Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 28

Fréttablaðið - 28.07.2005, Page 28
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 6 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er fimmtudagur 28. júlí, 209. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 4.21 13.34 22.45 AKUREYRI 3.47 13.19 22.48 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Nína Björk Geirsdóttir golfari á nokk- uð erfitt með að svara því hver hennar uppáhaldsflík sé enda spáir hún ekki mikið í slíkt frá degi til dags. „Það er ein peysa sem ég á sem er í nokkru uppáhaldi en hana keypti ég í Frakklandi fyrir um mánuði síðan. Hún er svört og gengur við öll tækifæri. Mér finnst hún rosalega flott,“ segir Nína en peysan hentar einmitt mjög vel hér á landi. „Það er alls ekki of heitt að ganga í henni núna og fínt á kvöldin þegar golan blæs.“ Nína fann peysuna í lítilli og ódýrri verslun í Frakklandi og gengur í henni nán- ast á hverjum degi. „Ég nota hana mjög mikið enda gengur hún við allt. Hún passar við gallabuxur og pils og mér finnst rosa- lega gott að hafa hana með mér þegar ég fer út og smeygi mér í hana yfir bol þegar kólna fer.“ Nína er ung og öflug golfkona og eins og flestir vita má ekki klæðast hverju sem er á golfvellinum. „Það má ekki vera í galla- buxum heldur klæðist fólk fínni buxum, pólóbolum og v-hálsmáls peysum. Fata- skápurinn minn er eiginlega tvískiptur. Ég á mikið af golffötum sem ég nota eingöngu á golfvellinum en pólóbolina get ég auðvit- að notað hversdags. Annars er ég ekki mik- ið fatafrík. Ég kaupi mér föt reglulega og á dágott safn inni í skáp. Ég hef mjög einfald- an og ódýran smekk og versla mikið í H&M og öðrum ódýrum verslunum.“ lilja@frettabladid.is Er með tvískiptan fataskáp tiska@frettabladid.is Leik- og söngkonan Hilary Duff óttast mjög að auð- æfi hennar gætu fokið út í veður og vind því hún eyðir hrikalega háum upphæðum í föt handa hundin- um sínum. Duff eyðir um tíu þúsund krón- um í eina flík fyrir hundinn, sem klæðist henni aðeins nokkrum sinnum. „Þegar þau hafa verið þvegin nokkrum sinnum eru þau ekki lengur mjúk og það vill Lola ekki,“ segir Duff. Ofurfyrirsætan Gisele sætir harðri gagnrýni frá forstjóra Elite, John Casablancas, í nýjasta hefti tímaritsins Complex. „Mér finnst leiðinlegt að segja það en Gisele hefur ekkert gáfu- legt að segja. Ekkert framlag til mannkynsins,“ segir Casablancas og bætir við að hún sé eins og tóm skel. Casablancas finnst hún jafnframt spennandi og áhuga- verð fyrirsæta. Hann hefur einnig gagnrýnt Heidi Klum fyrir hæfi- leikaskort. Leikkonan Brittany Murphy mun auglýsa Jordache-galla- buxur í haust og er fyrsta stjarnan sem er andlit merkis- ins. Jordache-gallabuxurnar urðu vinsælar á sjötta áratugn- um og vilja framleiðendur þeirra nú ná til yngri kaupenda. Auglýsingamyndirnar voru tekn- ar af Patrick Demarchelier og í þeim sést Murphy á hestbaki í gallabuxunum. Fyrstu auglýs- ingarnar munu birtast í tímaritum í september. Fatarisinn Gap ætlar að auka söluna á næstunni með því að setja á markað- inn ilmvatn og aðrar snyrtivör- ur á næsta ári í samstarfi við Int- er Parfums Inc. Vörurnar verða seldar í verslun- um Banana Republic og í Gap-verslun- um. Línan í Banana Republic kemur í verslanir í haust á næsta ári en Gap- línan verður frumsýnd ári seinna. Nína gengur í uppáhaldspeysunni nánast á hverjum degi. LIGGUR Í LOFTINU í tísku FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR ATVINNA TÍSKA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Ég tók engan bita, ég smakkaði bara lyktina! Stuð- og stemningsvörur fyrir heimilið BLS. 5 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is Þykir heldur fingralöng SÖNGKONAN GWEN STEFANI STELUR MISKUNNARLAUST HÖNNUN ANNARRA OG NOTAR Í EIGIN FATALÍNU, LAMB. Söngkonan og fatagúrúinn Gwen Stefani stelur öllum hugmyndum sem hún getur fyrir nýju tískulínuna sína LAMB, Love Angel Music Baby. Hún varar líka vini sína við því að klæðast fötum sem henni líkar því hún gæti stolið þeim og sett þau í nýju línuna sína. Gwen hefur játað að stela frá pönkhönnuðinum Vivienne Westwood og hún stal meira að segja sjóræningjaútlitinu sem Vivienne er fræg fyrir. Hún skamm- ast sín ekkert fyrir að vera eins og tískusníkjudýr. „Ég er gráðug og mesti þjófur í heimi. Ég elska að finna hluti og gera þá að mín- um eigin. Ég segi við vini mína að vera ekki í neinu sem ég myndi vilja fá lán- að því ég myndi senda það til Kína og vinir mínir sæju það ekki aftur fyrr en í nýju línunni minni,“ segir Gwen. ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Gwen er talin ein sú flottasta í tauinu vestan hafs.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.