Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 50
34 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Álftarimi – Selfossi 2ja herb- 61m2
Um er að ræða snyrtilega íbúð á fyrstu hæð. Eignin telur: for-
stofu/hol, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús og stofu. 6,5m2
geymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Gólfefni eru fín, á stofu er kirsuberja
plastparket, spónaparket á herbergi og flísar á forstofu, eldhúsi og
baðherbergi. Baðherbergi er snyrtilegt með hornsturtu og nýlegum
flísaplötum á veggjum, og í eldhúsi er hvít innrétting og flísar á milli
efri og neðri skápa. Úr stofu er hægt að ganga út á suður svalir.
Stigagangur er snyrtilegur með sameiginlegri hjólageymslu og þurrk-
herbergi fyrir þvott. Verð: 9.400.000.-
Tjaldhólar - Selfossi - 5 herb. – 184m2
Vorum að fá í einkasölu þetta glæsilega parhús í suðurbyggð á Sel-
fossi. Um er að ræða 5 herbergja, þar af tvö baðherbergi og annað
þeirra innaf hjónaherbergi. Eignin er nánast tilbúin á því stigi sem hún
selst á (Fullbúin að utan með tyrfðri lóð og fokhelt að innan). Hurðir
eru úr mahogny, gluggar hvítlakkaðir, brúnt stál á þaki, Klætt með
brúnum keramik flísum. Lofthæðin er 2,8m og gott geymsluloft er í
bílskúr. Gólfhiti er í öllu húsinu nema stofu og tveim herbergjum og
auk þess er gert ráð fyrir ofnum í öllu húsinu. Skjólveggur er á milli
íbúða og komnar lagnir fyrir pott. Öll gjöld greidd nema skipulags-
gjald. Eins og fyrr segir selst eignin fokheld og samkvæmt skilalýs-
ingu. Verð: 18.500.000.-
Klausturhólar 801 Selfoss 2ja herb.
Sumarbústaður staðsettur í landi Klausturhóla í Grímsnes og Grafn-
ingshreppi. Bústaðurinn er á eignarlandi sem er einn hektari að stærð,
lóð er í góðri rækt og mikið af stórum trjám sem vel hefur verið geng-
ið frá í upphafi. Frábært útsýni er til allra átta. Um er að ræða bústað
og nýlegt gestahús alls 60 fm sem skiptist þannig. Bústaður(byggður
1980), sólstofa(4 ára) og andyri eru 55 fm(skráð í FMR 44m2). Sérstætt
gestahús 6 fm. í bústaðnum er eitt gott herbergi með hjónarúmi,stór
stofa og eldhús, geymsla og salerni með sturtu,rafmagn og hitakút-
ur.Gólf endurnýjuð og einangruð fyrir 5 árum síðan. Vandað Bruspar-
ket á gólfum. Bústaðnum fylgja innanstokksmunir húsbúnaður og
garðáhöld. Nýtt gler er í bústaðnum að stærstum hluta ásamt nýjum
rennum og niðurföllum. Verönd var öll endurnýjuð fyrir 2 árum og er
hún um 75 fm að stærð. Verð: 9.900.000.-
‘
Á R B O R G I R • A u s t u r v e g i 3 8 • 8 0 0 S e l f o s s • S í m i 4 8 2 4 8 0 0 • F a x : 4 8 2 4 8 4 8 • w w w . a r b o r g i r . i s
Langamýri - Selfossi - 3ja herb -
75m2
Steinsteyptar íbúðir á 2 hæðum sem nú eru í byggingu í 6
íbúða raðhúsi. Hver íbúð er hæð og ris. Minni íbúðir eru 2 til 3ja
herb. 74,6m2, (gólfflatarmál er 86,8m2) og stærri íbúðir eru 3 til
4ra herb 104,9m2 (gólfflatarmál er 113,9m2). Húsin eru steinuð
að utan með viðhaldsfríu efni sem ekki þarf að mála, þak er
aluzink og gluggar mjög vandaðir frá Berki á Akureyri. Selst
skv staðli ÍST 51 og byggingalýsingu, fullfrágengið að utan og
lóð grófjöfnuð. (Fokhelt) Verð: 9.900.000.-
Austurmýri - Selfossi - 4ra herb. -
166m2
Um er að ræða vandað, steypt raðhús í Fosslandi. Eignin tel-
ur forstofu, sjónvarpshol, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús,
þvottahús, baðherbergi og sambyggðan bílskúr. Hluti lofta er
upptekinn með tveimur myndarlegum þakgluggum. Eignin
selst Eignin selst eins og hún er, milliveggir uppkomnir að
mestu og öll loft einangruð með steinull, þ.e. næstum tilbúin
undir tré. Verð:19.900.000.-
Birkivellir - Selfossi - 2ja herb. - 83m2
Um er að ræða snyrtilega íbúð í tvíbýlishúsi í vinsælu grónu
hverfi á Selfossi. Eignin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti,
eldhúsinnrétting er ný og nýjar flísar eru á eldhúsi, baðherbergi
og þvottahúsi. Allar lagnir í hafa einnig verið endurnýjaðar, sem
og gler og glerlistar. Baðinnrétting er nýleg. Á stærstum hluta
gólfa er plastparket. Innaf stofunni var áður svefnherbergi.
Mögulegt er að setja upp vegg í stofunni og bæta þannig einu
svefnherbergi við. Í sameign er rúmlega 60 fermetra geymsla í
þakrými. Garðurinn er gróinn og skjólsæll, en nýlega var steypt
gangstétt og verönd aftan við húsið úr skrautsteypu og tilheyrir
veröndin íbúðinni. Þetta er sérlega snyrtileg og vel staðsett eign
- kannið málið. Verð: 13.800.000.-
Sigurður Fannar
Guðmundsson
sölumaður
Anna Björg
Stefánsdóttir
ritari/sölumaður
Magnús Ninni
Reykdalsson
sölumaður
Guðjón Ægir
Sigurjónsson
hdl.
Óskar
Sigurðsson
hdl.