Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 16
16 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Verðmerkingar á útsölum í Kringlunni og Smáralind voru til fyrirmyndar í flesta staði samkvæmt úttekt Frétta- blaðsins sem gerð var fyrir helgina. Samkeppnislög kveða á um að útsölu- vörur megi aðeins auglýsa sé um raun- verulega lækkun að ræða og þess vegna skuli gæta þess að upprunalegt verð vörunnar sé greinilega merkt. Reyndist svo vera í meirihluta tilfella á báðum stöðum og hverjum viðskipta- vini því í flestum tilvikum ljóst hversu mikil lækkun hverrar vöru var. Í nokkrum tilfellum var vara merkt upp- runalegu verði en auglýsingaspjöld kynntu afslætti yfir línuna. Þannig voru allar vörur hjá Boss í Kringlunni á 50 prósenta afslætti og auðvelt að draga helming frá uppgefnu verði. Málið vandaðist aðeins þegar um minni eða meiri afslætti var að ræða. Hjá Ice in the Bucket í Kringlunni var 30 prósenta af- sláttur af öllum vör- um en þar sem hug- arreikningur getur reynst fólki miserfið- ur verður að gefa versluninni mínus fyrir það. Aðeins í einu tilviki í Hagkaupum í Kringl- unni reyndist útsölu- verð ekki rétt við afgreiðslukassa. Hefur verslunin tekið virðisaukaskatt af útsöluvörum sínum en sú lækkun hafði ekki skilað sér á kassa verslunar- innar í Kringlunni á fimmtudaginn var. -aöe Ver›merkingar til fyrirmyndar ÚTSÖLUR Í KRINGLUNNI OG SMÁRALIND: FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I hagur heimilanna Toyota 2834 Hyundai 873 Volkswagen 859 Ford 768 Honda 746 Skoda 624 Subaru 491 Suzuki 479 Nissan 481 Mitsubishi 417 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. MEST SELDU BÍLARNIR 2005* *1. jan – 22. júl 2005 Ganga um stífpússaðir eins og á betri veitingahúsum í New York Alfreð með einkaþjóna í Orkuveitunni Margir reiða sig orðið á ferðatryggingar þær er kortafyrirtækin bjóða sé ferðalag greitt að öllu eða hluta til með kortum. Með tilvísun í hryðjuverkaárásirnar í London og ógnina um fleiri slíkar víða um heim næstu árin er vert að hafa í huga að tryggingar kortafyrirtækjanna, Visa og Mastercard, taka ekki til alls þess tjóns sem ferðalangar geta orðið fyrir. Líkamstjón: Korthafar eru ferðaslysatryggðir vegna líkamstjóns af völdum hryðju- verka nema um sé að ræða hryðjuverk þar sem við sögu koma kjarnavopn, efnavopn eða líffræðileg vopn. Af því leiðir að korthafi sem varð fyrir líkamlegu tjóni í árásunum í London, Madrid eða New York á rétt á bótum vegna sjúkra- kostnaðar og líkamstjóns. Breytt ferðatilhögun: Neyðist korthafi til að breyta ferðatilhögun sinni vegna hryðjuverka eða ógnarinnar um slík grimmdarverk fæst slíkt ekki bætt gegnum tryggingar korthafa. Gildir það sama hvort sem hætt er við ferð eða henni flýtt eða seinkað. Tafir: Allar tafir á ferðum falla ekki undir bótasvið ferðatrygginga kortafyrirtækj- anna og því fást engar bætur fyrir verði röskun á ferð viðskiptavina. Gildir þá einu hvort um er að ræða flugsamgöngur, almenningssamgöngur eða aðrar leiðir. Tryggingar í skugga hryðjuverka STAÐREYNDIR UM SÓLSKIN: GOTT: - UV-geislar sólarinnar er meginuppspretta D-vítamíns fyrir mannfólkið. D-vítamín er nauðsynlegt beinum, vöðvum og ónæmiskerfinu. - D-vítamín er einnig talið hafa hamlandi áhrif á krabbameinsvaldandi æxli. - Sólskin hefur áhrif á starfsemi heilans. Hann framleiðir þá svokölluð tryptómín, sem bæta skap okkar. VONT: - Leiðandi orsakavaldur húðkrabbameins. - Fimm sinnum líklegra en ekki að verða fyrir starblindu í augum. - Sólbruni getur breytt dreifingu og eðli hvítra blóðkorna í líkama okkar og skemmt erfðafræðaefni hvers og eins. Ekki allt gott undir sólinni » NEYTENDUR Sumarið er víst tíminn en stutt er það og því ekki óeðli- legt að Íslendingar eyði upp til hópa eins miklum tíma utan dyra og hægt er þegar veður leyfir. Sé íslenska sumarið manni ekki að skapi er lítið mál að bregða