Tíminn - 09.08.1975, Blaðsíða 11

Tíminn - 09.08.1975, Blaðsíða 11
Laugardagur 9. ágúst 1975 TÍMINN n Umsjón: Sigmundur 0. Steinarsson " j- - STANGIR FH-MARKSINS NOTRUÐU... á Melavellinum í gærkvöldi. En FH-ingar sluppu lifandi fró stórskotahríð Vals manna og fóru með sigur (2:1) að hólmi FH-ingai* höfðu svo sannarlega heppnina með sér i gærkvöldi á Melavellinum, þegar þeir unnu ó- væntan sigur (2:1) yfir Vals- mönnum i 1. deildarkeppninni. Það var oft furðulegt, hvernig mark þeirra slapp undan stór- skotahrið Vaismanna, sem buldi nær stöðugt á FH-markinu — og alis fjórum sinnum nötraði stöng og þverslá FH-marksins, eftir leifurárás Vais-liðsins. HeiIIadis- irnar voru ekki með Valsmönn- um, sem réðu gangi ieiksins, að- eins einu sinni tókst þeim að skora — það var þegar Hermann Gunnarsson, sem skoraði sitt 80. 1. deildarmark, skallaði knöttinn giæsilega I mark Hafnarfjarðar- liðsins, eftir sendingu frá Alberti Guðmundssyni, sem haföi ein- leikið gegnum FH-vörnina — íslandsmót kvenna á Nesinu Otihandknattleiksmót kvenna heldur áfram nú um helgina og á sunnudag fer fram úrslitaleikur mótsins. Eftirtaldir leikir fara fram i dag og á morgun: Laugardagur 9. ágúst kl. 13.30: B-riðill UBK—KR A-riðill Armann—HSK A-riöill Valur—Haukar Sunnudagur 10. ágúst kl. 13.00: A-riðill Ármann—Haukar A-riðill Valur-HSK B-riðill Fram—KR. tirslitaleikur fer fram sama dag kl. 18.00. hann lék á 5 FH-inga og sendi knöttinn fyrir markið, þar sem Hermann var vel staðsettur. Þetta skeöi á 37. mlnútu leiks- ins, en áður haföi Leifur Helgason skorað mark fyrir FH og tryggt þeim forustu (1:0). Leifurskoraði markið á 12. minútu, eftir að Valsvörnin hafði sofnað á verðin- um. Hann fékk knöttinn út við vltateig og sendi knöttinn með „bananaskoti” yfir Sigurö Har- aldsson,markvörð Vals — knött- urinn hafnaði upp undir sam- skeytunum. Valsmenn áttu eitt stangarskot og skot I slá I fyrri hálfleik — Atli Eðvaldsson og Hermann Gunnarsson. VIÐAR Halldórsson innsiglaði sigur FH-inga á 72. minútu, þegar hann skallaði fram hjá Sigurði | Haraldssyni, sem fraus i Vals- markinu. Viðar var staddur inni I vitateig, þegar hann fékk send- ingu frá Ólafi Danivaldssyni. Eft- ir þetta sóttu Valsmenn nær stöð- Framhald á bls. 15. STAÐAN 1. DEILD Staðan í 1. deildarkeppninni er þessi eftir leikinn I gærkvöldi: Akranes......... 10 5 3 2 18:10 13 Fram............10 6 13 11:6 13 Keflavik........ 10 4 3 3 12:10 11 FH.............. 11 4 3 4 9:17 11 Vaiur........... 11 3 4 4 14:14 10 Vikingur........ 10 3 3 4 12:10 9 IBV ............ 