Fréttablaðið - 16.08.2005, Blaðsíða 36
16. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
> Við erum hræddir um ...
... að Valsmenn hafi kvatt endanlega þær
litlu titilvonir sem þeir höfðu fyrir leikina í
Landsbankadeildinni í gær með því að ná
aðeins jafntefli gegn Keflvíkingum í
gærkvöld. 11 stig skilja
á milli Vals og FH þegar
12 stig eru eftir í
pottinum og má gera ráð
fyrir því að mótið ráðist í
næstu umferð, þegar
einmitt Valur kemur í
heimsókn til Kaplakrika.
Guðjón vill meira
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri
Notts County, er að vonum sáttur við að
vera á meðal þriggja efstu liða í ensku 2.
deildinni eftir þrjá leiki á tímabilinu en vill
samt sem áður sjá framfarir hjá læri-
sveinum sínum. „Við verðum að vera
grimmari í lausu boltana. Við eigum fjóra
leiki á næstu níu dögum og þar dugir
ekkert hálfkák,“ segir Guðjón.
sport@frettabladid.is
24
> Við hrósum ...
.... Hermanni Hreiðarssyni, leikmanni
Charlton á Englandi, sem fékk fína dóma
hjá breskum fjölmiðlum fyrir
frammistöðu sína sem
miðvörður í sigri liðsins á
Sunderland um helgina.
Hermann var af flestum talinn
einn besti leikmaður
Charlton í leiknum.
Valsmenn vir›ast endanlega vera búnir a› missa af lestinni í baráttunni vi› FH en li›i› ná›i einungis
jafntefli á heimavelli sínum í gær. Valur er nú heilum 11 stigum á eftir Íslandsmeisturunum.
Sanngjarnt jafntefli á Hlíðarenda
tapa mörgum boltum í loftinu.
Loksins þegar framherjar gest-
anna fengu boltann í lappirnar þá
skapaðist hætta þegar Guðmund-
ur Steinarsson átti frábært skot af
35 metra færi en boltinn hafnaði í
þverslánni. Valsmenn virtust við
þetta vakna af værum blundi og
tókst Atla Sveini Þórarinssyni að
skora mark sem dæmt var af
vegna rangstöðu.
Keflvíkingar mættu mun
ákveðnari til leiks eftir hlé og
gerðust tvívegis ágengir upp við
mark heimamanna án teljandi ár-
angurs. En eftir þessar tvær til-
raunir virtist allur vindur farinn
úr sóknaraðgerðum gestanna og
Valsmenn gengu á lagið og náðu
tökum á leiknum. Þrátt fyrir það
vantaði hreyfingu á boltalausum
mönnum því álitlegar sóknarað-
gerðir fjöruðu oftast út. Keflvík-
ingar tóku þá við sér með Jónas
Guðna Sævarsson í fararbroddi.
Besta færi gestanna í leiknum
kom svo þegar stundarfjórðungur
var eftir og Hörður Sveinsson veit
það manna best að hann átti að
gera betur. Hann fékk þá send-
ingu frá Gunnari Hilmari Krist-
inssyni sem Atli Sveinn missti af,
en skot hans var slakt og sigldi
framhjá. Fátt markvert gerðist
það sem eftir lifði leiks og í jafn-
tefli í raun sanngjörn úrslit. Vals-
menn misstu af dýrmætum stig-
um en Keflvíkingar færðust hins
vegar ofar í töflunni við þetta stig,
fóru í þriðja sætið.
Jónas Guðni Sævarsson átti
mjög góðan leik á miðjunni hjá
Keflvíkingum og var sáttur stigið
í leikslok: „Stig er betra en ekki
neitt og þetta stig gefur okkur
þriðja sætið en sáttastur er ég
með að halda hreinu.“ Hann sagð-
ist enn fremur sáttur við sinn leik:
„Ég er mjög sáttur við minn leik,
skilaði boltanum vel frá mér og
þetta var einn af mínum betri
leikjum í sumar.“
- gjj
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla:
ÞRÓTTUR–FH 1–5
VALUR–KEFLAVÍK 0–0
STAÐAN:
FH 14 14 0 0 44–6 42
VALUR 14 10 1 3 27–9 31
KEFLAVÍK 14 5 6 3 24–27 21
ÍA 14 6 2 6 17–18 20
FYLKIR 14 5 2 7 23–25 17
FRAM 14 5 2 7 15–20 17
KR 14 5 1 8 15–21 16
GRINDAVÍK 13 3 3 7 14–28 12
ÞRÓTTUR 14 2 4 8 16–26 10
ÍBV 13 3 1 9 10–25 10
MARKAHÆSTIR:
ALLAN BORGVARDT, FH 13
TRYGGVI GUÐMUNDSSON, FH 12
GARÐAR GUNNLAUGSSON, VAL 8
HÖRÐUR SVEINSSON, KEFLAVÍK 8
EINKUNNAGJÖF (1 TIL 10):
10 Í heimsklassa
9 Í landsliðsklassa
8 Mjög góður
7 Góður
6 Stóð sig vel
5 Í meðallagi
4 Slakur
3 Lélegur
2 Hörmulegur
1 Grátlegur
Undirbúningstímabilið í þýska handboltanum:
HANDBOLTI Handknattleiksmað-
urinn Guðjón Valur Sigurðsson,
sem gekk til liðs við þýska efstu-
deildarliðið Gummersbach, fór
mikinn með liði sínu í æfingaleik
á dögunum en hann skoraði
sautján mörk gegn þýska liðinu
ASV Hamm. Félagi Guðjóns Vals
í landsliðinu, Róbert Gunnars-
son, er einnig orðinn leikmaður
Gummersbach eftir að hafa leik-
ið áður með AGF Aarhus í Dan-
mörku síðustu þrjú ár. Róbert
stóð einnig fyrir sínu í leiknum
en hann skoraði sjö mörk og var
næstmarkahæstur.
