Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 30

Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 30
Bread & Butter kaupstefnan hefur verið haldin síðan árið 2001 og í ár sló Vivienne Westwood í gegn. Bread & Butter kaupstefnan í tískuiðnaðinum var haldin í vik- unni sem leið. Þar stíga á stokk margir þekktir og óþekktir hönn- uðir sem hafa ef til vill fengið leið á stóru tískuvikunum í tísku- höfuðborgum heimsins, París, London, New York og Róm. Það má með sanni segja að Vivienne Westwood hafi stolið senunni á kaupstefnunni enda einn fremsti hönnuður heimsins. Hún sýndi flotta og sérstaka hönnun eins og henni einni er lagið og má segja að allir hinir hafi eiginlega fallið í skuggann af henni. Myndirnar segja sína sögu. 3FIMMTUDAGUR 28. júlí 2005 Kjólarnir fást hjá okkur 50% afsláttur af öllum útsöluvörum Útsalan í fullum gangi Ilmvatn er líklega einn elsti lúxus sem til er í heimi þrátt fyrir að á ýmsum tímum hafi svitalykt kannski verið algengara ilmvatn, í það minnsta hjá víkingum á norðurslóðum. Og þótt Lúðvík IV hafi baðað sig í ilmvatni og púðri þarf að leita enn lengra aftur, til Egypta eða Grikkja, til að finna heimildir um ilmnotkun. Nú á dögum eru ilm- vötn ein mikilvægasta aukatekjulind tískuhúsanna auk þess sem ilmvatnið er tákn fyrir glæsileik og ímynd tískuhússins. Í gegnum tíðina hafa þau frægustu skapað ilmvötn sem hafa orðið heimsþekkt eða jafnvel söguleg, til dæmis Chanel nr. 5 sem hefur verið notað til að sofa í, Opium YSL, Miss Dior og svo mætti lengi telja. Í dag eru ilmvötn yfirleitt markaðsett á vorin eða haustin. Á haustin til þess að ná sem mestri sölu fyrir jólin, sem eru líklega allra mikilvægasti árstími í ilmvatnssölu. Á vorin er það orðin venja að setja á markað léttari ilmi sem eiga betur við árstíðina og lykta betur í sumarsól og hita en þyngri ilmir sem betur falla að vetrartíð. Calvin Klein hefur sett á markað ilmvatnið Summer í sólgulri flösku með lykt af blómum og heitum sandi. Eau d’été Very irresistible frá Givenchy lyktar af rósum og sítrusi. In love again frá YSL er ávaxtablanda með greipaldin, vínberjum og bláberjum og Jean-Paul Gaultier hefur í nokkur sumur boðið upp á Eau d’été Classique en flaskan ein er listaverki líkust. Auðvitað eru líka herrailmvötn í boði fyrir sumarið en þau eru miklu færri en fyrir konur og oft meira heilsárs ilmvötn sem seljast allt árið um kring. Einn frægasti snyrtivöruframleiðandi í Frakklandi er án efa Guerlain og fjölmörg ilmvötn sem Guerlain hefur skapað svo sem Vega, Sous le vent, Instant, Shalimar og fleiri. Það var árið 1914 sem Guerlain var opnað í húsi númer 68 á fallegustu breiðgötu heims, eins og Frakkar kalla l’Avenue de Champs Elysée. Nú hefur þessi gamla búð fengið andlitslyftingu og var opnuð að nýju í júní á þessu ári. Sexhundruð fermetra verslun á þremur hæðum, eingöngu helguð snyrtivörum og ilmvatni. Húsnæðið sem er á lista yfir friðuð menningarverðmæti er út af fyrir sig þess virði að heimsækja, þó ekki væri til annars en að skoða fallegan arkitektúr Maxime d’Angeac og innanhússkreytingar Andrée Putman. Svo er einfald- lega hægt að skoða allar gerðir af flöskum, skreyttum borðum, gyll- ingum og jafnvel ekta perlum eins og ilmvatnið Plus que jamais sem er í flösku úr kristal frá Baccarat og kostar 1.500 evrur (um 115.000 krónur íslenskar) sem er í takmörkuðu upplagi og markaðssett í til- efni af opnuninni. Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Sumarvatn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY Ofurfyrirsætan Naomi Campbell hefur verið sett á svarta listann af manninum sem kom ferli hennar á skrið því hún er skapstór og illkvittin. Campbell var vinsæl þegar hún var uppgötvuð af Elite-umboðsskrifstofunni fyrir fyrirsætur í Bretlandi þegar hún var fimmtán ára. John Casablancas, forstjóri Elite, hefur ekki unnið með henni síðan árið 1989 og segir að hann muni aldrei vinna með henni aftur. „Naomi hefur illkvittna hlið vegna skaps, lífsstíls og fortíðar. Mér líkar vel við hana en ég myndi aldrei vinna með henni aftur þó ég fengi allt gull í heim- inum að launum. Hún beitti bókunar- starfsfólk sitt ofbeldi og það var óþol- andi,“ sagði Casablancas í samtali við New York Daily News. Westwood stelur senunni Klassískt og flott og gaman að sjá að bux- urnar eru farnar að ná upp í mitti. Campbell segist hafa lært af fortíð sinni en hún var djúpt sokkin í eiturlyfjaneyslu. Campbell þykir illkvittin og skapstór FORSTJÓRI ELITE, FYRIRTÆKISINS SEM UPPGÖTVAÐI FYRIRSÆTUNA, VILL ALDREI VINNA MEÐ HENNI AFTUR. SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » KVÖLDÞÁTTURINN ALLA VIRKA DAGA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.