10 2 4 4 10:15 8 KR.............. 10 2 3 5 8:12 7 Markhæstu menn: örn óskarsson ÍBV................7 Guðmundur Þorbjörnss Val.........7 Matthlas Hallgrfmss. Akr.........6 Steinar Jóhannss. IBK............5 Atli Þór Héðinss. KR.............4 Teitur Þórðars. Akr..............4 SYLVÍA ÞJÁLF- AR OG LEIKUR MEÐ FH-LIÐINU — Guðjón verður með Framstúlkurnar SYLVIA Hailsteinsdóttir, hand- knattleikskonan kunna úr Hafn- arfirði, sem hefur leikið með Fram-Iiðinu undanfarin ár, hefur nú ákveðiö að ganga aftur I raöir FH-inga. Sylvia hefur tekið að sér þjálfun kvennaliðs FH og hún mun einnig leika með liðinu I vet- ur. Það er tvimælalaust mikill styrkur fyrir hiö unga FH-liö, að fá Sylviu til liös við sig. GUÐJÓN Jónsson, handknatt- leikskappinn úr Fram, hefur ver- ið ráðinn þjálfari 1. deildarliðs Fram i kvennahandknattleik. Guðjón tekur við af Sigurbergi Sigsteinssyni, sem hefur þjálfað Fram-liðið undanfarin tvö ár. Stríð um stöður í Celtic-liðinu Jóhannes hefur ókveðið að skrifa undir samning hjó Celtic „SEAN Fallon, sem er fram- kvæmdastjóri Celtic um þessar mundir i veikindum Jack Stein, er ánægður maður þessa dagana. Allar hans áhyggjur hafa fengiö hamingjusaman endi”, segir skozka blaðið „Scottish Daily News”. tslendingurinn Jóhannes Eðvaldsson hefur ákveðíð að skrifa undir samning við Celtic og þá hefur knattspyrnukappinn George Connelly, sem hafði ákveðið aö hætta, sýnt stórkost- legt „comeback” á mánudaginn. þegar Celtic sigraði Clyde 2:1 á útivelli. Tvær breytingar voru gerðar á Celtic-liðinu frá leiknum gegn Derby. Connelly tók stöðu Jó- hannesar og Jaekie McNamara, sem skoraði mark I leiknum, tók stöðu Roddy McDonald, sem meiddist gegn Derby, en er nú á batavegi og Celtic virðist hafa óþrjótandi uppsprettu af leik- mönnum. Vilji Connelly byrja keppnistlmabiliö sem „sweeper” við hliðina á Roddy McDonald, ' problems are happy Icelander CELTIC'S caretaker boss^ Sean Fallon is a cheerfi man these days. All ■ ^— V arefree Celtic Þetta er fyrirsögnin á greininni, sem birtist I „Scottish Daily News” „Ahyggjulaust Celtic”. segir „Scottish Daily News” — þá yrði Jóhannes Eövaldsson settur sem miðvallarspilari? Eða ef „Ismaðurinn” — Jóhannes — get- ur leyst stöðu miðvarðar vel af hendi, þá yrði Connelly annað hvort fyrir framan hann, eða fyrir aftan hann. En eins og stendur þá viröist sem Connelly vilji ekki halda áfram að leika stöðu miðvarðar, sem hann lék svo stórkostlega gegn Clyde. Hann er ekki enn kominn I fulla æfingu og virðist skorta þrek til að leika stöðu miðvarðar og þarf hann þess vegna að hafa sterkan mann við hliöina á sér, til aö gera honum léttara fyrir”, segir blað- ið. A þessu sést að framundan er mikið strið um stöður I Celtic-lið- inu og verða menn að leggja hart að sér ef þeir eiga aö halda stöð- um sinum. Forráðamenn Celtic eru ánægðir með þetta og lifa þeir áhyggjulausu lifi þessa dagana — þvi að þeir hafa yfir nógum mannskap að ráða. KR-INGAR FARA TIL AKUREYRAR — en bikarmeistarar Vals fó Vestmannaeyinga í heimsókn — STÓRKOSTLEGT var þaö fyrsta sem Birgir Marinósson, formaður knattspy rnudeildar Þórs frá Akureyri, sagði, þegar Tíminn tilkynnti honum I gær, að Þórs-liöið heföi dregizt gegn KR-ingum I 8-liöa úrslitum bikar- keppninnar, og leikurinn ætti að fara fram á Akureyri. — Strák- arnir eru ákveönir I, að gera sitt bezta