Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 19
3MÁNUDAGUR 18. júlí 2005
Stór amerísk grill verða sífellt
vinsælli hérlendis. Henning
Haraldsson hjá Járni og Gleri
segir amerísku Weber grillin
henta vel við íslenskar að-
stæður.
Ameríkanar eru ókrýndir kon-
ungar grillsins og því skal engan
undra að þaðan koma stór og
stæðileg hágæðagrill sem þola
hvað sem er og nýtast í nánast
hvað sem er, eins og Weber grill-
in sem fyrirtækið Járn og Gler
flytur inn til landsins.
„Þetta er rollsinn í grillum,“
segir Henning Haraldsson hjá
Járni og Gleri. „Grillin eru til af
öllum stærðum og gerðum og
meðal nýjunga er Baby Q grillið
er ferðagasgrill, en það er nógu
flott til að nota í bakgarðinum
heima og auðvelt að ferðast með
það,“ segir Henning. Emalering
á grillunum er sérunnin þannig
að fátt bítur á hana, og hentar
sérstaklega vel við íslenskar að-
stæður. „Fólk á þessi grill í
fjöldamörg ár án þess að það
sjáist nokkuð á þeim,“ segir
Henning.
Upphafsmaður Weber grills-
ins George Stephen átti hug-
myndina af fyrsta kúlu-kola-
grillinu. George vann við það að
sjóða saman baujur, en þá fékk
hann þá hugmynd að búa til
kolagrill með því einfaldlega að
taka tvo hluta úr bauju, sjóða
handfang á efri hluta, en þrjár
lappir á þann neðri og úr varð
fyrsta kúlukolagrillið. „Weber
grillin hafa þróast mikið síðan
og eru þau unnin úr bestu fáan-
legu efnum, enda eru þau hönn-
uð til að endast allt árið um
kring, „ segir Henning. ■
Veldu rétta eld-
húsinnréttingu
Að mörgu þarf að huga þeg-
ar eldhúsinnrétting er valin.
Þegar velja á nýja eldhúsinn-
réttingu er margt sem þarf að
huga að. Úrvalið er endalaust og
hægt er að velja um óteljandi
liti, viðartegundir og skápagerð-
ir. Innréttingar eru dýrar og
þeim er ætlað að endast lengi.
Það er því vissara að vanda val-
ið. Hér eru nokkur atriði sem
gott er að hafa í huga þegar inn-
rétting er valin.
· Innréttingin verður að henta þörf-
um og neysluvenjum þess sem
hana á. Áttu börn? Eldarðu mikið?
Hvernig eldhús hentar fjölskyldunni
best? Veltu því fyrir þér áður en þú
velur innréttingu.
· Fáðu faglega ráðgjöf frá einhverj-
um sem hefur þekkingu á málinu.
Talaðu til dæmis við innanhúss-
hönnuð.
· Skoðaðu eldhús í blöðum og
bæklingum. Það er gott að fá góða
mynd af því sem er í boði. Þá er lík-
legra að maður verði ánægður með
valið. Mundu að innréttingunni er
ætlað að endast og því getur verið
vandasamt að eltast við tísku-
straumana.
· Ef þú ert að spara veldu þá fjölda-
framleidda innréttingu sem er til á
lager og ekki þarf að sérsmíða.
· Veldu viðartegund sem þú ert
ánægður með. Ef þig langar í dýran
við sem þú hefur ekki efni á hafðu þá
í huga að ódýrum við má gjörbreyta
með réttri meðhöndlun. Fura getur
t.d. litið út eins og kirsuberjaviður ef
réttur áburður er borinn á hana.
· Veldu innréttingu sem endingargóð
og þolir stöðuga notkun. Skoðaðu
hjarir og samskeyti vel og vertu viss
um að yfirborðið þoli mikið álag.
· Skoðaðu inn í skápana. Í flestum
ódýrum innréttingum er aðeins not-
aður gegnheill viður í hurðirnar en
innvolsið er úr krossvið. Slíkt er
einnig algengt í hágæðainnrétting-
um. Það þarf ekki að þýða að inn-
réttingin sé slæm, krossviður verður
síður undinn en gegnheill viður og
þolir auk þess mikið álag.
· Innréttingin verður að vera sterkbyggð.
Veldu skúffur sem opnast alveg og eru á
rennum sem þola hámarksþyngd (35
kg.). Geirnegldar skúffur eru sterkastar
og hillur úr þykkum krossvið þola mest-
an þunga.
Það getur verið gott að leita til fag-
manna til að fá ráðgjöf varðandi val á
innréttingu.
Fyrsta grillið var úr baujum
Henning Haraldsson stendur
við línu af Weber grillum.