Gummersbach ætlar sér
stóra hluti á komandi tímabili og
munu Íslendingarnir verða í lyk-
ilhlutverkum. Guðjón Valur er
bjartsýnn á gott gengi og segir
allar forsendur vera fyrir hendi
hjá Gummersbach til þess að
blanda sér í toppbaráttuna í
deildinni. „Ég er nokkuð sáttur
við það hvernig hefur gengið á
undirbúningstímabilinu. Við höf-
um æft mikið og leikmennirnir
eru alltaf að ná betur og betur
saman.“
Guðjón telur líklegt að Flens-
burg og Kiel muni berjast um
þýska meistaratitilinn en vonast
þó til þess að Gummersbach geti
blandað sér í þá baráttu einnig.
„Það er alveg ljóst að við erum
með gott lið sem á að geta verið
í toppbaráttunni. Það má hins
vegar ekki mikið út af bregða.
Efsta liðið í fyrra tapaði sex stig-
um allan veturinn og þannig hef-
ur þetta verið undanfarin ár. Lið-
ið má því alls ekki misstíga sig
mikið á komandi leiktíð ef það
ætlar að blanda sér í toppbarátt-
una.“ - mh
Gu›jón Valur skora›i sautján
mörk fyrir Gummersbach
Vestmannaeyingurinn Hermann
Hreiðarsson er byrjaður að leika
knattspyrnu á nýjan leik en hann
hefur verið frá vegna hnémeiðsla
undanfarin misseri. Hermann,
sem leikur með enska úrvals-
deildarfélaginu Charlton At-
hletic, lék allan leikinn gegn
Sunderland um helgina þar
sem Charlton vann 3-1 á
heimavelli Sunderland, Stadi-
um of Light.
Hermann lék sem miðvörður
í leiknum og átti fínan leik.
„Ég var nokkuð sáttur við
mína frammistöðu í þessum leik.
Ég hef verið frá vegna meiðsla í
svolítið langan tíma en mér finnst
ég vera í góðu formi núna. Það
skiptir mig ekkert öllu máli hvort ég
er miðvörður eða bakvörður. Ég hef
leikið báðar stöður allan minn feril
og tel mig getað leikið stöðurnar
nokkuð vel.“
Nýjir leikmenn Charlton
voru í sviðsljósinu um
helgina, en Marc
Ambrose, sem kom frá
Newcastle United fyrir
leiktíðina, fékk að líta
rauða spjaldið og Dar-
ren Bent skoraði tvö
mörk í sínum fyrsta leik
fyrir félagið. „Ég þekki
ágætlega til þessara leik-
manna. Þeir voru í ung-
lingaliði Ipswich þegar ég
spilaði þar og þá voru þeir
mjög efnilegir. Ég á von á
því að þeir sýni styrk sinn
á þessu tímabili. Ambrose nær sér al-
veg eftir þetta rauða spjald og vonandi
nær Bent að halda áfram að skora fyrir
okkur. Það er alltaf gott fyrir leikmenn
að skora í sínum fyrsta leik fyrir nýtt fé-
lag.“
Landsleikur Suður-Afríku og Íslands fer
fram á morgun en Hermann Hreiðars-
son verður fjarri góðu gamni þar sem
hann hefur ekki enn þá náð alveg full-
um bata eftir hnémeiðslin. „Það var
samkomulag milli mín og sjúkraþjálfar-
ans hjá Charlton að ég myndi taka mér
frí frá þessum leik, og þjálfarar lands-
liðsins voru sammála því. Ég bólgna
enn þá aðeins í hnénu eftir átök og því
þoli ég leikjaálagið ekki eins og vel og
ef ég væri í mínu besta formi. Ég er all-
ur að koma til og er bjartsýnn á gott
gengi Charlton í vetur.“
HERMANN HREIÐARSSON: LÉK SINN FYRSTA DEILDARLEIK Í LANGAN TÍMA UM HELGINA
Charlton á eftir a› koma á óvart í vetur
0-0
Valsvöllur, áhorf: 780 Gylfi Þór Orrason (8)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 14–10 (2–4)
Varin skot Kjartan 3 – Ómar 2
Horn 8–7
Aukaspyrnur fengnar 10–9
Rangstöður 2–0
Valur Keflavík
GUÐJÓN VALUR Hefur verið í góðu formi
að undanförnu og vonast til þess að
Gummersbach verði í toppbaráttunni í
þýsku úrvalsdeildinni.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu kom saman síðdegis í gær:
Ei›ur Smári ver›ur líklega me›
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í
knattspyrnu kom saman síðdegis í
gær til að hefja undirbúning sinn
fyrir landsleikinn gegn S-Afríku á
Laugardalsvellinum annað kvöld.
