Fréttablaðið - 18.07.2005, Síða 65
Þeir sem eru ekki innvígðir í Sam-
fylkinguna átta sig ekki á því
hvers vegna Stefán Jón Hafstein
mætir andófi í eigin röðum. Ræt-
urnar liggja greinilega djúpt undir.
Fyrir nokkrum árum var hann
þáttastjóri „Þjóðarsálarinnar“ og
svo virtist sem pólitíkin lægi fyrir
fótum hans enda glæsilegur
stjórnmálamaður í uppsiglingu.
Svo kom Akureyrardvöl og blaða-
mennska; eitt sinn tjáði hann sig
óvarlega um Ingibjörgu Sólrúnu;
hann sagði að grunnt væri á gribb-
unni. Blaðamennska á Akureyri
var enginn hefðarpóstur eða hár
söðull. En R-listabrallið er leðju-
slagur og ekki er ljóst hver kemur
út úr honum uppistandandi. Sem
borgarfulltrúi varð hann að gleypa
margt með bros á vör. Þegar
Þórólfur borgarstjóri varð að yfir-
gefa stólinn þá virtist sem tími
Stefáns væri kominn. Makkið
dreifðist yfir síður blaðanna og
ljósvakamiðlanna. Hver skyldi
verða borgarstjóri? Stefán sagði
lítið alvarlegur á svip og Dagur B.
var undir pressu. Svo komu tíðind-
in, Steinunn Valdís skyldi verða
borgarstjóri; hún tók því brosandi
og upp með sér; Stefán Jón varð að
segja í sjónvarpi að hún væri góð-
ur kostur. Sögur spunnust um að
Alfreð Þorsteinsson hefði enn einu
sinni verið með hótanir um slit,
hvað annað. Þeir í Framsókn höfðu
víst litinn áhuga á að ala upp nýjan
foringja, sem gæti verið skeinu-
hættur. Alfreð hefur beinlínis lifað
á hótunum og stundað viðvarandi
sukk í OR, gullmola Reykvíkinga,
óáreittur. Fyrst var sóað 5-6 millj-
örðum í fjarskiptamál, sem engu
skilaði. Svo byggði OR allt of dýrt
húsnæði fyrir ca. 2 milljarða um-
fram þarfir. Og ekki nóg með það,
nú er það ljósleiðarinn, sem á að
koma á öll heimili í Reykjavík, 40
þúsund, en þegar hafa 2 þúsund
fengið hann fyrir ofurkostnað; það
er ljóst að margfalda verður áætl-
un OR um 8 milljarða kostnað með
þremur; Akranesstuðullinn er
fenginn með útboðum þar og á Sel-
tjarnarnesi, en þau voru þrisvar
sinnum hærri en áætlun OR; Al-
freð hefur þegar skrifað undir
framan við myndavélar! Svo hefur
hann framið pólitísk hryðjuverk
gagnvart Reykvíkingum og skrif-
að undir 381 megavött (stærra en
Búrfellsvirkjun) til stóriðju án
þess að spyrja íbúana, talar svo um
atvinnu á svæðinu eins og atvinnu-
fulltrúi í Skilmannahreppi. Jú, svo
sást hann í sjónvarpi skrifa undir
ljósleiðara í öll heimili í borginni,
enn eitt sukkið. Við hvern? Vita-
skuld Steinunni Valdísi, á fljúgandi
ferðinni að mala Stefán Jón í kosn-
ingum. Hverju verður næst lofað
upp í ermina á Alfreð? – Ríkarður
III. kallaði örvæntingarfullur:
„Konungdæmi mitt fyrir hest.“ –
Það er ekki nema brot af fólki í
Reykjavík, sem hefur not fyrir
ljósleiðara og það er glapræði að
vera með ótímabærar og ábyrgð-
arlausar undirskriftir. Síminn á
víða tóm plaströr í jörðu til að
draga ljósleiðara í ef þörf krefur.
Alfreð er örvæntingarfullur og
Steinunn í borgarstjóraslag og
sjentilmaðurinn Stefán Jón er
ósýnilegur. Svo reisir borgarstjóri
til Ameríku í sebrakjól og veiðir
fysta laxinn í Elliðaánum, já, og
hjólar með Eggerti Skúlasyni.
Þessi glíma stendur ekki um mál-
efni, hún er valdabrask og Stefán
Jón verður að taka þátt.
Og ekki nóg með það. Nýlega
komst Heimir Már Pétursson í
sjónvarp og mælti fyrir Steinunni
og minntist ekki á Stefán Jón. Og
Guðrún Ögmundsdóttir fór geyst á
útvarpi Sögu og sagði að skipulags-
málin skiptu öllu máli, í öllu, og
minntist á Listasafnið sem afrek
og Laugavegur væri í góðum mál-
um; hún hafði skoðað það sjálf!
Hildur Helga Sigurðardóttir þátt-
arstjóri sagði að miðborgin væri
bara fyrir fyllibyttur og alþingis-
menn. „Já, já,“ sagði Guðrún; þau
mál eru í góðu lagi sbr. Listasafnið
og það sem Dagur B. hefur verið
að gera og svo væri Steinunn Val-
dís komandi borgarstjóri. Dagur
virðist besti drengur og með sí-
felldar vangaveltur, allt á að skoða
og hlustað á alla, óræð og dýr
gúmmípólitík. Auðvitað kemst
hann ekkert án peninga, en hann er
ekki í aðstöðu til að taka á Alfreð,
sem sóar 10 milljörðum. Og Stefán
Jón lendir í pressunni fyrir að hafa
níðst á starfsfólki gæsluvalla; al-
veg herfilegt, en engu máli skiptir
hvað gerðist því búið er að krota
þetta á hann. Þótt hann hafi unnið
vel að fræðslumálum þá klúðrar
hann því á endasprettinum. Og
bara krókódílar eru í kring um
hann.
Stefán, af hverju getur þú ekki
hótað eins og Alfreð? Góðir stjórn-
málamenn taka áhættu á réttu
augnabliki. Svo ætla þær flokks-
systur þínar að etja ykkur Degi
saman í prófkjöri svo Steinunn
sigri. ■
Stefán, af hverju getur flú
ekki hóta› eins og Alfre›?
Gó›ir stjórnmálamenn
taka áhættu á réttu
augnabliki. Svo ætla flær
flokkssystur flínar a› etja
ykkur Degi saman í próf-
kjöri svo Steinunn sigri.
Ertu lur›a, Stefán Jón?
MÁNUDAGUR 18. júlí 2005
JÓNAS BJARNASON
EFNAVERKFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
BORGARSTJÓRNARMÁL