Fréttablaðið - 18.07.2005, Síða 80

Fréttablaðið - 18.07.2005, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 28 96 7 0 7/ 20 05 Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070 Sumir draumar rætast Avensis - Upplifun Verð frá 2.340.000 kr. Avensis stendur undir miklum væntingum. Bíllinn er ríkulega hlaðinn staðalbúnaði. Innri hönnun einkennist af miklu rými og þægindum fyrir ökumann og farþega. Avensis hefur sjálfvirkan regnskynjara á þurrkum, tölvu- stýrða loftræstingu í miðstöð, hágæða hljómflutnings- tæki og afar fullkominn hemlunar- og öryggisbúnað. Komdu í reynsluakstur og láttu drauma þína rætast í veruleikanum. Næst ekur þú Avensis. Fagleg sjónarmi›? Nú er verið að svipast um eftirkandídötum í tvær ágætar stöður í opinberri þjónustu og það er borgaraleg skylda mín að reyna að koma með ábendingar. Til að komast að málamiðlun legg ég til að útvarpsstjóri verði ráð- inn á faglegum forsendum en borgarstjóri samkvæmt „íslensku aðferðinni“. MÉR ER ÞAÐ LJÓST að það er mjög róttæk uppástunga að láta fagleg sjónarmið ráða við skipun í opinbera stöðu. Í embætti borgar- stjóra vil ég því að stjórnmála- maður verði ráðinn samkvæmt hinni gamalreyndu pólitísku upp- skrift sem allir kunna, og við finn- um okkur huggulegan og leiðtoga- legan borgarstjóra. Dagur B. Egg- ertsson er mjög huggulegur og jafnframt svo leiðtogalegur að hann gæti verið sonur Ingibjargar Sólrúnar og Davíðs Oddssonar, þótt svo muni ekki vera; Stefán Jón Hafstein er líka mjög huggu- legur, einkum í eyrum okkar sem eldri erum og munum eftir honum á Rás tvö; Steinunn Valdís er að sjálfsögðu hugguleg líka, á sinn hátt. AÐRIR PÓLITÍSKIR kandíatar eru ekki mjög leiðtogalegir, nema auðvitað Gísli Marteinn sem ég vil ekki fyrir nokkurn mun missa úr Evróvisjón í borgarstjórastól- inn og Vilhjálmur Þ., sem hefur lengri reynslu af málum Reykja- víkurborgar en sjálfur Ingólfur Arnarson. Fagleg sjónarmið koma þó ekki að gagni í þessu embætti, og eru jafnvel fremur til ógagns, því að borgarstjórn er ekki skipuð fagfólki heldur flokkshestum. EF VIÐ KJÓSUM yfir okkur pólitískan borgarstjóra er ekki nema sanngjarnt að útvarpsstjóri verði ráðinn á faglegum forsend- um og reynsla og kunnáttusemi í notkun fjölmiðla verði helsti mælikvarðinn. Margir sem eru með einhverja smáreynslu og eða menntun í fjölmiðlun munu álpast til að sækja um þetta starf, og gleyma því að mesta reynslu af fjölmiðlum hafa auðvitað þeir sem koma oftast fram í þeim. Og þá verður valið strax auðveldara, því að þrír íslendingar hafa komið jafnoft fram í fjölmiðlum og allir hinir Íslendingarnir samtals; það eru að sjálfsögðu Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson og Bubbi Morthens, sem yrðu allir fínir út- varpsstjórar. BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.