Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 42
25FIMMTUDAGUR 28. júlí 2005 KB banka upp- gjör í dag KB banki birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung í dag en bank- anum er spáð rúmlega 11 millj- arða króna hagnaði. Á sama tíma í fyrra hagnaðist bankinn um 3,5 milljarða og mun því vera mikil hagnaðar- aukning milli ára. Gaman verður að sjá hvort KB banki slær út hagnað- armet Burðaráss en félagið hagn- aðist um 24,5 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaður KB banka var tæpir 11,5 milljarða á fyrsta ársfjórð- ungi og ef spár ganga eftir verður hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins 23 milljarðar króna. -dh Spá› rúmum 3,5 milljör›um í hagna› Landsbankanum er spáð rúmlega 3,5 milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi. Er það nokkur aukning frá sama tímabili árið 2004 en þá var hagnaður bankans tæpir 1,8 milljarðar. Hagnaður bankans var rúmir sex milljarðar á fyrsta ársfjórð- ungi sem var umfram væntingar greiningardeilda bankanna. Breska verðbréfafyrirtækið Teather & Greenwood kemur inn í afkomu Landsbankans frá og með öðrum ársfjórðungi. -dh Össur birtir í dag Össur birtir afkomutölur fyrir annan ársfjórðung í dag. Búist er við tæpum 300 milljóna króna hagnaði á tímabilinu en á sama tíma í fyrra var hagnaður fé- lagsins 284 milljónir króna. Þá hafði hagnaðurinn tvöfaldast milli ára og var yfir væntingum. Spennandi verður að sjá niður- stöður annars ársfjórðungs vegna þess að afkoman á fyrsta ársfjórð- ungi var undir spám greiningar- deilda bankanna. Þá hafði salan aukist óverulega milli ársfjórð- unga og dróst salan á Evrópu- markaði saman. -dh 365 ljósvakamiðlar eiga von á 136,1 milljóna króna endur- greiðslu úr ríkissjóði vegna endurálagningar ríkisskattstjóra á félagið á árunum 1997 og 1998, kemur fram í tilkynningu á vef Kauphallarinnar. Segir í tilkynningunni að yfir- skattanefnd hafi fallist á kröfu 365 ljósvakamiðla, sem áður hét Íslenska útvarpsfélagið, um að fé- laginu hafi verið heimilt að nýta sér yfirfæranlegt tap vegna rekstrar Íslenskrar margmiðl- unnar að fullu og tap Sjónvarps- markaðarins að hluta. -jsk Félagið á orðið í tíu sænskum félögum. Burðarás hefur aukið fjárfestingar sínar enn frekar í Svíþjóð með kaup- um á bréfum í fimm félögum. Fé- lögin sem um ræðir eru Broström, Observer, Pricer, SCA og Tele 2. Andvirði kaupanna er um tveir millj- arðar króna. Eftir kaupin er Burða- rás fjórði stærsti hluthafinn í Broström og Observer. Burðarás hefur fjárfest grimmt í Svíþjóð á undanförnum misserum. Stærstu fjárfestingarnar eru í Carnegie og Skandia en þar að auki á fyrirtækið bréf í Cherryföre- tagen, Intrum Jusitia og Scribona. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, segir að félagið leiti að fjárfestingartækifærum í góðum félögum sem eru vanmetin. Geta Burðaráss til frekari fjárfestinga sé um 130 milljarðar króna. Dagens Industri segir frá því að einn helsti ráðgjafi Burðaráss sé Fredrik Danielsson, sonur Eriks Danielsson - stofnanda Pricer og næststærsta hluthafans. - eþa 365 fá 136 milljóna endurgrei›slu 365 LJÓSVAKAMIÐLAR 365 hefur nú fengið 136,1 milljón króna endurgreiðslu úr ríkissjóði vegna endurálagningar ríkis- skattstjóra á félagið á árunum 1997 til 1998. Bur›arás eykur fjárfestingar FRIÐRIK JÓHANNSSON HJÁ BURÐAR- ÁSI Félagið eykur fjárfestingar sínar í Sví- þjóð með kaupum í fimm félögum. Það hefur burði til fjárfestinga fyrir 130 millj- arða króna.NÝIR EIGNARHLUTIR BURÐARÁSS Í SVÍÞJÓÐ Fyrirtæki Starfssvið Verðmæti hlutar* Bromström Flutningastarfsemi 812 Observer Markaðsrannsóknir 509 Pricer Hugbúnaðarlausnir 49 SCA Pappírsframleiðsla 418 Tele 2 Símafélag 287 * Í milljónum króna AFKOMA ÖSSURAR Á ÖÐRUM ÁRS- FJÓRÐUNGI – Í MILLJÓNUM KRÓNA Spá Íslandsbanka 286 Spá KB banka 295 Spá Landsbankans 241 Meðaltal: 274 AFKOMA KB BANKA Á ÖÐRUM ÁRS- FJÓRÐUNGI - Í MILLJÓNUM KRÓNA Spá Íslandsbanka 11.495 Spá Landsbankans 11.265 Meðaltal: 11.380 AFKOMA LANDSBANKANS Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI – Í MILLJÓNUM KRÓNA Spá Íslandsbanka 3.567 Spá KB banka 3.700 Meðaltal: 3.634 SIGURÐUR EINARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.