Tíminn - 09.08.1975, Blaðsíða 13

Tíminn - 09.08.1975, Blaðsíða 13
Laugardagur 9. ágúst 1975 TÍMINN 13 Steingrímur Sigurðsson sýnir í 25. sinn: „Þetta er mín aðalsýning" Gsal-Reykjavlk — Steingrimur Sigurösson, listmálari opnar i dag, laugardag, klukkan fjögur yfirlitssýningu á verkum sinum aö Kjarvalsstööum viö Miklatún. Á sýningunni veröa um 100 mynd- ir, en þetta er 25. einkasýning Steingrfms. — Þetta er min aöalsýning, sagöi Steingrimur er blm. Tlm- ans hitti hann aö máli I gær, er hann var aö hengja upp myndir sinar. — Tilefni þessarar sýning- ar er þaö, aö nú er ég oröinn fimmtugur, sagöi hann. Stein- grimur kvaö margar myndanna á sýningunni vera málaöar á siö- ustu árum og taldi.aö um helm- ingur myndanna væri svo til nýj- ar. ,,Ég hef reynt aö vera dugleg- ur”, sagði hann. Siöast sýndi Steingrimur i Eden i Hverageröi, en þar á undan hélt hann málverkasýningar i Svi- þjóö. Þá hefur Steingrimur bæði sýnt á meginlandi Evrópu, og i Bandarikjunum og hann fullyrti viö blm. Timans, aö hann heföi alls ekki i hyggju aö gefast upp á Bandarikjunum. Viö inntum Steingrim eftir þvi, hvort still hans hefði ,. breytzt á einhvern máta siöustu árin, en Steingrimur svaraöi ekki spurningunni, heldur skaut henni til sona sinna, sem voru aö hjálpa honum aö koma myndunum fyrir. Hef ég breytzt i myndgerð? Hef ég breytt um stil? Annar strák- anna sagði, aö hann heföi litiö breytzt, — og virtist Steingrimur ekkert allt of ánægöur meö þaö svar, en hinn sagöi, aö honum fyndist hann vera orðinn betri nú en áöur. Aö ööru leyti fékkst ekki svar viö spurningunni. Sýning Steingrims verður opin daglega frá 15—22, nema laugar- daginn 16. ágúst og sunnudaginn 17. ágúst, en þá er hún opin kl. 15—24 s.d. Kort af framkvæmdasvæöinu aö Sigöldu. Hornsteinn lagður að stöðvarhúsinu við Sigöldu ö.B. Rvik.— Þann 15. ágúst nk. verður hornsteinn lagður aö stöðvarhúsi Landsvirkjunar við Sigöldu. Mun forseti Islands leggja hornsteininn aö stöövar- húsinu og flytja ávarp. 1 ágúst 1973 var undirritaður samningur viö júgóslavneska fyrirtækiö Energoprojekt um byggingahluta virkjunarinnar. Var þá þegar hafizt handa um byggingu virkjunarinnar og hefur verkið gengið samkvæmt áætlun, en samið var um að verkinu yröi lokið siðla árs 1976. En vegna ó- fyrirsjáanlegra erfiöleika, svo sem verkfalla og slæmrar veör- áttu, mun verkið þó tefjast um þrjá til fjóra mánuöi. Keppzt veröur við aö ljúka stöövarhúsinu fyrir veturinn, svo unnt veröi aö ganga frá þvi að innan. Er þaö sem fyrr segir Energoprojekt, sem sér um allar byggingafram- kvæmdir fyrir Landsvirkjun, en aftur á móti verða allar vélar og túrbinur og annar vélaútbúnaöur keyptur frá Þýzkalandi og Sovét- rikjunum. Leitazt veröur við aö koma fyrstu túrbinunni upp fyrir 1. nóv., og ekki mun veröa um seinkun að ræöa á þeim tveimur sem á eftir koma. Gert er ráö fyrir möguleika á aö hægt sé að hafa fjórar túrbinur I stöövarhús- inu. A sjötta hundrað starfsmenn eru nú viö Sigölduvirkjun, og mun það vera meiri fjöldi en áður hef- ur starfaö viö virkjunina. Framkvæmdastjóri Lands- virkjunar er Eirikur Briem, verkfræðingur, en stjórnarfor- maöur er dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri. Sjá má á korti þessu orkuöflunar og dreifingarkerfi Landsvirkjunar omtutjrLUwáá •oc o»eifn<ewFi lawosviwkjuwaw i»?b ■ y*TM*AFL9tð«V*S E rLO*MtrTi**TOovA» 4, S**tMMI*t!>eVAR --- mJmnmmuu'mum --- ------------; O V*TM**rL*TÖ0 í *tOfilMöU Ekkert er nýtt undir sólinni B. Sk. skrifar: „Nýlega var ég að fletta gamalli bók, Undrum tslands, eftir Gisla biskup Oddsson. Þar las ég eftirfarandi klausu, ásamt mörgum öðrum fróðleg- um og skemmtilegum. ----„Þá er grasormur, sem kviknar i skýjunum eða loftinu og liggur i vissum sveitum landsins hálflifandi hópum saman, i fyrstu er hann hvitleit- ur og smár vexti, vart lengri en fingursbreidd, og hann er vanur að sjúga allan safa úr grasinu, svo að ekkert verður eftir nema duft eða svört mold eða einhver sina, slik, sem sést i skamm- deginu uppþornuð og hvitnuð, með þessu móti vex eigi aöeins ormurinn, heldur iklæðist ýmiss konar lit, mest gráum og græn- ýróttum, þangað til hann nær nálega litlafingurs stærð, bústinn og dökkleitur. Það má -' merkilegt heita, aö þá þróast annar ættliður, sjálfsagt þannig, aö hann gýtur, þvi að athugað hefur verið, að inn i þeim stærstu hafa fundizt þess konarsmádýr eða yrmlingar, 37 eða 40 að tölu, og ógnar mér slikt. Og ekki er það siður merkilegt, með hvaða bragði bændurnir eru vanir að losa engi sin og tún við þennan eitraða urmul (þvi að honum rignir niður nálega i einni hrið úr loftinu eins og snjó, en ekki smátt og smátt). Þeir grafa þverskuröi og langskurði i jörðina, hér um bil fjórðung áln- ar að dýpt, og i þá hrapar orma- urmullinn i haugum og ferst af þunga sinum eða sulti, þvi að þeir megna ekki að komast upp aftur. Dauðir kroppar þeirra eru svo ágætur áburður á gras- lendið, að það af bithaganum, sem á haustin sölnar út I kuldanum, ber á næsta ári miklu meira gras en áöur.” Þegar ég hafði rennt augun- um yfir þetta, datt mér i hug, hvort búfræðingar okkar og aðrir ágætir búvisindamenn, sem nú berjast viö gróður- eyðingu I Mývatnssveit og upp- sveitum Suðurlands af völdum „grasmaðks” hefðu lesið þetta. — Vel mætti vera, að þeir væru svo uppteknir af yngri og sinum eigin visindum, að þeim hefði sézt yfir svona fornyröi. Væri það að visu afsakanlegt i þvi öngþveiti sem við búum viö, en það er oft gott sem gamlir kveða. — Það skyldu þeir hafa i huga.” Orðsending til innleggjenda hjá Sláturfélagi Suðurlands Vegna viðgerðar á stórgripasláturhúsi félagsins á Selfossi verður ekki unnt að slátra svinum og stórgripum á tímabilinu 16. ágúst til 2. september n.k., en tekið verður á móti kálfum til slátrunar. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS Selfossi Gleymib okkur einu sinni - og þið gleymib því alarei í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.