á föstudagskvöldið sem
grunaður var um að hafa fíkniefni í
fórum sínum. Við leit á manninum
fundust tvö grömm af amfetamíni.
Aðfaranótt laugardags handtók lög-
reglan svo þrjú ungmenni vegna
gruns um fíkniefnamisferli og við
húsleit fundust 5,5 grömm af am-
fetamíni. Báðir játuðu að hafa átt
fíkniefnin og var þeim sleppt eftir
yfirheyrslu. Málin teljast upplýst.
64 KM YFIR HÁMARKSHRAÐA
Á laugardagskvöldið stöðvaði lög-
reglan á Akranesi ungan ökumann
innanbæjar á 114 km/klst hraða
þar sem hámarkshraði er 50
km/klst. Hann má því búast við
50.000 kr sekt, sviptingu öku-
réttinda í mánuð og fjórum punkt-
um í ökuferilsskrá.
KVIKNAÐI Í SUMARBÚSTAÐ Laust
eftir klukkan átta í gærkvöld var
tilkynnt um eld í sumarbústað í
Miðfellslandi við Þingvallavatn.
Rétt fyrir klukkan níu var búið
að ráða niðurlögum eldsins. Eng-
inn var í bústaðnum þegar eldur-
inn kviknaði. Sumarbústaðurinn
er hins vegar talinn ónýtur. Elds-
upptök eru ókunn.
Viltu hætta að reykja?
Við getum aðstoðað þig
NDAÐU
LÉTTAR
800 6030
SPURNING DAGSINS
Stefanía, óttastu ekki a› ykkur
ver›i kalt?
Nei, ég geri nú ekki ráð fyrir því. Hitaveit-
an verður ekki flutt þótt hún kunni að
verða seld.
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar veltir fyrir sér að selja
hitaveitu bæjarins vegna skulda. Stefanía Trausta-
dóttir er bæjarstjóri á Ólafsfirði.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON OG STEFÁN JÓN HAFSTEIN Össur sagði í Fréttablaðinu í gær að hann vildi að Samfylkingin byði fram R-lista,
hvort sem samstarfsflokkarnir vildu vera með eða ekki. Myndin er frá landsfundi Samfylkingarinnar í vor.
ÁRNI ÞÓR SIG-
URÐSSON Segir yf-
irlýsningu Össurar
„heimskulega“.
ALFREÐ ÞORSTEINS-
SON Ætlar að spara
yfirlýsingarnar.
KRÚSIN Á ÍSAFIRÐI Tveir menn á
þrítugsaldri gengu í skrokk á manni
fyrir utan skemmtistaðinn Krúsina á
Ísafirði aðfaranótt sunnudags. Maður-
inn var fluttur meðvitundarlaus á
sjúkrahúsið á Ísafirði í kjölfarið.
VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Segir R-listann vera að liðast í sundur og að greinilegt sé
að Steinunn Valdís njóti ekki stuðnings Össurar.