Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 70
18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Svo virðist sem Ashley Cole ogforráðamenn Arsenal hafi náð
sáttum í samningadeilunni sem
staðið hefur yfir í margar vikur en
umboðsmaður Cole hefur greint frá
því að samningur
liggi fyrir og bíði
undirskriftar. Talið
er að nýi samning-
urinn muni veita
Cole 70 þúsund
pund á viku sem er
mun minna en það
sem Cole var sagð-
ur heimta á sínum tíma. Skemmst
er að minnast orða hans fyrir tveim-
ur mánuðum þar sem hann sagðist
ekki geta hugsað sér að vera áfram
hjá Arsenal á næstu leiktíð þótt fé-
lagið byði honum 200 þúsund pund
á viku.
Grétar Rafn Steinsson og félagarí Young Boys frá Sviss töpuðu á
heimavelli, 2-3, fyrir
franska liðinu
Marseille í Inter-
Toto keppninni á
laugardaginn. Þetta
var fyrri leikur lið-
anna í þriðju um-
ferð keppninnar.
Grétar Rafn spilaði
allan leikinn í hægri bakverðinum.
Sóknarmaðurinn Andy Cole munað öllum líkindum ganga frá fé-
lagsskiptum frá Fulham til
Manchester City í dag en ekki er
langt síðan Cole var bolað í burtu
frá Fulham til að búa til pláss fyrir
Heiðar Helguson. Stuart Pearce,
knattspyrnustjóri City, er mikill að-
dáandi Cole og telur hann enn eiga
a.m.k. eitt gott ár eftir í boltanum.
Franski sóknarmaðurinn NicholasAnelka segir ekkert hæft í þeim
sögusögnum að hann sé á leið til
Newcaste. Graeme Souness sagði
frá því á laugardag
að Anelka vildi
ólmur snúa aftur í
ensku deildina og
spila þá með
Newcastle, en í gær
sagði Anelka að
Souness færi með
fleipur. „Ég hef ekki
fengið nein tilboð og ég ætla að
segja það einu sinni enn, þrátt fyrir
að ég hafi sagt það oft áður, að hér
er ég mjög ánægður,“ sagði Anelka,
en hann er á mála hjá Fenerbache í
Tyrklandi.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóriChelsea, kveðst geta náð því allra
besta út úr Argentínumanninum
Hernan Crespo á komandi leiktíð,
en Crespo fann sig engan veginn á
sínu fyrsta tímabil í Englandi fyrir
tveimur árum.
Crespo sýndi hins
vegar allar sínar
bestu hliðar í láni
hjá AC Milan á síð-
ustu leiktíð og undi
sér vel með eigin-
konu og barni, en
þau áttu mjög erfitt
með að aðlagast lífinu í Englandi.
Nú er Crespo kominn aftur til Chel-
sea og í þetta sinn án fjölskyldu
sinnar.
Mourinho segir að Crespo sébúinn að gera upp hug sinn.
„Hann er búinn að sannfæra sjálfan
sig um að Chelsea sé áskorun fyrir
sig. Hann verður án fjölskyldu sinnar
næsta árið sem er gríðarlega erfitt
en Crespo ætlar að leggja sig allan
fram. Hann hefur verið frábær alls
staðar þar sem hann hefur spilað,
nema í Englandi. Nú er komið að
því að hann sýni hvað hann getur í
ensku deildinni,“ segir Mourinho.
„Chelsea mun fá meira út úr
Crespo í ár þar sem hann er að
leika undir minni stjórn. Svo er HM
næsta sumar og Crespo mun gera
allt til að komast í argentínska hóp-
inn fyrir þá keppni,“ segir Mourin-
ho.
Arsenal er að ganga frá samningivið efnilegasta knattspyrnumann
Kamerún, Alexandre Song, frá
franska liðinu Bastia. Hinn 17 ára
gamli Song spilar sem varnarsinnað-
ur miðjumaður og þykir svipa mjög
til Patrick Vieira. Song stóð til boða
að ganga til liðs við Middlesbrough
þegar hann var 13 ára en neitaði og
allt síðan þá hefur hann verið undir
smásjánni hjá Man. Utd, Inter Mil-
an, Lyon og auðvitað Arsenal, sem
nú virðist vera búið að klófesta pilt.
