Tíminn - 09.08.1975, Page 3
Laugardagur 9. ágúst 1975
TÍMINN
3
Bretaprins dró 28 laxa:
VOPNFIRZKUR LAX
Á BORÐUAA í
BUCKINGHAMHÖLL
Prinsinn heldur heimleiðis í dag
BH—Reykjavik — Búast má
viö, aö lax úr Hofsá veröi á
boröum brezku konungsfjöl-
skyldunnar i Buckingham-höll
einhvern næstu daga, þvi aö
Karl Bretaprins tók nokkra
væna laxa af feng sinum meö
sér. Annars var hann örlátur á
aflann, og veitti hann rausnar-
lega. Hann færöi forsætisráö-
herra vænan lax, Brian Ilolt,
sendiherra, fékk sömuleiöis lax,
og þá var Ómari ólafssyni flug-
stjóranum á Vængjaflugvélinni,
sem flutti Bretaprins suður,
færöur lax, svo aö nokkrir séu
nefndir.
Heimsókn Karls Bretaprins
lýkur i dag, er hann heldur utan
meö Flugleiðavél til Lundúna
með morgninum. Bretaprins
kom suður til Reykjavikur
klukkan rúmlega fjögur i gær
með flugvél frá flugfélaginu
Vængir, sem sótti hann austur.
Hann hélt til veiða i býtið i gær-
morgun og veiddi fram á siðustu
stund. Afli hans i gærmorgun
var fimm laxar, þannig að veið-
in varð alls 28 laxar þennan
fjóra og hálfa dag, sem hann
var við veiðar i Hofsá i Vopna-
firði. Hefur Bretaprins við hvert
tækifæri látið i ljós mjög mikla
ánægju með dvöl sina hér, og þá
sérstaklega það næði, sem hann
hefur notið hér.
í gær gekk Karl Bretaprins á
fund Geirs Hallgrimssonar for-
sætisráðherra i stjórnarráðs-
húsinu fljótlega eftir komuna
suður. Þá fór Bretaprins i heim-
sókn i Þjóöminjasafnið og
Arbæjarsafn, en i gærkvöldi sat
hann kvöldverðarboð islenzku
rikisstjórnarinnar i ráðherra-
bústaðnum viðTjarnargötu, þar
sem hann gisti i nótt og hafði að-
setur i gær.
Þaö var auðséð á svip Karls
Bretaprins, er hann steig út úr
flugvélinni á Reykjavikurflug-
velli, að hann var ánægður meö
dvöl sina hér. Gunnar
Valdimarsson, eigandi jarðar-
innar Teigs i Vopnafirði, varð
samferða Bretaprins suður, og
tjáði hann okkur Timamönnum,
að prinsinn hefði látið i ljós
ánægju sina og fögnuð yfir þess-
ari vel heppnuðu ferð hingaö.
Prinsinn hefði notaö timann
vel og veitt, meðan þess var
nokkur kostur. Hann hefði farið
eftir allri ánni, nema allra
neðsta hluta hennar, og alls
staðar likað jafn vel. Slikur
áhugamaður sem prinsinn
veiddi aðeins á flugu — annað
ekki, sagði Gunnar.
Þrátt fyrir timaleysi sitt
heilsaði Karl Bretaprins upp á
Vopnfirðinga, sem kvöddu hann
á flugvellinum. Rabbaði hann
við fólkið, sem var all-margt
samankomið og heilsaði þvi
með handabandi.
Gunnar gat þess sérstaklega,
að allt hefði farið mjög vel fram
i sambandi við dvöl prinsins
fyrir austan, og hefði hann látið
i ljós innilegt þakklæti fyrir at-
lætið. Engin slys eða óhöpp
hefðu borið að höndum, og allir
lagzt á eitt með, að þessir dagar
yrðu hinum tigna gesti sem
ánægjulegastir. Þakklæti hans
hafi sýnt, að það hafi hann
kunnað vel að meta.
BRIAN HOLT, ræöismaöur, og Gunnar Valdimarsson, eigandi jarö-
arinnar Teigs í Vopnafiröi, viröa fyrir sér laxinn, sem Bretaprins
færöi ræöismanninum aö gjöf. Tlmamyndir Gunnar
Viröingamenn tóku á móti Karli Bretaprins á Reykjavfkurflugvelli I gær. Hér heilsar hann Brian
Holt, ræöismanni.
Karl Bretaprins og Geir Hallgrimsson, forsætisráöherra, heilsast á tröppum stjórnarráöshússins i gær.
Laugardalsvöllurinn ónothæfurl
BH-Reykjavik. — Þaö liggur
ekkert annaö fyrir en flytja leik-
ina af Laugardalsvellinum, eins
og hann er núna, sagöi Jón-
Magnússon, vallarvöröur, er
Timinn ræddi viö hann i gær. Viö
höfum flutt leikina, sem áttu að
fara fram á honum, yfir á Mela-
völlinn, og verði ekki oröiö þurrt
fyrir morgundaginn, veröur ekki
leikiö á honum á sunnud. Þaö
er ætlunin aö grasvöllurinn hérna
milli leiksvæöisins og iþrótta-
hallarinnar taki viö af honum, en
þaö veröur ekki fyrr en búiö er aö
giröa hann, en þvi verki verður
naumast lokiö fyrr en i lok mán-
nöarins.
Við spurðum Jón að þvi,
hverjar væru ástæðurnar fyrir
þvi, að völlurinn er svo illa farinn.
—- Þaðerfyrst og fremst álagið
á honum, Við vorum að taka það
saman, og komumst að þeirri
niðurstöðu, að á 93 daga leiktima-
bili hefur völlurinn verið i notkun
i 87 daga, við æfingar, leiki og
frjálsiþróttamót. Slikt álag þolir
enginn völlur.
Við höfum heyrt þvl fleygt, að
undirlagiö se ónýtt, og gegnum
það sytri engin bleyta, og spurð
um við Jón að þessu.
— Um þetta er ekki gott að
segja, og þaö kemur ekki I ljós,
fyrr en við getum tekiö völlinn úr
notkun og athugað hann. En þaö
liggur i augum uppi, að grasrótin
hefur alveg verið spænd upp.
Hver eru þá úrræðin?
— Þaðerrættum þrjár leiðir. í
fyrsta lagi að taka upp notkun
gervigrass. I öðru lagi að taka
völlinn alveg upp og gera hann
upp að nýju og i þriðja lagi að fá
nýtt torf á hann. Hvað gert veröur
er ekki hægt aö segja á þessu stigi
málsins.
En völlurinn verður notaður, ef
þvi verður við komið?
— Já, ef veðurútlit er þannig,
og svo eru náttúrlega leikirnir i
Evrópukeppninni...
Þannig var umhorfs á Laugardalsvellinum eftir rigninguna I gær