Fréttablaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 12
Sumarið 1886 kom hópur manna saman á Grund í Eyjafirði í því augnamiði að stofna Pöntunarfélag Eyjafjarðar og hálfu ári síðar var nafni félagsins breytt í Kaupfélag Eyfirðinga. Lungann úr síðustu öld var KEA stórveldi í íslensku við- skiptalífi og hentu ýmsir að því gaman að KEA ætti allt á Akureyri, nema Akureyrarkirkju. Vissulega átti KEA ekki kirkjuna en lagði þó drjúgan skerf til byggingar henn- ar. Starfsemi kaupfélaga, hringinn í kringum landið, þandist út þegar líða tók á síðustu öld og var KEA eitt helsta flaggskip Sambands ís- lenskra samvinnufélaga Félagið kom ekki einungis að verslun með varning af öllum toga heldur var Kaupfélag Eyfirðinga umsvifamik- ið í iðnaði, úrvinnslu landbúnaðar- afurða, útgerð og fiskvinnslu. Verulega tók að halla undan fæti hjá kaupfélögunum á síðustu tveimur áratugum 20. aldarinnar. Kaupfélögunum tókst ekki að laga sig að nýrri hugsun í verslunar- rekstri, og viðskiptum almennt, og mörg þeirra fóru í þrot. Árið 1998 voru rekstrartekjur Kaupfélags Eyfirðinga 10,6 millj- arðar króna. Afskriftir ársins námu 725 milljónum króna og fjár- magnsliðir voru neikvæðir um 660 milljónir. Tapið árið 1998 var 788 milljónir króna og heildar skuldir félagsins í árslok voru sléttir 10 milljarðar króna. Kaupfélag Ey- firðinga var ekki komið að fótum fram en ágjöf undanfarinna ára setti mark sitt á fjárhagslega burði félagsins og í árslok 1998 var eigið fé KEA 2,1 milljarður króna. Undir lok síðustu aldar var stjórnendum Kaupfélags Eyfirð- inga ljóst að umbylta þyrfti rekstri félagsins ef ekki ætti illa að fara. Þeim aðgerðum lauk 1. janúar 2002. Þá urðu vatnaskil í starfsemi KEA með stofnun fjárfestingafé- lagsins Kaldbaks. Eignarhlutur KEA í Kaldbaki var 71,6 prósent en félagið tók við öllum eignum, skuldum og skuldbindingum KEA. Kaldbakur óx og dafnaði og í september 2004 seldi KEA allan eignarhlut sinn til Kaldbaks sjálfs. Í kjölfarið eignaðist Burðarás 77 prósenta hlut í félaginu og var Kaldbakur leystur upp. KEA fékk samtals rúma 3,7 milljarða króna fyrir hlut sinn í Kaldbaki. Þar af var tæpur 2,1 milljarður króna greiddur með hlutafé í Samherja en 1.653 millj- ónir króna í reiðufé fóru á banka- reikninga Kaupfélags Eyfirðinga. Vegna sölunnar á hlut KEA í Kaldbaki var methagnaður af starfsemi félagsins í fyrra eða tæp- ir tveir milljarðar króna og eigið fé í árslok var rúmir fjórir milljarðar. KEA í dag Sem fyrr er Kaupfélag Eyfirðinga áberandi í norðlensku viðskiptalífi en starfsmenn á launaskrá eru ekki lengur á annað þúsund eins og þeg- ar mest var heldur eru þeir þrír: Framkvæmdastjóri, fjárfestinga- stjóri og aðstoðarmaður fram- kvæmdastjóra. Verslunarrekstur og annar beinn atvinnurekstur heyrir sögunni til en félagið á hlut í mörgum fyrirtækjum. Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA út- deilir tugum milljóna árlega til margvíslegra málefna í formi styrkja. Markmið Kaupfélags Eyfirð- inga í upphafi nýrrar aldar er að styrkja atvinnulífið, bæta sam- göngur og hlúa að mennta-, menn- ingar- og íþróttamálum á starfs- svæði KEA sem er Eyjafjörður og Þingeyjarsýslurnar. Félagið er því eins konar blanda af staðbundinni byggðastofnun og átthagabundnu framfarafélagi. Munurinn á KEA og öðrum svæðisbundnum velferð- arfélögum á Íslandi er að í krafti mikils fjárstyrks er KEA kleift að hrinda mörgum stórum málum í framkvæmd á sama tíma. Á undanförnum mánuðum hefur KEA verið áberandi í umræðunni um samgöngubætur í einkafram- kvæmd. Flugvallarframkvæmdir, vegagerð og jarðgöng hafa verið á borði stjórnar KEA undanfarin misseri og segir Benedikt Sigurð- arson, stjórnarformaður KEA, að svo verði áfram. KEA hefur einnig brotið blað hvað varðar aðkomu félags í al- menningseigu að flutningi opin- berra stofnana og verkefna frá höf- uðborgarsvæðinu út á land. KEA er tilbúið að leggja fram hundruð milljóna króna til að fjölga störfum á starfssvæði félagsins. Í því sam- bandi hefur KEA átt í viðræðum við tvö ráðuneyti; viðskipta- og iðnað- arráðuneytið annars vegar og sjáv- arútvegsráðuneytið hins vegar. Nýlega keypti KEA stóra hús- eign á Akureyri sem félagið hyggst bjóða opinberum stofnunum og einkaaðilum afnot af en kaupverð húseignarinnar var rúmar 100 milljónir króna. Þá hefur KEA einnig lýst yfir áhuga á að kaupa Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og flytja starfsemina norður en velta ÍSOR er um hálfur milljarður króna. „Við horfum til allra átta í stöðugri leit að verkefnum sem eflt geta norðlenskt samfélag. Mark- mið okkar er að fjölga störfum, styrkja atvinnulífið, hækka þekk- ingarstig vinnuaflsins og vinna al- mennt að auknum lífsgæðum og fjölgun tækifæra fyrir þá íbúa sem kjósa sér búsetu á starfssvæði KEA” segir Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar Kaupfélags Ey- firðinga. ■ Stórveldi me› flrjá starfsmenn Ferskir vindar blása um starfsemi Kaupfélags Eyfir›inga í upphafi n‡rrar aldar og félagi› fer ótro›nar sló›ir a› flví markmi›i sínu a› bæta búsetuskilyr›i og efla bygg› í Eyjafir›i og fiingeyjars‡slum. Beinn atvinnurekstur KEA heyrir sögunni til en fjárhagslegur styrkur gerir rödd félagsins sterka. Lögreglan rannsakaði ekki vændishring fyrrverandi löggu DV fjallaði fyrst um vændis- hringinn fyrir níu mánuðum Kaupfélag Eyfirðinga hefur stofnað tvö ný einkahlutafélög, Framtakssjóð og Hilding. Hver er tilgangur Framtakssjóðsins? Hlutverk Framtakssjóðsins er að leggja fé í sprotafyrirtæki á starfssvæði KEA en eigið fé sjóðsins er 400 milljónir króna. Þar af eru 100 milljónir króna í formi hlutafjár sem KEA hefur nú þeg- ar lagt nýjum fyrirtækjum til en 300 milljónir króna eru í formi peninga. Stuðningur Framtakssjóðs einskorðast ekki við einn atvinnuveg frekar en annan. Hver eru markmið Hildings? Hildingur þýðir konungur eða hermað- ur en markmið félagsins er að fjárfesta í rótgrónum fyrirtækjum. Eigið fé Hild- ings er 1200 milljónir króna; 400 millj- ónir króna í formi hlutafjár í fyrirtækj- um á Norðurlandi og 800 milljónir króna í peningum. Þegar sýnt er að fyrirtækin sem Hildingur og Framtaks- sjóðurinn fjárfesta í eru orðin sjálf- bjarga er hugsanlegt að við seljum okkar hlut í þeim og notum fjármun- ina til að fjárfesta í öðrum fyrirtækjum. ANDRI TEITSSON Framkvæmdastjóri KEA Tvö n‡ félög KEA Í UPPHAFI NÝRRAR ALDAR SPURT & SVARAÐ 12 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR Hvenær hófst fyrsta blómaskeiðið í sögu KEA? Eftir heimsstyrjöldina fyrri áraði vel til lands og sjávar og Eyfirðingum vegnaði almennt vel. Á skömmum tíma réðst KEA í byggingu nýs verslunarhúss, slátur- húss, mjólkurvinnslustöðvar og frystihúss til frystingar á kjöti til útflutnings. Árið 1930 hafði félagið byggt skrifstofu- og verslunarhús á horni Hafnarstrætis og Kaupvangsstrætis sem allar götur síðan hefur verið tákn Kaupfélags Eyfirðinga. Hvernig hefur þróunin varðandi fjölda starfsmanna verið? Árið 1926 voru skráðir starfsmennn fé- lagsins á Akureyri og Dalvík 21 að tölu. Fjörutíu árum síðar voru starfsmenn KEA á sjötta hundrað og á miðjum níunda áratug síðustu aldar voru starfsmenn KEA orðnir nokkuð á annað þúsund. Í dag eru starfsmenn félagsins þrír. Hver á Kaupfélag Eyfirðinga? KEA er í eigu félagsmanna á starfs- svæði félagsins í Eyjafirði og Þingeyj- arsýslum og er fjöldi þeirra á áttunda þúsund. Allir lögráða einstaklingar, sem eiga lögheimili á félagssvæðinu, geta orðið fullgildir félagsmenn. Ein- staklingar undir lögræðisaldri, sem búsettir eru á félagssvæðinu, geta einnig orðið félagsmenn með ábyrgð forráðarmanna og þeim takmörkun- um varðandi trúnaðarstörf sem lög ákvarða. Til að gerast félagsmaður greiðir hver einstaklingur 500 krónur í aðildargjald til félagsins og skal inn- eign allra félagsmanna í stofnsjóði vera sú sama. Starfsemin endurspeglast af tí›arandanum FBL GREINING? KEA FYRR OG SÍÐAR fréttir og fró›leikur 1984 1994 2004 2. 19 3 1. 60 8 SVONA ERUM VIÐ BYGGING ÍBÚÐARHÚSA Á ÖLLU LANDINU (FJÖLDI ÍBÚÐA SEM LOKIÐ ER VIÐ) Heimild: Hagstofan 1974 1. 71 4 2. 35 5 UPPHAFIÐ Fyrsta verslunarhús KEA. GLERÁRGATA 36 Kaupfélag Eyfirðinga keypti nýlega eignarhlut ríkisins á Glerárgötu 36 á Akureyri í þeim tilgangi að fjölga störfum í bænum með því að bjóða einkaaðilum á höf- uðborgarsvæðinu og opinberum stofnunum afnot af húsnæðinu. STJÓRNARFORMAÐUR KEA Benedikt Sigurðarson segir KEA horfa til allra átta svo efla megi byggð og mannlíf í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. KRISTJÁN J. KRISTJÁNSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.