Fréttablaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 20
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?
4 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
RESCUE ME
MIÐVIKUDAGA KL. 21:00
FYLGSTU MEÐ!
Golfáhugamenn athugið
Nú er rétti tímin til að setja niður púttholu í garðinn
Upplagt í sumarbústaðinn eða garðinn heima
Tilboð 1
1 stk stöng með áföstu númeri og bolla kr 4.900
Tilboð 2
1 stk stöng með flaggi og bolla kr 7.900
Leigjum út holuskera
Askalind 2
201 Kópavogur
Sími 565 2000 / 897 1100
Sumir panta pitsur,
aðrir gosbrunnadælur
Vatnsforðabúr og dæla er allt
sem þarf til að útbúa gosbrunn.
Gosbrunnar.is heimsendir bún-
aðinn á höfuðborgarsvæðinu og
veitir ráðgjöf.
Áhugi á skrautlegum og hönnuð-
um görðum hefur aukist til muna
og æ algengara er að fólk setji
upp tjarnir og gosbrunna í görð-
um sínum – og einnig á svölum.
„Það er ekkert mál að setja upp
gosbrunn nánast hvar sem er, það
eina sem þarf er vatnsforðabúr og
dæla,“ segir Svavar Björgvinsson
hjá Gosbrunnar.is. „Til dæmis er
hægt að taka emeleraðan þvotta-
bala, setja fallega steina í botninn
og svo dælu og þá er maður komin
með gosbrunn sem hægt er að hafa
á svölunum,“ segir
Svavar og bætir við að
lítið mál sé að útbúa
gosbrunn inni í stofu. Í
raun eru engin tak-
mörk fyrir því hvað
hægt er að gera að
mati Svavars, tak-
mörkin eru þau sem
ímyndunaraflið setur
manni auk útlagðs
kostnaðar. „Það þarf
alls ekki að kosta mik-
ið að setja upp gos-
brunn eða litla tjörn í garðinum eða
við sumarbústaðinn,“ segir Svavar.
Tjörn er útbúin einfaldlega
með tjarndúk. Þá er grafin hola
fyrir tjörninni í jarðveginn og
dúkur lagður
ofan í, steinar
eða möl lagðir
yfir kantanna,
og fyllt upp með vatni og jafnvel
dælu komið fyrir. „Dælurnar eru
misjafnar eftir því hvernig vatnið
rennur eða sprautast, það getur
verið bein buna eða sprautast eins
og blævængur,“ segir Svavar.
Gosbrunnar.is selur allan bún-
að sem þarf til verksins eingöngu
á netinu og keyra vörurnar til við-
skiptavina á höfuðborgarsvæðinu,
auk þess sem þar er veitt ráðgjöf
við uppsetningu og hönnun. „Sum-
ir panta pitsu en aðrir gosbrunna-
dælur,“ segir Svavar og hlær. ■
Litlir álfar á hverjum hól
Það má lífga upp á garðinn
með ýmsum aðferðum.
Garðurinn þarf ekki að vera
uppfullur af framandi trjáteg-
undum og flæðandi fossum til
að vera líflegur og notalegur.
Garðálfar geta verulega lífgað
upp á garðinn, jafnvel þá sem
eru fúlir og fullir af illgresi.
Gaman er að koma þeim fyrir á
ótrúlegustu stöðum og setja við
þá lítil ljósker, þannig að þeir
sjáist vel þegar rökkva tekur.
Börnum þykir sérstaklega gam-
an að álfunum en þeir fást af öll-
um stærðum og gerðum. Þetta
eru glaðlegir álfar og koma
brosi á hvern þann sem mætir
þeim, þannig að það er einnig
góð hugmynd að stilla þeim upp
við útidyrnar þar sem þeir taka
vel á móti heimilisfólki og gest-
um. ■
Líf færist í garðinn þegar garðálfarnir eru
komnir á stjá.
Svavar Björgvinsson með gosbrunnadælu.
Hægt er að hafa margar fallegar og skemmtilegar útfærslur á gosbrunnum og jafnvel setja ljós undir vatnsbununa.
FRIENDS
VIRKA DAGA KL. 20:30
FYLGSTU MEÐ!