Fréttablaðið - 28.07.2005, Side 65

Fréttablaðið - 28.07.2005, Side 65
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Besti ferðafélaginn Ferðataskan í sumar Léttur öllari ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 2 86 51 06 /2 00 5 Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1. Mánaðargjald GSM er 600 kr. Ég hringi heim, ég hringi í Gunna í London, ég hringi í konuna og sendi henni SMS. Allt þetta á 0 kr. 0 kr. 0 kr. 0 kr. 120 mínútur á mánuði úr GSM í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga mest samskipti við. Þú heldur áfram að tala við GSM vin fyrir 0 kr. á mínútuna í 60 mín. á dag og senda honum 30 SMS fyrir 0 kr. á dag. Þú hringir heim úr GSM símanum þínum án þess að greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag. Og1 lækkar verulega kostnað heimila sem eru með GSM áskrift, Heimasíma og Internet hjá Og Vodafone. Kynntu þér einnig ávinninginn fyrir Heimasíma og Internet. GSM Vinur í útlöndum GSM vinur Þegar þú hringir heim JÓNS GNARR BAKÞANKAR Nirvana Alla ævi hef ég þráð að eignastinnri frið. Ég er nefnilega að upplagi frekar ör. Ég hef verið frið- laus af þrá í frið, rótlaus og eirðar- laus. Ég hef leitað hans víða, bæði hérlendis og í útlöndum. Ég hef lesið þykkar bækur sem lofa innri friði. Ég hef talað við fólk sem segist hafa öðlast innri frið. Og stundum gat ég rétt fundið fyrir honum en ég náði honum aldrei alveg. Ég var kominn á þá skoðun að ég fengi ekki frið fyrr en ég væri dáinn. ÉG hef reynt að kaupa mér frið með veraldlegum eignum, vinnu og við- urkenningu. Ég var frægur og ríkur, átti einbýlishús og jeppa og fólk dáðist að mér. En það var sama hvað ég keypti mér af drasli, ég öðlaðist engan frið. Hann fór ekki að koma fyrr en ég missti allt. ÉG komst að því, við illan leik, að maður öðlast ekki innri frið fyrr en maður hættir að þrá hann. Sá sem leitar að lífi sínu mun týna því en sá sem gleymir sjálfum sér, kærleikans vegna, mun finna sjálfan sig. Ef manni líður illa þá er það besta sem maður gerir að fara og hjálpa ein- hverjum öðrum. ÞAÐ er til skemmtileg saga um mann sem leitaði að lífshamingj- unni. Hann hafði leitað víða þegar honum var sagt frá miklum vitringi sem var sagður hafa fundið lykilinn að lífshamingjunni. Og maðurinn fór að hitta vitringinn, sem bjó einn uppi á háu fjalli. Og hann spurði vitringinn hvernig maður öðlaðist fullkomna lífshamingju. Og vitring- urinn svaraði: „Með því að vera alltaf sammála öllum.” „Það getur ekki verið!” hrópaði maðurinn. „Nei, það er kannski satt hjá þér,” svaraði vitringurinn. LAUSNIN á lífsgátunni er þver- sögn. Sá sem þráir ást þarf að gefa hana fyrst. Og sá sem gefur hana vantar hana ekki, því hann á nóg af henni. Ef við losum okkur við allar langanir, væntingar, tilætlanir og kröfur og hefjum okkur yfir allar hvatir þá munum við öðlast meiri frið en okkur getur dreymt um. En hver er til í að fórna svona mörgum og merkilegum orðum fyrir eitt svona stutt og ómerkilegt eins og frið? Við þurfum ekki að deyja til að komast til himna, það er nóg að deyja sjálfum sér. Nirvana er mögu- legt, hér og nú. Við þurfum ekki að sigra heiminn heldur bara að snúa baki við honum. jongnarr@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.