Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 32
5FIMMTUDAGUR 28. júlí 2005
Falleg sængurföt
í miklu úrvali.
Lokað
á laugardag
Tivoli - PAL ferðaútvarp
Tilvalið í ferðalagið
Bleik vesti og skræpótt veggfóður
Líf og störf kvennaskólapía á Blönduósi í hundrað ár.
Aðalbjörg Ingvarsdóttir, fyrrverandi skóla-
stjóri Kvennaskólans, hefur umsjón með
sýningunni.
Úr baðstofunni í Kvennaskólanum á
Blönduósi.
Bleikt vestið ber greinileg merki litskrúð-
ugs sjöunda áratugarins og kvenna-
skólapíurnar hafa eflaust haft eitthvað um
valið á veggfóðrinu að segja.
Í Kvennaskólanum á Blönduósi
stendur nú yfir sýning með mun-
um úr sögu skólans. Aðalbjörg
Ingvarsdóttir hefur umsjón með
sýningunni en hún var síðasti
skólastjóri skólans, sem var lagð-
ur niður árið 1978. Á sýningunni
er að finna muni frá öllum ára-
tugum í sögu skólans, allt frá
stofnun hans árið 1879. Verkin
endurspegla tíðarandann hverju
sinni og meðal annars voru útbú-
in tvö nemendaherbergi í anda
þriðja og sjöunda áratugarins
þar sem má sjá hvernig líf
stúlknanna hefur verið á þeim
tíma. Þar sem sjöundi áratugur-
inn er alltaf í tísku er tilvalið
fyrir fólk að kíkja á sýninguna og
fá skemmtilegar hugmyndir.
Sýningin er opin til 7. ágúst, en
vert að benda á að við hliðina á
Kvennaskólanum er Heimilisiðn-
aðarsafnið og ástæða til að
staldra við úti við ósa Blöndu og
líta þær merku sýningar sem þar
standa yfir.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Orkídean hennar Steinunnar er
þriggja ára og þetta er annað árið
sem hún blómstrar svona vel. Í
fyrra var hún með tuttugu og sjö
blóm þegar mest lét. Steinunn
segir að það sé ekki algengt að
þær nái svo mörgum blómum en
hún á nokkrar í viðbót sem ekki
blómstra jafn mikið og þessi.
Aðspurð um hvernig fólk eigi
að bera sig að til að fá orkídeur til
að blómstra svona vel segist
Steinunn ekki hafa nein sérstök
ráð. „Þær hafa verið á mjög björt-
um stað, ekki alveg í sólinni en
mjög nálægt glugganum. Ég hef
bara vökvað þær eftir hentisemi
en aldrei verið að dýfa þeim eitt-
hvað ofan í vatn eða vesenast með
þær. Ef loftræturnar eru grænar
og sprækar líður þeim vel en ef
þær fara að skorpna líður þeim
illa.“
Hún segir að mörgum hafi
reynst vel að vera með orkídeur í
gegnsæum pottum svo loftræt-
urnar geti fengið ljós. Hún hafi þó
ekki gert það sjálf en geymir sína
orkídeu í mósaíkpotti sem er eftir
hana sjálfa.
Orkídea heitir öðru nafni
brönugras og er algengt potta-
blóm hér á landi.
Orkídean er með tuttugu blómstrandi og
yfir fjörutíu knúppum.
Blómstrandi brönugras
Myndlistarkonan Steinunn Bergsteinsdóttir á orkídeu eða
brönugras með yfir tuttugu blómum.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »