Fréttablaðið - 18.07.2005, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
28
96
7
0
7/
20
05
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070
Sumir draumar rætast
Avensis - Upplifun
Verð frá 2.340.000 kr.
Avensis stendur undir miklum væntingum. Bíllinn er
ríkulega hlaðinn staðalbúnaði. Innri hönnun einkennist
af miklu rými og þægindum fyrir ökumann og farþega.
Avensis hefur sjálfvirkan regnskynjara á þurrkum, tölvu-
stýrða loftræstingu í miðstöð, hágæða hljómflutnings-
tæki og afar fullkominn hemlunar- og öryggisbúnað.
Komdu í reynsluakstur og láttu drauma þína rætast í
veruleikanum. Næst ekur þú Avensis.
Fagleg
sjónarmi›?
Nú er verið að svipast um eftirkandídötum í tvær ágætar
stöður í opinberri þjónustu og það
er borgaraleg skylda mín að
reyna að koma með ábendingar.
Til að komast að málamiðlun legg
ég til að útvarpsstjóri verði ráð-
inn á faglegum forsendum en
borgarstjóri samkvæmt „íslensku
aðferðinni“.
MÉR ER ÞAÐ LJÓST að það er
mjög róttæk uppástunga að láta
fagleg sjónarmið ráða við skipun í
opinbera stöðu. Í embætti borgar-
stjóra vil ég því að stjórnmála-
maður verði ráðinn samkvæmt
hinni gamalreyndu pólitísku upp-
skrift sem allir kunna, og við finn-
um okkur huggulegan og leiðtoga-
legan borgarstjóra. Dagur B. Egg-
ertsson er mjög huggulegur og
jafnframt svo leiðtogalegur að
hann gæti verið sonur Ingibjargar
Sólrúnar og Davíðs Oddssonar,
þótt svo muni ekki vera; Stefán
Jón Hafstein er líka mjög huggu-
legur, einkum í eyrum okkar sem
eldri erum og munum eftir honum
á Rás tvö; Steinunn Valdís er að
sjálfsögðu hugguleg líka, á sinn
hátt.
AÐRIR PÓLITÍSKIR kandíatar
eru ekki mjög leiðtogalegir, nema
auðvitað Gísli Marteinn sem ég
vil ekki fyrir nokkurn mun missa
úr Evróvisjón í borgarstjórastól-
inn og Vilhjálmur Þ., sem hefur
lengri reynslu af málum Reykja-
víkurborgar en sjálfur Ingólfur
Arnarson. Fagleg sjónarmið koma
þó ekki að gagni í þessu embætti,
og eru jafnvel fremur til ógagns,
því að borgarstjórn er ekki skipuð
fagfólki heldur flokkshestum.
EF VIÐ KJÓSUM yfir okkur
pólitískan borgarstjóra er ekki
nema sanngjarnt að útvarpsstjóri
verði ráðinn á faglegum forsend-
um og reynsla og kunnáttusemi í
notkun fjölmiðla verði helsti
mælikvarðinn. Margir sem eru
með einhverja smáreynslu og eða
menntun í fjölmiðlun munu álpast
til að sækja um þetta starf, og
gleyma því að mesta reynslu af
fjölmiðlum hafa auðvitað þeir sem
koma oftast fram í þeim. Og þá
verður valið strax auðveldara, því
að þrír íslendingar hafa komið
jafnoft fram í fjölmiðlum og allir
hinir Íslendingarnir samtals; það
eru að sjálfsögðu Davíð Oddsson,
Halldór Ásgrímsson og Bubbi
Morthens, sem yrðu allir fínir út-
varpsstjórar.
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR