Fréttablaðið - 18.07.2005, Page 8
1Hvað heitir nýjasta bókin um HarryPotter?
2Hvar á landinu hlekktist lítilli flugvélá á föstudaginn?
3Hvar ætlar Kári Stefánsson að vinnaí sumarfríinu sínu?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Fyrstu ákærurnar á hendur Saddam Hussein:
Saka›ur um a› hafa fyrirskipa› fjöldamor›
Kjartan Ólafsson:
N‡r Kjalvegur
2007-2008
VEGAGERÐ Áhugamenn um upp-
byggingu Kjalvegar ætla að halda
fund í haust og stofna félag. Í
framhaldi af því hefst undirbún-
ingur að hönnun og fjármögnun
vegarins.
Kjartan Ólafsson alþingismað-
ur segir að gamla vegstæðið verði
að mestu leyti notað og því þurfi
ekki mjög flókið umhverfismat.
Uppbyggður Kjalvegur geti verið
orðinn að veruleika 2007-2008.
„Það þarf að fara í gegnum
veðurfarsupplýsingar og meta
hvað þurfi að byggja veginn hátt
upp,“ sagði hann í Morgunútvarpi
Fréttablaðsins á Talstöðinni í gær.
-ghs
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
16
0
15
HAGKVÆMUR
KOSTUR
FYRIR
GOLFARA
GOLFKORT KB BANKA
Golfkort KB banka er fullgilt kreditkort
sem veitir kylfingum fjölmörg frí›indi
sem tengjast golfi og getur flannig spara›
fleim umtalsver›ar fjárhæ›ir. Allir geta
sótt um Golfkort, hvort sem fleir eru í
vi›skiptum vi› KB banka e›a ekki, á
golfkort.is, í síma 444 7000 e›a næsta
útibúi KB banka.
SÉRBLAÐ UM GOLF
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU 19. JÚLÍ
BAGDAD, AP Saddam Hussein verður
ákærður fyrir fjöldamorð gegn sjí-
um árið 1982. Þetta verður fyrsta
dómsmálið sem höfðað verður gegn
einræðisherranum fyrrverandi.
Raid Juhi, aðaldómari við saka-
dómstólinn sem settur var upp til
að fjalla um glæpi Saddams, lýsti
því yfir í gær að rannsókn væri lok-
ið á fjöldamorðum sem framin voru
á 150 sjíum í þorpinu Dujail,
skammt norður af Bagdad, 8. júlí
1982. Öryggissveitir forsetans
stóðu fyrir aftökunum en skömmu
áður hafði verið reynt að ráða
Saddam af dögum.
Aðrir sem verða ákærðir fyrir
þátttöku í þessum fjöldamorðum
eru Barazan Ibrahim, hálfbróðir
Saddams og yfirmaður öryggislög-
reglunnar, Taha Yassin Ramadan,
fyrrverandi varaforseti, og Awad
Hamed al-Bandar, sem var á þess-
um árum embættismaður Baath-
flokksins í Dujail. Verði fjórmenn-
ingarnir fundnir sekir gæti dauða-
dómur beðið þeirra. Dómstóllinn
hefur hálfan annan mánuð til að
ákveða hvenær réttarhöldin hefj-
ast.
Juhi sagði að rannsókn annarra
glæpa sem Saddam er grunaður um
að hafa framið muni ljúka á næstu
vikum. Þar á meðal eru svonefnd
Anfal-aðgerð gegn Kúrdum á árun-
um 1987-88 en talið er 182.000
Kúrdar hafi týnt lífi í þeim hreins-
unum. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
BÍÐUR DÓMS Verði Saddam fundinn sekur
gæti dauðadómur beðið hans.
BRETLAND 1.700 manns söfnuðust
saman og sviptu sig klæðum í
bænum Gateshead við ánna Tyne
í Norður-Englandi í gær til að
sitja fyrir á ljósmyndum banda-
ríska ljósmyndarans Spencers
Tunick. Margir voru komnir
langt að, til dæmis frá Ástralíu
og Mexíkó.
Tunick er þekktur fyrir ljós-
myndir sínar af stórum hópum
allsnakins fólks. Hann hóf þessa
iðju í New York árið 1992 en síð-
an hefur hann fengið fólk til að
striplast fyrir sig í ýmsum stór-
borgum heimsins. Árið 2003 fékk
hann 7.000 stípalinga til liðs við
sig í Barcelona.
Allir sem sitja fyrir hjá hon-
um fá áritaða mynd að launum. ■
Ljósmyndarinn Spencer Tunick í Bretlandi:
Á anna› flúsund svipti sig klæ›um
STRIPLAST Í GATESHEAD 1.700 manns
sátu fyrir á ljósmyndum Tunicks í gær.