Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 31

Fréttablaðið - 28.07.2005, Síða 31
Lítil vatnsvél á 1.990 kr. Playboy-sloppur á 8.990 kr. og handklæði á 3.900 kr. Litadýrð Sumarlegir litir og lífleg munstur lífga upp á heimilið. Ekki rjúka í að mála veggina í æpandi litum eða kaupa sófa með skræpóttu áklæði. Það er auðveldara og ódýrara að bæta litum inn á heimilið með því að lífga upp á litlu hlutina. Kauptu lit- ríka lampaskerma, púða og dúka og skiptu þeim út þegar þú færð leið á þeim.[ ] Íslensk list allerie r g ó ð g j ö f Tilboðsgerð, tækjaleiga, viðhald, hurðir, gluggar, timbur, íbúða-, sumar og stálgrindarhús, vörubíll m/ 9 m. bílkrana Hákon Páll Gunnlaugsson löggiltur húsasmíðameistari og byggingastjóri Aus tu rbyggð 20 • Laugarás • 801 Se l foss ☎ 486 8862 / 894 4142 • ö hakon@eyjar.is Gistiheimili Studio íbúðir Bolholt 6 105 Reykjavík Sími: 517-4050 www.bolholt.is Verslunin Gismo var opnuð fyrir stuttu síðan á Lauga- vegi 70 í Reykjavík og þar kennir svo sannarlega ým- issa grasa. „Ég er með mikið af stuði og stemningsvörum. Ég sel drykkju- leiki, ýmislegt sniðugt í gæsa- og steggjapartí, plaköt, skraut og fleira í partíið og ýmislegt skemmtilegt sem fólk hefur gaman af,“ segir Sindri Lúðvíksson, eigandi Gismo. Verslunin selur líka sniðuga gjafavöru og líkist litlum verslunum í stórborgum Evrópu þar sem oft er hægt að kaupa eitthvað öðruvísi og fyndið sem ekki fæst hér á klakanum. Ekki spillir fyrir að vörurnar eru alls ekki dýrar. Viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa og segir Sindri gesti og gangandi mjög ánægða með verslunina. „Þetta er greinilega eitt- hvað sem hefur vantað á Íslandi. Ég sel nátt- úrlega öðruvísi vörur en margir og ég veit ekki til þess að neinn annar á Íslandi sé með sams konar vörur og ég er með.“ Fréttablaðið kíkti í heimsókn til Sindra og fann ansi margt sniðugt í partíið, nú eða innflutningsgjöf. lilja@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H H Stuð og stemning Fjögur Playboy-glös saman í pakka á 2.690 kr. Sex diskamottur í pakka á 990 kr. Glasaskraut, tólf saman í pakka, á 990 kr. Playboy-upptak- ari sem glitrar á á 990 kr. Geðveikt stuð! Drykkjuleikur sem gefur keppanda rafstuð ef hann er of seinn í svifum, á 3.690 kr. Staup og tilheyrandi í skemmtilegan drykkjuleik á 1.490 kr. Útvarp í sturtuna með sogskál og öllu tilheyrandi á 1.990 kr. Upptakari með segulstáli sem hægt er að festa á ísskáp, á 2.990 kr. Röndótt og köflótt BÚTASAUMSSÝNING STENDUR YFIR Í ALLT SUMAR Í SKEMMUNNI Í ÁRBÆJ- ARSAFNI. Í skemmunni í Árbæjarsafni stendur nú yfir sýning á bútasaumsverkum. Sýn- ingin ber heitið „Röndótt og köflótt“ og er norræn farandsýning sem var opnuð í Svíþjóð 2002. Frá Svíþjóð fór hún til Danmerkur og Noregs og kom hingað til lands í lok maí. Hin sænska Ewa- Lisa Olsson fékk þessa hugmynd, að safna saman bútasaumsverkum frá norrænum konum og senda sýninguna á milli landa. Sýningin í Árbæjarsafni er afar fjölbreytt og gef- ur vonandi góða mynd af því sem norrænar konur eru að fást við í dag. Fimm verk frá ís- lenskum búta- saumskonum eru með, en samtals eru 88 verk talin upp í veglegri sýningarskrá. Sýningin stend- ur yfir í allt sum- ar. Mikið úrval af flottum luktum fyrir verslunarmannahelgina. Bjóðum einnig upp á glæsilegt úrval silki- blóma og gjafavara. „Opið frá 11-18 virka daga. Lokað í sumar á laugardögum“. Hlíðarsmára 11, Kópavogi s. 565 1504

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.