Fréttablaðið - 18.07.2005, Qupperneq 6
6 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Ísraelsstjórn boðar hörku í samskiptum við Palestínumenn:
Hernum gefinn laus taumurinn
JERÚSALEM, AP Ariel Sharon for-
sætisráðherra Ísraels sagði í
gær að öllum brögðum yrði beitt
til að stöðva palestínska upp-
reisnarmenn. Hann vill tryggja
að áætlanir um brottflutning ís-
relskra landtökumanna á Gaza
gangi sem allra best.
Þúsundir ísraelskra her-
manna hafa nú komið sér fyrir
við landamæri Gaza-strandar-
innar og bíða skipunar um að
ráðast til atlögu. Óttast er að
palestínskir uppreisnarmenn láti
hins vegar hart mæta hörðu og
hefni sín grimmilega ef herinn
ræðst á heimastjórnarsvæðið.
Mahmoud Abbas forseti
Palestínu lét lögreglumenn fjar-
lægja fána öfgasamtaka og sagð-
ist ekki mundu líða að grafið yrði
undan ríkisstjórn hans. Öfga-
samtök hafa undanfarna daga
staðið fyrir stórfelldum loft-
skeytaárásum á ísraelsk skot-
mörk og hafa sex Ísraelar fallið í
þeim síðan á fimmtudag. Svo
virðist sem vopnahléssamning-
urinn síðan í febrúar sé að verða
að engu.
Í gærmorgun var svo einn
leiðtogi Hamas-samtakanna ráð-
inn af dögum og segja vitni að
menn á vegum Ísraelsstjórnar
hafi framið morðið. Hamas-liðar
hóta hefndaraðgerðum. ■
Ferðum strætisvagna um Suðurgötu fjölgar:
Íbúarnir sárir og rei›ir
SAMGÖNGUR Með breyttu leiðar-
kerfi Strætó, sem tekur gildi á
laugardag, fjölgar ferðum
strætisvagna um Suðurgötu í
Reykjavík, íbúum götunnar til
sárrar óánægju.
„Þetta verður hryllilegt,“
segir Benedikt Stefánsson sem
býr við Suðurgötu. Hann segir
það skjóta skökku við að nýbúið
sé að þrengja götuna og gera
hana fína og hleypa svo á hana
jafn tíðri umferð strætisvagna
og raun ber vitni.
Nýja leiðarkerfið gerir ráð
fyrir að um Vonarstræti og Suð-
urgötu verði helsta æð vagn-
anna út úr miðborginni og
hlaupa ferðir þeira þar um á
tugum á hverri klukkustund.
„Við höfum margsinnis kvart-
að undan þeirri umferð strætis-
vagna sem þegar er um götuna,“
segir Benedikt og vitnar til sam-
þykkta og bréfasendinga húsfé-
laga og einstaklinga. Ekkert
mark hefur verið tekið á þeim
umkvörtunum, þvert á móti mun
strætisvagnaumferðin þyngjast.
Benedikt óttast að þung um-
ferð strætisvagna muni hafa
áhrif á fasteignaverð við götuna
eins og oft er raunin þar sem
umferð er þung. - bþs
SJÁVARÚTVEGUR Talsverð spurn er
eftir hrefnukjöti þessa dagana og
er hún jafnvel meiri en framboð-
ið. Hrefnuveiðimenn vonast eftir
góðu veðri, bæði til að veiðarnar
glæðist og betri aðstæður skapist
við grillið.
„Fólk vill hrefnuna helst á
grillið yfir sumartímann og það er
auðvitað út af því hvað hún er
bragðgóð sem hún selst svona
vel,“ segir Gunnar Bergmann, hjá
Félagi hrefnuveiðimanna, en
hrefnukjöt hefur verið boðið til
sölu í ýmsum matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu að undan-
förnu.
Gunnar segir að kjötið sem
býðst núna, sé kjöt af þeirri
hrefnu sem nú veiðist í vísinda-
skyni við strendur landsins en
þegar hafa veiðst sjö dýr og enn
er veitt. Misjafnlega hefur viðrað
til veiða að undanförnu. Nú vonast
hann eftir góðu grillveðri svo
hægt verði að selja enn meira af
hrefnu.
Vísindaveiðar á hrefnu hafa
staðið undanfarin ár en í ár stend-
ur til að veiða þrjátíu og sjö dýr
og lýkur þar með kafla hrefnu-
veiða í vísindaskyni í bili. Ekki er
útlit fyrir að þær verði heimilaðar
í atvinnuskyni enda engar veiðar
heimilaðar nema með samþykki
Alþjóðahvalveiðiráðsins sem
felldi allar tillögur þess efnis á
ársfundi sínum á dögunum.
„Eftirspurnin eftir kjötinu er
meira en framboðið. Við höfum
verið að fara allt að tvisvar á dag
með hrefnukjöt í verslanir þar
sem það hefur selst upp eins og til
dæmis í Nóatúni og það er
ánægjulegt. Það er auðvelt að sjá
að landanum líkar þetta vel. Það
er nóg eftir ef vel veiðist og við
vonum að landsmenn haldi áfram
að borða hrefnu,“ segir Gunnar
sem er afar ánægður með viðtök-
ur landsmanna á hrefnunni enda
segir hann að hún sé lostæti sem
slái hvaða grillkjöti sem er við.
Hver hrefna gefur af sér um
átta hundruð kíló af kjöti og þar af
eru þrjú hundruð sem fara beint í
kjötborð matvöruverslana en af-
gangurinn er frystur og selst
þannig í stórmörkuðunum hér
heima. hjalmar@frettabladid.is
JUSUF KALLA Varaforseti Indónesíu lýsti
yfir á blaðamannafundi í Helsinki í gær að
von væri á friði í Aceh-héraði.
Aceh-hérað:
Endi bundinn
á deilurnar
HELSINKI, AP Ríkisstjórn Indónesíu
og uppreisnarmenn frá Aceh-hér-
aði sættust á það í gær að skrifa í
næsta mánuði undir formlegt
friðarsamkomulag.
Þar með verður vonandi bund-
inn endi á 29 ára langar blóðugar
deilur sem hafa kostað yfir 15
þúsund manns lífið í þessu héraði
sem kom hvað verst út úr flóð-
bylgjunni á annan dag jóla.
Viðræður milli fylkinganna
hafa farið fram í Helsinki, höfuð-
borg Finnlands, en þar verður
skrifað undir samkomulagið þann
15. ágúst næstkomandi. ■
Festust í grút:
Aflífa var›
tugi sílamáva
SLYS Lögreglan í Reykjanesbæ
þurfti að aflífa um 40 sílamáva í
Sandgerði síðdegis í fyrradag. Síla-
mávarnir höfðu fengið á sig grút
sem óþekkt skip losaði í sjóinn úti
fyrir Sandgerði.
Grútur er mengaður úrgangur
og er álitið siðlegra að aflífa dýr
sem fá hann á sig. Talið er að þau
gangi í gegnum miklar kvalir áður
en þau deyja.
„Sílamávarnir voru vappandi um
höfnina og bæinn allir útataðir í
grúti. Íbúar Sandgerðis aðstoðuðu
okkur við að klófesta þá og sáum við
svo um að aflífa þá,“ segir Sigurður
Bergmann aðalvarðstjóri hjá lög-
reglunni í Reykjanesbæ. ifv
LÖGREGLUFRÉTTIR
MAÐUR HANDTEKINN MEÐ FÍKNI-
EFNI Á SAUÐÁRKRÓKI Lögreglan á
Sauðárkróki handtók sautján ára
mann aðfaranótt sunnudags. Mað-
urinn var með nokkur grömm af
hassi og amfetamíni á sér. Hann
hefur ekki áður komið við sögu lög-
reglunnar. Manninum var sleppt í
kjölfarið og telst málið upplýst.
RYSKINGAR Á BLÖNDUÓSI Tvær
konur lentu í ryskingum á balli á
Blönduósi aðfararnótt sunnudags.