sér bæjarleið til útlanda og liggja utanveltu á hvítum sandi í viku eða tvær. Koma til baka með sól- brún og sælleg og mögulega með auknar líkur á húðkrabbameini. Rannsóknir hafa sýnt að sól- bruni snemma á lífsleiðinni, sér- staklega hjá börnum, getur þýtt að viðkomandi er í mun meiri hættu síðar á lífsleiðinni að fá húðkrabbamein. Alþjóðaheil- brigðisstofnunin hefur staðfest þetta enda talið sannað að UV- geislar sólarinnar hafi áhrif á ónæmiskerfi líkamans og geri okkur viðkvæmari gagnvart sortuæxlum og húðkrabbameini. Íslendingar eru engir eftirbát- ar nágrannaþjóðanna. Alls staðar hefur tíðni húðkrabbameina margfaldast og hér á Íslandi greinast árlega vel yfir hundrað einstaklingar með húðkrabba- mein af einhverju tagi. Fyrir fjörutíu árum síðan greindust tuttugu manns árlega en vitan- lega er eftirlit og almenn vit- neskja um hætturnar meiri nú en þá. Vegna þess að sólskaði kemur ekki fram fyrr en löngu síðar er mikilvægt að fylgjast með öllum breytingum á líkamanum og fara strax til læknis verði vart grun- samlegra bletta sem ekki voru þar áður sem hafa stækkað eða breytt um lit. Forvarnir eru þó allra bestar. Nota skal drjúgt af sólarvörn, hvort sem legið er á ströndum á Spáni eða Ströndum fyrir vestan. Nota skal háa vörn fyrstu vikuna erlendis og minnka vörnina eftir það. Læknar segja þjóðráð að dvelja í skugganum þegar sól er hvað hæst á lofti um hádegisbil og mælast til að fólk sé klætt í bol með hatt og sólgleraugu. Gæta skal þess vandlega að brenna ekki og fylgjast sérstaklega með börn- um. albert@frettabladid.is Íslendingar eru engir eftirbátar nágrannafljó›anna flegar kemur a› almennri sóld‡rkun. fieir eru heldur engir eftirbátar flegar kemur a› sívaxandi fjölda einstaklinga sem greinast me› hú›krabbamein af einhverju tagi. AÐGÁT SKAL HÖFÐ Börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir sólbruna en færðar hafa verið sönnur á að slíkur bruni getur komið fram síðar á lífsleiðinni sem húðkrabbamein. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R Bílaöryggisprófanir EuroNCAP: Fáir me› toppeinkunn NEYTENDUR Á þeim átta árum sem liðin eru síðan öryggisprófunarsam- tökin EuroNCAP hófu prófanir sín- ar á bifreiðum hafa aðeins 26 teg- undir fengið fimm stjörnu einkunn þegar kemur að öryggi fullorðinna. Einkunnir eru gefnar fyrir öryggi gagnvart fullorðnum, fyrir börn í bílnum og gagnvart gangandi vegfarendum. Hér er þó aðeins litið á tölurnar gagnvart fullorðnum en samtökin gefa hæst fimm stjörnur fyrir öryggi en miðað er við árekst- ur tveggja bíla á 64 kílómetra hraða en rannsóknir hafa sýnt að það er sá hraði sem algengastur er þegar slys og umferðaróhöpp eiga sér stað í þéttbýli. Eins og sést á töflunni standa franskir bílar sig með ágætum þegar að prófinu kemur. Renault, Citroën og Peugeot eiga öll fleiri en eina tegund bíla á listanum meðan Audi og Ford eiga aðeins einn. Þó ber að hafa í huga að EuroNCAP hafa ekki framkvæmt prófanir á öllum tegundum og út- skýrir það að hluta fjarveru banda- rískra og japanskra bíla á listanum. Prófin sjálf eru þó að hluta til þróuð í Bandaríkjunum og notast við svip- aða staðla. Fimm stjörnur þýða að viðkom- andi bíll veitir bílstjóra og farþeg- um meiri vörn við árekstur en aðrir sem minni einkunn hljóta. -aöe Opel Zafira 2005 Opel Astra 2004 Renault Scenic 2003 Renault Laguna 2003 Renault Mégane 2003 Renault Clio 2005 VW Touran 2003 VW Touareg 2004 VW Golf 2005 Peugeot 807 2003 Peugeot 407 2004 Peugeot 1007 2005 BMW X5 2003 BMW 3-series 2005 BMW 1-series 2004 Volvo XC90 2003 Volvo S40 2004 Audi A6 2004 Lexus GS300 2005 Saab 9-5 2003 Saab 9-3 2003 Citroën C5 2004 Citroën C4 2004 Mercedes C-class 2001 Mercedes A-class 2005 Toyota Avensis 2003 Ford Focus 2004 * með tilliti til öryggis fullorðinna Fimm stjörnu bílar M YN D /G ET TY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.