Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 12
Við spáum því að við seljum sam- tals um 700 þúsund lítra af áfengi fyrir verslunarmannahelgi,“ segir Höskuldur Jónsson, fráfarandi forstjóri Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins. „Yfirgnæfandi hluti, eða um 90 prósent, af þessu er bjór,“ bætir hann við. Það þýðir að um 630 þús- und lítrar af bjór verði seldir í vikunni. H ö s k u l d u r segist gera ráð fyrir um tíu pró- senta aukningu í áfengisverslun miðað við sama tíma í fyrra og verður það þá mesta magn sem ÁTVR hefur selt á einni viku, en andvirðið hljóðar upp á 500 millj- ónir króna. Það er því óhætt að fullyrða að Íslendingar stefni á að setja drykkjumet um helgina, en þeir hafa reyndar gert svo á hverri verslunarmannahelgi undanfarin ár. Höskuldur vonar þó auðvitað að fólk gangi hægt inn um gleð- innar dyr þó það fái sér dálitla brjóstbirtu. Af þeim 700 þúsund lítrum sem gert er ráð fyrir að lands- menn kaupi fyrir helgina fara um 100 þúsund lítrar til Akur- eyrar. „Ætli við fjórföldum ekki birgðirnar miðað við venjulega viku,“ segir Ólafur Þorsteinsson í Vínbúðinni á Akureyri. „Straumurinn í búðina byrjaði fyrir alvöru í gær og ég geri ráð fyrir að hann aukist jafnt og þétt eftir því sem nær dregur helgi.“ Svipaða sögu er að segja af Egilsstöðum og Vestmanna- eyjum. „Það er alveg magnað hvað fólk virðist geta drukkið mikið,“ segir Edda Sigrún Svavarsdóttir í Vínbúðinni í Vestmannaeyjum. „Það er troðið hús hjá okkur og ég hef varla séð annað eins.“ Edda segir það mis- jafnt hvort þjóðhátíðargestir komi með eigin veigar af megin- landinu eða versli í Vestmanna- eyjum. „Fólk sem kemur fyrir föstudaginn kaupir oftar en ekki vínið sitt hjá okkur, en þeir sem koma eftir hádegi á föstudag þurfa að bjarga sér sjálfir,“ bendir Edda á. Við höfum nefni- lega þá reglu í hér í Eyjum að loka vínbúðinni klukkan eitt föstudaginn fyrir verslunar- mannahelgi.“ bergsteinn@frettabladid.is 12 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Drykkjumet slegi› um helgina Ljóst er að margir ætla að fá sér í staupinu um verslunarmannahelgina. Búist er við að landsmenn kaupi í vik- unni um 700 þúsund lítra af áfengi fyrir hálfan milljarð króna sem er met. Akureyringar fjórfalda birgðirnar fyrir helgina og vínbúðirnar á Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum taka líka mikið til sín. HVAÐ DREKKUM VIÐ MIKIÐ? Íslendingar sem mega samkvæmt lög- um neyta áfengis, það er 20 ára og eldri, eru tæplega 207 þúsund sam- kvæmt vef Hagstofunnar. Miðað við söluspá ÁTVR drekkur hver Íslendingur yfir tvítugu að jafnaði um 3,4 lítra af áfengi fyrir og um verslunarmanna- helgina. Ef aðeins er litið til bjórsins, sem telur um 90 prósent af áfeng- isversluninni fyrir helgina, má gera ráð fyrir að allir Íslendingar yfir tví- tugu drekki um þrjá lítra af bjór fyrir og um helgina. Það sam- svarar um níu bjórum í 350 millilítra umbúðum. Mótmælendum við Kárahnjúka hefur verið gert að yfirgefa tjaldbúðir sínar við Kárahnjúka í kjölfar harðra átaka við lögreglu, þar sem þrír Bretar voru handteknir. Fulltrúi sýslumanns á Seyð- isfirði segir mótmælendur hafa sýnt af sér gróft ofbeldi, en mótmælendur segja hins vegar að mótmælin hafi far- ið friðsamlega fram þar til lögregla mætti á staðinn. „Mér finnst að það eigi að senda þetta lið úr landi,“ segir Marteinn S. Björns- son bifreiðarstjóri og á þar við erlenda mótmælendur við Kárahnjúka. „Svo vill til að Marteinn var staddur í sumarfríi við Kárahnjúka í fyrradag og sá verksummerki mótmælanna. „Það er til skammar hvernig þetta fólk hagaði sér. Ég kann engan veginn að meta svona framkomu.“ Marteinn telur að það verði að efla löggæslu við Kára- hnjúka, að minnsta kosti um stundar- sakir, til að stöðva mótmælendur sem láti ófriðlega. „Það er ótækt að fólk sé að sprauta málningu yfir eigur annarra og valda skemmdum,“ segir Marteinn, sem telur fólk gera málstað sínum lít- inn greiða með svona framkomu. MARTEINN S. BJÖRNSSON BIFREIÐ- ARSTJÓRI. fietta fólk er til skammar MÓTMÆLENDUR REKNIR FRÁ KÁRAHNJÚKUM SJÓNARHÓLL Sólin skín á okkur hér á Norðurlandi þar sem við göngum frá Sveinsstöð- um í Húnavatnssýslu að Laugabakka. Það hefur viðrað svo vel á okkur að allt sem stendur út úr fötunum er orðið nærri svart og ef við förum úr þeim erum við köflóttir. Við vorum boðnir í grillveislu á þriðju- dagskvöld hjá Valgarði Hilmarssyni, forseta bæjarstjórnar Blönduóss. Að sjálfsögðu var boðið upp á lamb enda er eins og Guðbrandur segir: „Lambið best fyrir göngumenn“. Það fjölgaði um heilan helling í aðdá- endahópi Bjarka um daginn þegar við gengum um Langadal en þá hlupu með okkur kýr dágóðan spotta. Þær voru einstaklega hrifnar af Bjarka en líklega hefur nytin eitthvað dottið niður við öll þessi hlaup. Við höfum nú gengið um merkar hrossaræktarsýslur og oft var Guð- brandur að því kominn að beisla einn klárinn og fara ríðandi það sem eftir var leiðar. Hinir í hópnum voru þó ekki eins spenntir fyrir þeirri hugmynd. Guðbrandur hlakkar þó mjög til föstu- dagsins. Þá á að taka daginn snemma til að losna við umferðina, sem að öllum líkindum verður svakaleg fyrir helgina. Stefnan er að fara norður á Strandir, um áttatíu kílómetra leið að Broddanesi þar sem Guðbrandur er fæddur og uppalinn, og háfa lunda. Auðvitað ætlum við að gæða okkur á veiðinni um kvöldið. Kær kveðja frá sólbrúnum göngu- hrólfum. K‡rnar í Langadal hrifnar af Bjarka HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI nær og fjær „Mér hefur veri› stungi› í steininn af og til og vi› vorum bönn- u› á N‡ja Sjálandi um tíma en fla› er allt í gó›u núna.“ JIM ROSE SIRKUSSTJÓRI Í FRÉTTA- BLAÐINU. „Ég kasta›i einu sinni John Travolta út flar sem allt var fullt á hót- elinu flegar hann kom en ég myndi ekki gera fla› í dag.“ STEINÞÓR JÓNSSON HÓTELSTJÓRI Í KEFLAVÍK Í DV. OR‹RÉTT„ “ LAGER ÁTVR Lagerstarfsmenn vinna myrkranna á milli til að sjá vínbúðum fyrir birgðum svo landsmenn geti slökkt þorstann. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A HÖSKULDUR JÓNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.