Önnur konan kærði líkamsárás til
lögreglunnar í kjölfarið. Ekki er
vitað um meiðsl þeirra.
BÍLVELTA Á ÓLAFSFJARÐARVEGI
Bílvelta varð á Ólafsfjarðarvegi
milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar að-
faranótt sunnudags. Tveir voru
fluttir á slysadeild. Annar mann-
anna fékk að fara heim að lokinni
skoðun en hinn er ennþá á slysa-
deild með brákaðan hryggjarlið.
FRIENDS
VIRKA DAGA KL. 20:30
SJÓNVARPSSTÖÐIN SIRKUS ER ALLTAF Í ÓLÆSTRI DAGSKRÁ. SIRKUS VERÐUR
SJÓNVARPAÐ Á SÖMU RÁS OG POPP TÍVÍ VAR. ÁSKRIFENDUR DIGITAL ÍSLAND
ÞURFA AÐ UPPFÆRA MYNDLYKILINN TIL AÐ SJÁ POPP TÍVÍ ÁFRAM.
FYLGSTU MEÐ.
SIRKUS ER KOMINN Í LOFTIÐ!
Ætlar þú að lesa nýjustu
bókina um Harry Potter?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var verslunum Nóatúns stætt á því að
gefa bjór með gasgrillum í vikunni?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
86,27%
13,73%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Hrefnukjöt á grilli›
selst upp í verslunum
Mikil sala er á hrefnukjöti í matvöruverslunum og dæmi eru um a› hrefnu-
kjöt hafi selst upp í Nóatúni. Vísindavei›um á hrefnu l‡kur a› flessu vei›i-
tímabili loknu og flví fer hver a› ver›a sí›astur a› kaupa sér hvalkjöt.
HREFNAN ROKSELST Mikil spurn er eftir hrefnukjöti þessa dagana enda þykir hvalurinn
góður á grillið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
HAMAS-LIÐI Á BLAÐAMANNAFUNDI Ham-
as-liðar hafa lofað því að láta hart mæta
hörðu. Nú er einnig illska hlaupin í sam-
skipti uppreisnarmanna og opinberrar lög-
reglu Palestínumanna.
Eldsvoði í safni:
Listaverkin
björgu›ust
NOREGUR Eldur kom upp í listasafni
Henie Onstad í Høvikodden í Nor-
egi í vikunni. Um hundrað manns
voru í safninu þegar bruninn kom
upp í forstofurými safnsins og
tókst að koma öllum út á örfáum
mínútum.
Í safninu eru geymd listaverk
sem sum hver eru talin ómetan-
leg, þar á meðal málverk eftir
norska málarann Edvard Munch.
Svo vel gekk að slökkva eldinn að
listaverkin skemmdust ekkert,
hvorki af völdum elds né reyks.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
kviknar í Heinie Onstad-safninu en
stórbruni kom þar upp árið 1998. ■
BANDARÍKIN
RÝMING VEGNA GASLEKA
Lögregla í þorpi í York County,
Pennsylvanínu, sá sér þann kost
vænstan að rýma 32 hús eftir að
brennslugas í andrúmsloftinu var
komið talsvert yfir hættumörk. Í
ljós kom að gasleiðsla hafði gefið
sig og að viðgerð lokinni fengu
flestir að snúa til síns heima.
FINGRASKANNI Í DISNEYLANDI
Áform eru uppi um að allir gestir í
Disneylandi verði látnir þrýsta
fingrum sínum á
fingrafaraskanna. Formælendur
garðsins segja að meiningin sé
eingöngu að ganga úr skugga um
hverjir hafi gilda miða en gagn-
rýnendur tiltækisins segja að veg-
ið sé að persónufrelsi með því.
STRÆTÓ Í SUÐURGÖTU Þröngt er á horni Suðurgötu og Vonarstrætis og þurfa strætisvagn-
ar oft að leggja undir sig báðar akreinarnar og hluta gangstéttarinnar að auki til að kom-
ast leiðar sinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
SÍLAMÁVUR
B
RY
N
JÚ
LF
U
R
B
RY
N
JÓ
LF
SS
O
N