til að tryggja sér sæti I und- anúrslitunum og að sjálfsögðu höfum við tekið stefnuna á bikar- inn og reynum allt sem við get- um, til að fá hann norður,” sagði Birgir. Róðurinn verður örugglega erfiður hjá KR-ingum, þvi að Þórs-liðið er erfitt heim að sækja, það hefur það sýnt I sumar, með þvi að leggja Keflvikinga og Vest- mannaeyinga að velli á Akureyri. Þórsliðið er til alls liklegt, — það PÉTUR MEÐ LANDSLIÐIÐ Handknattleiksþjálfarinn kunni Pétur Bjarnason úr Vlkingi hefur verið ráöinn þjálfari kvenna- landsliðsins I handknattleik. BIRGIR MARINÓSSON, formað- ur knattspyrnudeildar Þórs á Ak- ureyri. sendi Hauka úr bikarkeppninni með stórsigri (5:1) á Akureyri. En nóg með þaö, nú skulum viö snúa okkur að drættinum I 8-liða úrslitunum: Vlkingur—Keflavik FII—Akranes Valur—Vestmannaeyjar Þór, Akureyri—KR — Það getur allt skeð I bikar- keppninni, en ég spái þvi að það verði Keflavík, Akranes, Valur og KR, sem komast i undanúrslitin, sagði Ilelgi Danielsson, formaður mótanefndar KSÍ, þegar við báð- um hann að spá um, hvaða lið kæmust fram úr 8-liða úrslitun- um. HARVEY ER TIL- BÚINN TVEIR af leikmönnum Leeds United, skozku landsliösmennirn- ir David Harvey, markvörður og miðvöröurinn Gordon McQueen, eru nú búnir að ná sér eftir meiðsli þau, scm þeir hlutu sl. keppnistimabi! og tilbúnir til að leika með Leeds-liöinu i byrjun keppnistimabilsins cnska. Harvey meiddist á fæti I bilslysi I febrúar sl. og var frá keppni út sl. keppnistimabil. McQueen átti við meiðsli að striða I læri. — Lilja stefnir að OL-lómarkinu — Ég stefni að sjálfsögðu aö Olympfulágmarkinu í 800 m hlaupi, sagöi Lilja Guðmunds- dóttir hlaupakonan snjalla úr 1R, sem vann sér inn fjögur gullverð- — Bjarni Stefónsson keppir ekki í bikarkeppninni, sem hefst í dag LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR... er ósigrandi luin vann fjögur gull á meistaramótinu. laun á Meistaramóti islands — 400, 800 1500 m hlaupi og þar að auki var hún I boðhlaupsveit ÍR, sem sigraöi I 4x400 m hlaupi. — Ég reikna ekki meö að ná lágmarkinu i bikarkeppninni um helgina, en aftur á móti keppi ég á nokkrum mótum i Sviþjóö siöar I þessum mánuði — þá vonast ég eftir að ná þvi, sagði Lilja. Lilja hefur æft og keppt með Norrköping I Sviþjóð undanfarin ár, og verður i sviðsljósinu um helgina, en þá keppir hún fyrir hönd 1R i bikarkeppni FRI, sem hefst á Laugardalsvellinum I dag kl. 3 IR-liðiö er sigurstranglegast i keppninni, sem sex liö taka þátt I — 1R, KR, Ármann, UMSK, HSH og HSK. Nær allt okkar bezta frjálsiþróttafólk tekur þátt I keppninni, en nokkur forföll verða þó. Sprettharöi KR-ingur- inn Bjarni Stefánsson mun ekki keppa með KR-liðinu, þar sem hann er að vinna um helgina. Farvera Bjarna veikir að sjálf- sögðu KR-liðið nokkuð, en það ætti ekki að koma aö sök, þar sem KR-ingar eiga góðan varamann fyrir Bjarna — Björn Blöndal, sem er vaxandi iþróttamaður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.