Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 18
Lækjargötu 34c • 220 Hafnarfirði • S:553 4488
Sturtuklefar með
blöndunartækjum
verð frá 41.000.-
Flísar verð frá 990.-
]ÚtiljósNú er góður tími til að fara að huga að útiljósum. Þegar kólna tekur með haustinu og skygg-ja á kvöldin, er frábært að vera búin að setja upp ný ljós eða laga þau sem voru biluð.[
MR hefur haft sérstaka þýð-
ingu fyrir Magnús Skúlason
bæði í námi og starfi.
„Húsið hefur bæði byggingar-
sögulegt og menningarsögulegt
gildi en þar var ég í skóla og ekki
síst þess vegna sem húsið er í upp-
áhaldi hjá mér,“ segir Magnús
Skúlason, forstöðumaður Húsa-
friðunarnefndar ríkisins.
„Byggingalist Menntaskólans
er mjög elegant. Húsið er byggt í
klassískum stíl og samsvarar sér
mjög vel að öllu leyti. Það sem er
sérkennilegt við húsið er að arki-
tektinn er danskur, Jörgen Han-
sen Koch hét hann nú víst og var
hvorki meira né minna en hirð-
byggingameistari, en húsið kemur
tilhöggvið frá Kristiansand í Nor-
egi.“
Húsið tengist einnig starfi
Magnúsar. „Menntaskólinn í
Reykjavík var á sínum tíma
vendipunktur í sambandi við
húsafriðun. Í kringum 1950 voru
uppi háværar raddir um að rífa
húsið en þá komu góðir menn í
veg fyrir niðurrif þess,“ segir
hann. Þótt Húsafriðunarnefnd rík-
isins hafi ekki verið stofnuð fyrr
en tuttugu árum eftir þetta var
baráttan fyrir vernd MR mikil
kveikja að stofnun nefndarinnar.
Aðspurður um þýðingu þess að
enn sé líf í húsinu segir Magnús að
honum finnist mikilvægt að skól-
inn sé þar ennþá. „Það ber merki
aldurs og slits þetta hús en mér
finnst mjög merkilegt að það sé
enn í notkun. Ég myndi sjá mikið
eftir því ef yrði hætt að kenna í
því og það gert að skrifstofum
skólans eins og hefur verið orðað.“
Hátíðarsalurinn er í sérstöku
uppáhaldi hjá Magnúsi. „Hátíðar-
salurinn er eitthvað það merkileg-
asta við húsið þar sem hann hefur
mikið menningarsögulegt gildi í
sambandi við Þjóðfundinn. En
þegar ég var í skólanum voru
haldnar svokallaðar dansæfingar
á Sal og þá tók maður sporið með
skólasystrum sínum.“
annat@frettabladid.is
Í görðum og garðskálum á Ís-
landi vaxa alls konar blóm og
tré. Flestar þessar plöntur eru
skaðlausar en inn á milli má
finna tegundir sem eru svo
eitraðar eða ertandi að börn-
um getur stafað hætta af.
Hættulegar eitranir af völdum
plantna eru sjaldæfar. Það er þó
full ástæða til að vera á varðbergi
og varast að planta eitruðum
plöntum við leiksvæði barna.
Nokkrar plöntur hafa áhrif á
hjartað og miðtaugakerfið og geta
verið hættulegar ef þær eru sett-
ar í litla munna. Dæmi um slíkar
plöntur sem vaxa í görðum hér á
landi eru dalalilja, fingurbjargar-
blóm, riddaraspori, venusvang og
gullregn.
Aðrar plöntur hafa ertandi
áhrif á slímhimnu, húð og augu.
Oftast valda þær aðeins óþægind-
um en sé eitrunin mikil getur hún
verið hættuleg. Bóndarós,
páskalilja og bergflétta eru dæmi
um slíkar plöntur. Þá má ekki
gleyma því að nokkrar villtar
jurtir ber að varast og ýmsir hafa
lent í leiðinlegum samskiptum við
brennisóleyjar og ætihvönn.
Garðyrkjufræðingar geta gefið
upplýsingar um hvaða plöntur
beri að varast og það er gott að
leita til þeirra þegar verið er að
velja plöntur í garðinn. ■
Eitraðar plöntur á leiksvæðum
Gullregn vex víða í görðum hér á landi. Öll plantan er eitruð en oftast eru það fræbelgirn-
ir sem freista barna.
Góðir menn komu í veg
fyrir niðurrif hússins
Uppáhaldshús Magnúsar er Menntaskólinn í Reykjavík.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FYLGSTU MEÐ!
FRIENDS
VIRKA DAGA KL. 20:30