Þess má geta að Song þessi er ná-
frændi Rigobert Song, sem eitt sinn
var til mála hjá Liverpool.
ÚR SPORTINU
22
Tiger Woods sanna›i á Opna breska meistarmótinu í golfi um helgina a› fla›
er enginn kylfingur me› tærnar flar sem hann hefur hælana. fietta var annar
sigur Woods á stórmóti á flessu ári.
GOLF Bandaríski kylfingurinn Tig-
er Woods sigraði á Opna breska
meistaramótinu í golfi sem haldið
var á St. Andrews-vellinum í
Skotlandi, en því lauk í gær.
Woods hafði forystu á mótinu
frá byrjun, en Skotinn Colin
Montgomerie og Spánverjinn
José Olazabal fylgdu honum eftir
en náðu aldrei að ógna stöðu hans
að neinu marki.
Þetta er annar sigur Woods á
stórmóti á árinu, en hann sigraði
einnig á Masters-mótinu í Banda-
ríkjunum í júní.
Woods var að vonum ánægður í
mótslok. „Það er ánægjulegt að
vinna hér á heimavelli golfsins.
Að auki er það virkilega gaman að
hafa unnið á mótinu þar sem
mesti sigurvegari í sögu golfsins,
Jack Nicklaus, hætti keppni.“
Woods þakkaði einnig föður
sínum sem fylgdist með mótinu
frá Bandaríkjunum. „Ég á föður
mínum mikið að þakka og ég get
ekki annað en þakkað honum inni-
lega fyrir stuðninginn.“
Enn bíður Montgomerie
Colin Montgomerie fylgdi
Woods eftir lengst af móti, og var
minnst tveimur höggum á eftir
honum, en í lokin var munurinn
orðin fimm högg. Woods endaði á
fjórtán höggum undir pari en
Montgomerie á níu undir, en þetta
er í fjórða skiptið sem
Montgomerie er í öðru sæti á stór-
móti í golfi.
Nítján ára drengur frá Edin-
borg, Lloyd Saltman, vann áhuga-
mannaflokkinn með því að leika á
fimm höggum undir pari, einu
höggi minna en Eric Ramsay.
Tiger Woods var gagnrýndur á
síðasta ári fyrir að breyta sveifl-
unni, en hann segir þær breyting-
ar vera að skila sér á þessu ári.
„Ég vil nú ekki segja neitt við þá
sem hafa gagnrýnt mig fyrir
sveifluna. Ég einfaldlega þarf
þess ekki. Árangurinn talar sínu
máli.“
Tiger Woods á nú aðeins eftir
að vinna eitt mót til þess að kom-
ast upp að hlið Walter Hagen í
öðru sæti á listann yfir sigursæl-
ustu kylfinga sögunnar. Jack
Nicklaus er efstur á listanum, en
hann vann átján sinnum á stór-
móti á ferli sínum.
magnush@frettabladid.is
Undirbúningstímabil ensku liðanna komið á fullt:
FÓTBOLTI Liðin í ensku úrvals-
deildinni er kominn á fulla ferð í
undirbúningi sínum fyrir kom-
andi keppnistímabil sem hefst
eftir tæpan mánuð. Fjöldi æf-
ingaleikja var háður um helgina
og áttu stærstu liðin ekki í nein-
um vandræðum með að leggja
andstæðinga sína af velli, sem
margir hverjir voru lið úr neðri
deildum landsins.
Arsenal sigraði Barnet á úti-
velli 1-4, þar sem Hvít-Rússinn
Alexander Hleb spilaði mjög vel
og opnaði markareikning sinn
fyrir Arsenal strax á annarri
mínútu leiksins. Nýi fyrirliðinn
Thierry Henry bætti öðru marki
við fyrir hálfleik en í þeim síðari
skoruðu Dennis Bergkamp og
Justin Hoyte sitt markið hvor.
Man. Utd átti ekki í neinum
vandræðum með lið Clyde og
vann öruggan 5-1 sigur á útivelli.
Það sem mesta athygli vakti í
leiknum var óánægja stuðnings-
manna Man. Utd í garð Rio
Ferdinand, sem enn á eftir að
skrifa undir nýjan samning við
félagið. Þeir kölluðu Ferdinand
„gráðugan“ í hvert sinn sem
hann fékk boltann og fylgdu
þeim köllum síðan eftir með
bauli. Mörk Man. Utd í leiknum
skoruðu Kleberson, Paul Scholes
og Liam Miller og þá skoraði
Ruud van Nistelrooy tvö.
Liverpool vann öruggan sigur
á Bayer Leverkusen í Þýskandi,
3-0, þar sem franski framherjinn
Djibril Cisse gerði sterkt tilkall
til byrjunarliðssætis í vetur með
tveimur mörkum. Milan Baros
skoraði þriðja mark Liverpool
eftir að hafa komið inn á sem
varamaður. Þá gerði Tottenham
2-2 jafntefli við Boca Juniors í S-
Kóreu þar sem Jermain Defoe
og Mido skoruðu fyrir þá hvít-
klæddu. - vig
Au›veldir sigrar hjá
öllum stærstu li›unum
Breytingar hjá Arsenal:
Henry ver›ur
fyrirli›i
FÓTBOLTI Það verður franski sókn-
armaðurinn Thierry Henry sem
mun taka við fyrirliðabandinu af
landa sínum Patrick Vieira, en
eins og kunnugt er gekk hann í
raðir Juventus í síðustu viku.
Val Arsene Wenger, stjóra
Arsenal, á Henry kemur ekki á
óvart þar sem Henry hafði oftast
verið fyrirliði liðsins í fjarveru
Vieira á síðustu árum. Henry hef-
ur verið hjá félaginu í sex ár og er
einn af leikreyndustu leikmönn-
um liðsins. Hann þreytti
frumraun sína sem fyrirliði í æf-
ingaleik gegn Barnet um helgina
og stóð sig vel.
ALEXANDER HLEB Opnaði markareikn-
ing sinn fyrir Arsenal um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Didier Drogba er ekki ánægður með Jose Mourinho:
Ég flarf a› verjast eins og brjálæ›ingur
FÓTBOLTI Dider Drogba, framherj-
inn öflugi hjá Chelsea, er ekki
ánægður með það leikskipulag
sem Jose Mourinho notast við
með liðið og kveðst þurfa að sinna
alltof mikilli varnarskyldu. „Við
skulum bíða og sjá hvort einhver
annar framherji mun verjast eins
og brjálæðingur, líkt og ég gerði á
öllu síðasta tímabili,“ segir
Drogba.
„Ég fórnaði sjálfum mér fyrir
liðið og auðvitað bitnaði það á
markaskorun minni. Í staðinn
fékk stjarna Frank Lampard og
Joe Cole að skína sem skærast,“
bætti Drogba við í samtali við
breska fjölmiðla um helgina, en
hann skoraði aðeins 10 mörk í
deildinni á síðustu leiktíð, sem er
15 mörkum minna en markahæsti
leikmaður deildarinnar skoraði.
„Ég mun hugsa meira um að
skora í vetur og reyna að vera
ekki svona langt fyrir aftan Thi-
erre Henry á lista markahæstu
manna. Þá ætla ég líka að reyna
að hlaupa minna á eftir boltanum
en ég hef verið að gera. Mér
fannst leikstíll liðsins í fyrra mjög
undarlegur, sérstaklega síðari
hluta tímabilsins. Það eina sem
við gerðum var að senda langar
sendingar fram völlinn á mig, en
ég vill einmitt frekar fá boltann í
fæturna,“ segir Drogba. - vig
Algerir yfirburðir Tigers
TIGER WOODS MEÐ BIKARINN FRÆGA Sigur Tiger Woods á Opna breska meistaramótinu er tíundi sigur hans á stórmóti á ferlinum, en
hann er aðeins tuttugu og níu ára gamall. NORDIC PHOTOS/GETTY