Allt bendir til þess að Eiður Smári
Guðjohnsen verði með íslenska
liðinu, en um tíma var tvísýnt um
þátttöku hans vegna hnjasks sem
hann hlaut í viðureign Chelsea og
Wigan í ensku úrvalsdeildinni um
helgina. Eiður Smári tók fullan
þátt í æfingu landsliðsins í gær-
kvöld og kenndi sér einskis mein.
Aðra sögu er að segja um þá Ólaf
Örn Bjarnason og Hannes Þ.
Sigurðsson, sem báðir eiga við
smávægileg meiðsli að stríða og
verða líklega ekki orðnir
leikfærir fyrir miðvikudaginn.
Atvinnumennirnir í íslenska
liðinu áttu ekki allir jafn greiða
leið til Íslands og til að mynda
kom Kári Árnason nánast beint af
flugvellinum og á æfingu í gær-
kvöld. Allt liðið náði þó saman á
endanum og kláraði saman fyrstu
æfinguna af fjórum sem liðið mun
eiga fyrir leikinn. Annars eru all-
ir íslensku leikmennirnir sem
valdir voru í hópinn klárir í slag-
inn, en fyrirfram var vitað að þeir
Hermann Hreiðarsson og Brynjar
Björn Gunnarsson, tveir fasta-
menn í liðinu, gætu ekki leikið
með þar sem þeir eru að ná sér
eftir meiðsli sem hafa hrjáð þá í
allt sumar.
Lið S-Afríku er væntanlegt til
landsins í dag og er ljóst að tvær
af skærustu stjörnum liðsins
verða fjarverandi – þeir Quinton
Fortune, leikmaður Manchester
United, og Shaun Bartlett, leik-
maður Charlton í Englandi. Að
öðru leyti mætir S-Afríka til leiks
með sitt sterkasta lið og er þekkt-
asti liðsins sóknarmaður Porto,
Benni McCarthy, sem ætti að vera
íslenskum fótboltaáhugamönnum
að góðu kunnur fyrir góð tilþrif í
Meistaradeild Evrópu á síðustu
árum. Hann ásamt Sibusio Zuma,
núverandi leikmanni Armenia
Bielefeld í Þýskalandi en áður
eins besta framherja dönsku úr-
valsdeildarinnar um árabil með
FC Köbenhavn, mynda gríðarlega
öflugt framherjapar sem getur
valdið öllum vörnum skráveifum.
- vig
*MAÐUR LEIKSINS
VALUR 4–4–2
Kjartan 6
Bjarni Ólafur 6
Grétar Sigfinnur 6
Atli Sveinn 5
Steinþór 6
Sigþór 5
(53. Matthías 5)
Sigurbjörn 6
Stefán Helgi 6
Baldur 7
Guðmundur 5
(82. Kristinn –)
Garðar 5
(82. Sigurður S. –)
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar 7
Isse Kadir 4
(67. Gunnar Hilmar 6)
Baldur 6
Guðmundur Mete 7
Johansson 5
Milisevic 5
Gustafsson 6
*Jónas 8
Hólmar Örn 7
Guðmundur S. 6
(85. Ólafur Jón –)
Hörður 6
Í FULLU FJÖRI
Eiður Smári
virkaði sprækur
á æfingu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Valsmenn virðast vera að
missa endanlega af toppliði FH en
jafntefli var það eina sem þeir
fengu úr leiknum á Hlíðarenda í
gær gegn Keflvíkingum. Eftir sig-
ur FH á Þrótti í gær þá munar 12
stigum á liðunum en Valsmenn
eiga þó leik til góða. Menn verða
seint sakaðir um að hafa reynt að
skemmta áhorfendum á Valsvell-
inum í fyrri hálfleik í gær. Það
virtist ákveðin deyfð vera yfir
báðum liðum og því miður náði
skalli Atla Sveins snemma leiks
ekki að kveikja neistann í mönn-
um. Valsmenn stjórnuðu ferðinni
á meðan gestirnir beittu skyndi-
sóknum með misjöfnum árangri.
Kraftinn virtist skorta hjá heima-
mönnum þegar þeir nálguðust
vítateig gestanna á meðan sóknar-
leikur Keflvíkinga virkaði á köfl-
um ansi einhæfur. Langar send-
ingar fram á framherja sína sem
skiluðu litlum árangri enda mið-
verðir Vals ekki þekktir fyrir að
HÖRÐ BARÁTTA Hörður Sveinsson hefur hér betur í skallaeinvígi við Bjarna Ólaf Eiríksson
hjá Val. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN