Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 72
24 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Í gærkvöldi
fylgdist troðfull
Egilshöll með
glæparapparan-
um Snoop Dogg
og fáklæddum
dönsurum hans.
Ég gerðist ekki
svo frægur að
fara á þessa tónleika þó svo að ég
hafi þannig séð alveg gaman að
gamla hvutta þegar þannig ber und-
ir en hins vegar efast ég ekki um að
hann hafi flutt texta sem eru gjör-
samlega uppfullir af kvenfyrirlitn-
ingu og öðru sem hugsanlega geti
haft skaðleg áhrif á einhverjar við-
kvæmar sálir.
Eins fylgdist ég með því í síðustu
viku þegar femínistar bölsótuðust
yfir textum og framkomu rappar-
ans og vöktu þar með athygli um-
ræddra viðkvæmra sála á tónleik-
unum.
Sjálfur tel ég mig jafnréttis-
sinna, kvenréttindasinna, femínista
og allt það og get horft framan í
hvern sem er og staðið við þær full-
yrðingar. Hins vegar þykir mér það
í besta falli naumhyggja þegar
femínistar eru farnir að berjast hat-
rammlega gegn amerískum röppur-
um sem enginn tekur hvorteðer
nokkurt mark á. Mér þykir það í
raun álíka mikilvægt og ef
femínsistar myndu berjast fyrir því
að fá sérhannaðar þvagskálar á al-
menningsklósett til að geta pissað
standandi eins og karlarnir.
Víða hallar á konur í okkar sam-
félagi, víðar hallar á konur í mörg-
um fátækari samfélögum. Hér
heima er til dæmis óverjandi launa-
misrétti, karlar veljast frekar til
ábyrgðarstarfa og fleira sem ber
vott um fornaldarafdalahugsunar-
hátt svo fjölmargra okkar. Víða er-
lendis eru konur limlestar, seldar
mansali og fleira sem ber vott um
afskiptaleysi svo fjölmargra okkar.
Ég er þeirrar skoðunnar að hinir
fjölmörgu ágætu femínistar, skoð-
anasystur mínar og bræður, eigi að
einbeita sér að því að uppræta þessi
aðkallandi vandamál. Koma á jafn-
rétti þar sem verulega hallar á. Þeg-
ar þeim markmiðum er náð má hver
sem er mín vegna agnúast yfir
glæparöppurum sem eru það sem
ég kalla „all talk“. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
ODDI ÁSTRÁÐSSYNI ER ALVEG SAMA UM SNOOP DOGG
Naumhyggjufemínismi
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ KJÖLTURAKKAR
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
■ BARNALÁN
Leiðist
þér??
Hvernig
getur þér
leiðst?!
Það eru til milljón
uppbyggjandi hlutir
sem þú getur gert!
Eins og
hvað?
■ GELGJAN
Þú gætir notað tímann í að
spjalla við gömlu nágrannana.
Margt gamalt fólk hefur ýmis-
legt áhugavert
að segja og
kann margar
sögur.
Vá! Ég hef aldrei áður þekkt
neinn sem getur drukkið heilt
glas af kóki með nefinu!
Móðir mín myndi
vara mig við, alla-
vega áður en hún
segir eitthvað
skemmtilegt.
Dumm durumm
durumm durumm
durumm durumm
durumm
Marserið
fram!!
Hannes er
að borða
popp.
Jæja, segðu hon-
um að hætta, það
er að koma matur.
Og snakk
líka.
Og hnetur.....
og smartís.
Hvað?!
Solla, farðu inn og segðu Hann-
esi að ég hafi sagt honum að
hætta að borða þetta núna
strax.
Allt í lagi.
Mamma segir að þú eigir að
koma áður en þú eyðileggur
matinn þinn.
*stuna,
stuna*
Halló..... Ég
heyri í þér
anda! Hvað
viltu mér??!
Heldurðu að ég hafi
gaman að því að
hlusta á stunurnar í
þér, sjúka svín!?!
Einu sinni
enn??
Já, já, já!!