Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 66

Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 66
„Mér finnst alltaf hátíðlegt að eiga afmæli en samt er ég að kom- ast á þann aldur að mér finnst hversdagurinn svo mikilvægur. Það er svo gaman að geta gert allt sem mann langar til. Ég er vel á mig komin, er alltaf að lesa ein- hverjar skemmtilegar bækur, ég er að semja ljóð, þýða og vinna að ritstörfum,“ segir Vilborg Dag- bjartsdóttir rithöfundur, sem er 75 ára í dag. „Mér hefur alltaf fundist 18. júlí mikill hátíðisdagur. Við vor- um mörg í fjölskyldunni og ekki siður að gera mikið veður út af af- mæli en það voru samt alltaf bak- aðar pönnukökur. Þá saumaði mamma fallegan kjól handa mér og það var gaman,“ segir Vilborg, sem ætlar ekki að halda sérstak- lega upp á afmæli sitt núna heldur ætlar að vera heima með sinni nánustu fjölskyldu. Vilborg hefur ekki setið iðju- laus í sumar enda fer hún ávallt snemma á fætur. „Við fórum bekkurinn minn úr Kennaraskól- anum sem útskrifaðist 1952 í ferðalag, að vísu ekki langt. Við heimsóttum bekkjarfélaga í sum- arbústöðum í kringum Reykjavík og áttum alveg óskaplega skemmtilegan dag,“ segir Vilborg sem skellti sér einnig í Jóns- messuferð með SÍBS um Breiða- fjörð. „Ég sá Örn á kletti og Össu á hreiðri,“ segir Vilborg glaðlega. Vilborg er alltaf að semja og er með mörg ljóð í smíðum. Hún seg- ir stangast á að semja ljóð í frjálsu formi eins og hún gerir og að yrkja rímað og stuðlað. Hún man þó eftir því í sínu ungdæmi að siður var að botna stökur. Eitt sinn var hún að vaska upp heima í Hjalla, þá rúmlega tvítug, þegar kastað var að henni fyrri parti sem hljóðaði svo: Eina stund í Edinslundi / okkar fundi saman bar. Vilborg var fljót til og samdi tvo seinni parta: Hverju sprundi held ég mundi / hafa fundist gaman þar. Tætt það sprund af trega stundi / tára dundu perlurnar. 18 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR HUNTER S. THOMPSON (1937-2005) fæddist þennan dag. VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR RITHÖFUNDUR OG SKÁLD ER 75 ÁRA Hversdagsleikinnn er mikilvægur „Ég mæli ekki með kynlífi, eiturlyfjum eða geðveiki fyrir hvern sem er, en það hefur ávallt reynst mér vel.“ Hunter S. Thompson var bandarískur blaðamaður og rithöfundur. Hann skrifaði lengi fyrir Rolling Stones tímaritið og kallaði sig Dr. Gonzo. timamot@frettabladid.is Þennan dag árið 2000 fannst lík hinnar átta ára gömlu Söru Payne á akri í Sussex-héraði í Englandi. Bóndi fann líkið aðeins tólf mílum frá þeim stað þaðan sem Sara hvarf, en hún hafði ver- ið að leik með systkinum sínum nálægt heimili afa þeirra og ömmu. Söru hafði verið saknað í rúmar tvær vikur. Talið er að lík stúlkunnar hafi legið á akrinum í nokkurn tíma en ekki sáust sýni- legir áverkar á henni. Tveimur dögum síðar fann lög- reglan skó Söru í nálægu þorpi og 31. júlí var Roy Whiting, kunn- ur barnaníðingur, handtekinn en hann hafði áður verið yfir- heyrður í tengslum við málið. Hann var ákærður fyrir morðið á Söru í febrúar 2001 og fund- inn sekur um morð og mannrán í desember. Hann hlaut lífstíðar- dóm fyrir vikið. Whiting hafði árið 1995 hlotið fjögurra ára fangels- isdóm fyrir að ráðast á níu ára stúlku. Foreldrar stúlkunnar hófu að berjast fyrir svokölluðum „lögum Söru“ og vildu þau að almenn- ingur fengi aðgang að skrám lög- reglunnar yfir barnaníðinga. 18. JÚLÍ 2000 Mikill fjöldi blóma var lagður á staðinn þar sem lík hinnar átta ára gömlu Söru Payne fannst. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 64 f.kr. Eldarnir í Róm hefjast. Þegar þeir slokknuðu nærri viku síðar höfðu tveir þriðju hlutar Rómar brunn- ið til kaldra kola. 1925 Hitler gefur út bókina Mein Kampf. 1931 Framkvæmdir hefjast við verkamannabústaðina við Hringbraut, Bræðraborgar- stíg og Ásvallagötu í Reykjavík. 1936 Borgarastyrjöld brýst út á Spáni. 1963 Stórbruni verður í verk- smiðju Ísaga við Rauðarár- stíg. Miklar sprengingar verða þegar eldur kemst í gashylki. 1984 Maður hefur skothríð á McDonalds-veitingastað í Kaliforníu. 21 lætur lífið. 1999 Stórhlaup verður í Jökulsá á Sól- heimasandi. Þetta eru mestu umbrot í jöklinum í 44 ár. Lík Söru Payne finnst á akri Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is.     !"#$#% & '(& ) "#$*+  ,"-(  .(/ )0)& )1./ 12 3   3) 3))2(4)))&/3%51,)& )0)&    6'&3 7)7 '0  8- 9-)&,'7 :'') ,)"#;" ;$2< 7!=  ("#;8% &)&"#;*>('')&)1 1?"#"8 "*"-@% "#A$ /' = 0'1) 1 .(  &'  )& B+)7 '+7( 3'=   +'!)) )& & 8% <  7' 3 1'&& 1 '&2 )'! ! && )32 1 +  = ! )& )&0 7& ). )%"#A#+ 011& ,)(1  ) 13'2 C&& )7 ' ,) +D 7 7.+1"*-*% )&)7 ')&.  ( < 2"*-;EF2)&! ;F )&,'7  =  (3% G'& + '71''1 71)% &3 >(' /'1 ). 3 31 '&1= &')&0 7.(3))&,'7 % 6H&(*F%( 8"% '"*"*%G,+  72 1 1& ,2)&0 7 )&. !2= 77)& /12 1+!+71 33&7+%5&& , 77 /  3 3 )32  '& ( (3)30.  )3! & ) %  3 (1 ! %)                        !"#!$  #%    &  '  <  3)! && +  !!"#%!)%"#89  7')7I 2 .('!2! &&  3)J ))%  .  1&2 )  3&3)2 1 7% % 4 1&&%4 3%K (/ +/''3 G/ 1( !' ("%E"-%( )23& , 2 0  2&71%'%3  )% L!!' &"#98 $8'  , /)72 =CH71)7%K(3B /"#$8 $F% B3 "#$A &' /  )) )3 + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ásta Kristín Erlingsdóttir grasalæknir, lést þann 8. júlí síðastliðinn. Útför hennar verður frá Háteigskirkju þriðjudaginn 19. júlí kl. 11. Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartaheill og minningar- sjóð Landspítalans. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Ragnar Jónsson Fögrukinn 13, Hafnarfirði, andaðist á St. Jósepsspítala, mánudaginn 11. júlí sl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag kl. 13.00. Sólveig Jónsdóttir Sævar Gunnarsson Guðfinna Jónsdóttir Jenný Jónsdóttir Jón Auðunn Jónsson Ólafía S. Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur bróðir okkar, mágur og kær vinur, Kristján Hólm Loftsson frá Bólstað, lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi föstudaginn 8. júlí sl. Jarðarförin fer fram frá Drangsneskapellu fimmtudaginn 21. júlí kl. 14.00. Ása Loftsdóttir Lára Loftsdóttir Lovísa Loftsdóttir Einar Einarsson Fjóla Loftsdóttir Ragnheiður Loftsdóttir Sigrún Loftsdóttir Jón Traustason Björg Loftsdóttir Sveinn Þórðarson Ingimunda Loftsdóttir Jón Garðar Ágústsson Fanney Jónsdóttir Sigrún Elíasdóttir Bjarni Skarphéðinsson Þráinn Elíasson Guðbjörg Gestsdóttir Jón Hörður Elíasson Jenný Jensdóttir Hugrún Elíasdóttir Johnny Símonarson Ragnhildur Elíasdóttir Tryggvi Ólafsson Innilegt þakklæti til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Hjartar Jónssonar, Brjánsstöðum, Grímsnesi. Sonja G. Jónsdóttir Sigurjón Á. Hjartarson Björk Baldursdóttir Guðrún H. Hjartardóttir Jón P. Guðmundsson Jón S. Hjartarson Gerður H. Einarsdóttir Fríða B. Hjartardóttir Ragnar M. Lárusson Hjörtur Hjartarson Jóhanna K. Bjarnardóttir Sveinn Hjartarson barnabörn og barnabarnabörn. www.steinsmidjan.is Í GARÐINUM Vilborgu finnst 18. júlí mikill hátíðisdagur og ætlar að eyða honum með sinni nánustu fjölskyldu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.