Fréttablaðið - 18.07.2005, Page 64
Sundlaug Garðabæjar var tekin í notk-
un árið 1990 og er eina almennings-
laugin í Garðabæ. Arkitekt hennar er
Mannfreð Vilhjálmsson. Sundlaugin
skiptist í tvennt, þar sem annars veg-
ar er 25 X 15 metra sundlaug með 5
brautum og er hún um 29.5 gráðu
heit. Hins vegar er barnalaug sem er
um 34 gráður en hún er 15 X 6,5 metr-
ar. Í barnalauginni er sveppur og lítil
rennibraut fyrir minnstu börnin. Í
sundlauginni er stærri rennibraut á
sérstöku leiksvæði sem hefur verið
afmarkað. Tveir heitir pottar eru við
laugina auk eimbaðs og hvíldarrýmis
á sundlaugarsvæðinu. Útiklefar eru
fyrir bæði kyn þar sem einnig er hægt
að liggja í sólbaði. Íþróttafulltrúi
Garðabæjar, Gunnar Örn Erlingsson,
ber ábyrgð á rekstri sundlaugarinnar.
„Draumahúsið mitt er lítið og sætt
einbýlishús,“ segir sjónvarpskonan
Halldóra Rut Bjarnadóttir spurð um
draumahúsið sitt. „Ég sé fyrir mér
timburhús, jafnvel bara sumarbú-
stað, í stórum garði. Mig langar að
hafa stóran garð sem ég get skreytt
með fallegum blómum og trjám og
alls konar spennandi hlutum. Garð
sem er heil veröld út af fyrir sig. Það
væri til dæmis gaman að hafa sól-
skála í miðjum garðinum,“ segir
Halldóra og á þá við notalega sól-
stofu í 19. aldar stíl.
Þótt draumahúsið sé ekki fullmótað
í huga Halldóru er staðsetningin al-
veg á hreinu. „Draumahúsið mitt er
í Hveragerði, hvergi annars staðar.
Ég ólst upp í Hveragerði og vil búa
þar. Þetta er svo litríkur og skemmti-
legur bær, fólkið skemmtilegt og
gott að vera þarna.“
Halldóra vill hafa heimilislegt í
kringum sig og langar að eiga nota-
legt heimili. „Mig hefur líka alltaf
langað til að hafa lítið gróðurhús við
húsið mitt. Þar gæti ég ræktað vín-
ber, jarðarber og alls konar græn-
meti til að gæða mér á. Það væri al-
gjör draumur.“
DRAUMAHÚSIÐ MITT HALLDÓRA RUT BJARNADÓTTIR
Halldóra Rut ætlar að hafa
gróðurhús úti og rækta jarðar-
ber og annað góðgæti.
SPURNING
VIKUNNAR
á fasteignavef Visis
65,62%
Litlu
Miklu
SPURNING SÍÐUSTU VIKU:
Skiptir útsýni máli við val á fasteign?
23,75%
Áttu samskipti við
nágranna þína?
Vogaskóli
stækkaður
Nýjasti hluti skólans rifinn til
að rýma fyrir stærra húsnæði.
Byrjað er að rífa niður eina álmu
í Vogaskóla til að mæta fjölgun
nemenda í skólanum. Álman sem
verður rifin var byggð um 1960
og er því yngsti hluti hans. Í stað-
inn fyrir þann hluta skólans sem
verður rifinn kemur nýtt húsnæði
á tveimur hæðum en auk þess
verður byggt bílastæði í kjallar-
anum. Gripið er til þessa ráðs
vegna þess að lóð skólans ber ekki
fleiri viðbyggingar.
Nemendur í yngstu bekkjum
skólans verða því að flytja sig um
set og er búið að koma upp skóla-
stofum í gömlu verslunarhúsnæði
við Sólheima. Verður þar um að
ræða nemendur í fimmta bekk og
undir. Þar að auki verður komið
upp litlum húsum á lóð skólans
með fleiri kennslustofum. Áætlað
er að hefja kennslu í nýja hús-
næðinu undir árslok 2006. ■
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
16/6-
23/6
27/5-
2/6
3/6-
9/6
10/6-
15/6
130204 189 175
Griðastaður í Hveragerði
24/6-
30/6
195
1/7-
7/7
145
10,62%Engu
SUNDLAUG GARÐABÆJAR