Fréttablaðið - 18.07.2005, Page 68

Fréttablaðið - 18.07.2005, Page 68
FÓTBOLTI Þjálfarar beggja liða ákváðu að breyta um leikkerfi frá fyrri leikjum og spiluðu með fjóra í vörn, fjóra á miðjunni og tvo frammi, í stað þess að vera með fjóra í vörn, þrjá á miðjunni og þrjá frammi. Þetta hafði lítil áhrif á leikinn til þess að byrja með. Bæði lið voru varkár og reyndu að ná upp spili á miðjunni en komust lítt áfram og því varð úr miðjuþóf fyrstu fimmtán mínútur leiksins. Um miðjan fyrri hálfleik fór að rigna og áttu leikmenn beggja liða í stökustu vandræðum með að fóta sig á hálum vellinum. KR náði síðan ágætis tökum á leikn- um. Rógvi Jacobsen brenndi af í dauðafæri eftir að Sigurvin Ólafs- son hafði skallað boltann fyrir markið frá hægri og Sigmundur Kristjánsson átti ágætt skot sem fór yfir markið. Grétar Hjartar- son skoraði svo fallegt mark eftir að hafa fengið boltann vinstra megin fyrir utan teiginn. Hann lyfti knettinum framhjá Eggerti Stefánssyni og þrumaði boltanum í netið. Vel gert hjá Grétari og staðan því orðin 1-0 KR í vil. Leik- menn Fram áttu í töluverðum erf- iðleikum með að byggja upp spil í fyrri hálfleik og virtust stundum ekki vita almennilega hvernig þeir ættu að leysa úr auðveldustu aðstæðum. Fram setti ágæta pressu á KR fyrstu mínútur síðari hálfleiks og fékk Bo Hendriksen ágætt færi sem Kristján átti auðvelt með að verja. Sigmundur Kristjánsson sendi glæsilega fyrir markið eftir hraða sókn KR, og þar fékk Rógvi Jacobsen boltann og kláraði færið vel. Mótlætið fór í skapið á leik- mönnum Fram og fékk Bo Hend- riksen, sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið, að líta rauða spjaldið fyrir að slá til Tryggva Bjarnasonar. Eftir þetta atvik var KR miklu betra liðið, enda manni fleiri. Grétar Hjartar- son bætti við sínu öðru marki í leiknum eftir að Rógvi Jacobsen hafði stolið boltanum af Gunnari Gunnarssyni, sem var alltof lengi að athafna sig. Sigurvin Ólafsson skoraði síðan glæsilegt mark með þrumuskoti af þrjátíu metra færi. Flestir leikmenn KR léku vel í gærkvöldi en enginn þó betur en Grétar Hjartarson sem lék sinn besta leik í sumar. Leikmenn Fram virðast ekki ná nógu vel saman inni á vellinum. Sóknar- leikurinn er hugmyndalítill og kantspilið ekki nægilega gott. Leikmenn liðsins þurfa að taka sig á ef liðið ætlar að halda sér uppi í efstu deild. Ríkharður Daðason var þungur á brún í leikslok. „Eftir þetta er hver leikur úrslitaleikur hjá okk- ur. Við náðum ekki að koma okkur almennilega inn í leikinn en vorum þó að sýna þokkalegt spil inn á milli. En rauða spjaldið var ófyrirgefanlegt og kom á versta tíma fyrir okkur. Eftir það voru leikmenn KR miklu betri.“ Magnús Gylfason var ánægður eftir leikinn. „Ég var ánægður með mína menn í dag. Sérstaklega var mikilvægt að fá menn til baka úr meiðslum sem léku vel í dag. Ágúst og Bjarnólfur náðu vel saman á miðjunni og vonandi get- um við byggt á þessum góðu úr- slitum.“ magnush@frettabladid.is 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR20 KR-ingar hristu af sér sleni› í fallbaráttuslag gegn Frömurum í gær. Grétar Ólafur Hjartason skora›i tvö mörk í 4–0 sigri KR en leikmenn li›sins höf›u í hinum tíu leikjum sumarsins skora› samtals níu mörk. Hör› fallbarátta blasir nú vi› li›i Fram sem fyrr. KR valtaði yfir slakt lið Fram 0–4 Laugd.völlur, áhorf: 1070 Ólafur Ragnarsson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–9 (3–6) Varin skot Gunnar 2 – Kristján 3 Horn 3–4 Aukaspyrnur fengnar 11–6 Rangstöður 5–4 0–1 Grétar Ólafur Hjartarson (32.) 0–2 Rógvi Jacobsen (48.) 0–3 Grétar Ólafur Hjartarson (77.) 0–4 Sigurvin Ólafsson (79.) Fram KR LA ND SB AN KA DE IL DI N > Við vorkennum ... ... stangarstökkvaranum Þóreyju Eddu Elísdóttur, sem þarf að lifa við það að eiga keppinaut sem heitir Jelena Isinbajeva og gerir fátt annað en að slá heimsmetið í greininni. Fyrir vikið verður Þórey Edda alltaf í öðru sæti eða neðar, rétt eins og í Madríd um helgina þegar hún stökk 4,45 metra og fylgdist með Isinbajevu stökkva 4,95 og bæta heimsmetið í enn eitt skiptið. Strákarnir unnu riðilinn Íslensku drengirnir í landsliði skipuðu leikmönnum 18 ára og yngri unnu sinn riðil á Evrópumeistaramótinu í körfubolta sem fer fram í Slóvakíu. Ísland er þar með komið í milliriðil og gangi þeim vel þar tryggja þeir sér sæti í undanúrslitum. Næsti leikur liðsins er á morgun. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... .... Atla Eðvaldssyni, sem náð hefur að blása nýju lífi í lið Þróttar. Liðið hefur haldið hreinu í báðum leikjunum undir hans stjórn, hlotið fjögur stig af sex mögulegum og er fyrir vikið komið upp í 7. sæti Framganga FH í Landsbankadeild karla í sumar hefur vakið verðskuldaða athygli, en liðið hefur unnið alla tíu deildarleiki sína. Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, segir nokkra leikmenn liðsins eiga skilið að fá sæti í landsliði Íslands og von- ast til þess að landsliðsþjálfararnir horfi ekki framhjá frammistöðu þeirra í sumar. „Mér finnst nokkrir leik- menn eiga skilið að vera valdir. Ég get nefnt sérstaklega Daða Lárusson mark- mann og Guðmund Sæv- arsson, sem valinn var í fyrra en fékk einhverra hluta vegna ekki möguleika á að spila fyrir lands- liðið. Þeir hafa ekki verið að spila síður vel í sumar en í fyrra, og hafa sýnt það og sannað að þeir geta vel spilað fyrir íslenska landsliðið.“ Val á landsliðshóp hefur oft verið gagnrýnt. Sérstaklega hafa knattspyrnuáhugamenn stundum furðað sig á því að leikmenn sem spila hér á landi eigi varla mögu- leika á því að komast í liðið. „Það er nú ekki ég sem vel liðið, en mér finnst það ekkert óeðli- legt að skoða leikmenn hér á landi alveg eins og erlendis. Landsliðsþjálfararnir hafa verið að velja leikmenn sem leika hér á landi að undanförnu, til dæmis Auðun Helgason og Tryggva Guð- mundsson. Það er gott fyrir ís- lenska knattspyrnu að leikmenn finni fyrir því að með þeim sé fylgst. Vonandi komast fleiri leik- menn FH í landsliðið, því það yrði sanngjörn viðurkenning á því starfi sem við höfum verið að vinna að undanförnu.“ Næstu verkefni landsliðsins eru leikir gegn landsliðum Búlgaríu og Króatíu, en þeir fara fram þriðja og sjötta september. ÓLAFUR JÓHANNESSON: EKKI HÆGT AÐ HORFA FRAM HJÁ GÓÐRI FRAMMISTÖÐU FH Í SUMAR Vill sjá fleiri leikmenn FH í landsli›inu Þróttarar eru komnir upp í sjöunda sæti Landsbankadeildarinnar: Fyrsti hálftíminn í leiknum gegn Fylki í gær var svo gott sem tíðindalaus fyrir utan að Gylfi Þór Orrason, dómari leiks- ins þurfti að yfirgefa leikvöllinn vegna meiðsla. Byrjunin á síðari hálfleik var keimlík þeim fyrri en ekkert markvert gerðist fyrr en Viktor Bjarki komst í gott færi um miðj- an fyrri hálfleik en slakt skot hans var varið af Fjalari í mark- inu. Strax í næstu sókn kom markið sem skildi liðin að. Þar var að verki varamaðurinn Ólaf- ur Tryggvason eftir góðan undir- búning Þórarins Kristjánssonar. Það var ljóst frá byrjun að gestirnir væru komnir með því hugarfari að ná minnsta kosti einu stigi. Liðið varðist skipulega á sínum vallarhelmingi en þegar kom að því að sækja þá skorti lið- ið oft á tíðum hugmyndaflug þeg- ar framherjar þess fengu loks úr einhverju að moða. Til marks um skort á hugmyndaflugi þá náðu Þróttarar ekki einu skoti allan fyrri hálfleikinn. En stigin þrjú voru Þróttara og það hafðist með skipulögðum varnarleik. - gjj Atli st‡rir firótturum á rétta braut LEIKIR GÆRDAGSINS Landsbankadeild karla: FRAM–KR 0–4 FYLKIR–ÞRÓTTUR 0–1 STAÐAN: FH 10 10 0 0 28–5 30 VALUR 10 8 0 2 21–5 24 FYLKIR 11 5 2 4 20–16 17 KEFLAVÍK 10 4 3 3 16–21 15 ÍA 10 4 2 4 9–11 14 KR 11 4 1 6 13–16 13 ÞRÓTTUR 11 2 3 6 12–17 9 GRINDAVÍK 10 2 3 5 10–17 9 ÍBV 10 3 0 7 8–21 9 FRAM 11 2 2 7 10–18 8 MARKAHÆSTIR: TRYGGVI GUÐMUNDSSON, FH 9 ALLAN BORGVARDT, FH 8 MATTHÍAS GUÐMUNDSSON, VALUR 7 BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA, FYLKI 5 GUÐMUNDUR STEINARSS., KEFLAVÍK 5 HRAFNKELL HELGASON, FYLKI 4 HÖRÐUR SVEINSSON, KEFLAVÍK 4 SINISA KEKIC, GRINDAVÍK 4 *Tryggvi Guðmundsson hefur leikið einum leik færra en félagi hans Allan Borgvardt. 0–1 Fylkisvöllur, áhorf: 910 Erlendur Eiríkss. (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 15–8 (8–3) Varin skot Bjarni 2 – Fjalar 8 Horn 6–5 Aukaspyrnur fengnar 7–14 Rangstöður 1–0 0–1 Ólafur Tryggvason (71.) Fylkir *MAÐUR LEIKSINS FYLKIR 4–3–3 Bjarni Þórður 5 Gunnar Þór 5 Helgi Valur 6 Valur Fannar 6 Ragnar 7 Guðni Rúnar 6 Tranberg 5 (74. Jón Björgvin –) Hrafnkell 5 (56. Eyjólfur 5) Christiansen 5 (66. Kjartan 5) Björgólfur 6 Viktor Bjarki 6 ÞRÓTTUR 4–3–3 *Fjalar 8 Ingvi 6 Páll 7 Eysteinn 7 Freyr 6 Daníel 5 (54. Guðfinnur 6) Hallur 6 Haukur Páll 6 Halldór 6 Þórarinn 5 (83. Erlingur –) Magnús Már 3 (66. Ólafur 6) Þróttur FÓTBOLTI Það má með sanni segja að Atli Eðvaldsson hafi blásið nýju lífi í lið Þróttar eftir að hafa verið við stjórnvölinn hjá liðinu í aðeins rúma viku. Liðið hefur fengið allt annað yfirbragð og hefur fyrir vikið lyft sér úr botnsæti deildarinnar og upp í það sjöunda. *MAÐUR LEIKSINS FRAM 4–4–2 Gunnar Sig. 5 Gunnar Þór 4 Þórhallur Dan 5 Eggert 4 (67. Ómar 5) Ingvar 3 Viðar 4 Mathiesen 5 Nörholt 6 (74. Víðir –) Heiðar Geir 4 (62. Ívar 5) Henriksen 3 Ríkharður 5 KR 4–4–2 Kristján 6 Kristinn 5 Tryggvi 5 Sölvi 5 Gestur 6 Sigurvin 7 Ágúst 7 (84. Jökull –) Bjarnólfur 7 Sigmundur 7 (85. Sölvi –) Rógvi 6 *Grétar 8 (82. Gunnar –) GRÉTAR SKORAÐI TVÖ Grétar Ólafur Hjartarson skoraði tvö mörk í 4–0 sigri KR á Fram í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.