Tíminn - 04.09.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Fimmtudagur 4. september 1975
LÉNHARÐURSÝNDURí
NORSKA SJÓNVARPINU
BH-Reykjavik. — tslenzka kvik-
myndin um Lénharð fógeta var
sýnd i norska sjónvarpinu f fyrra-
kvöid. Að sögn Agnars Kl. Jóns-
sonar, sendiherra i Osló, hefur
myndinni verið nokkuð vel tekið,
og hefur hún bæði hlotið hrós og
gagnrýni i blöðum og umtaii
manna á meðal.
Agnar Kl. Jónsson skýrði Tim-
anum svo frá i gærdag, að norsku
morgunblöðin, sem hann hefði
séð, hefðu yfirleitt skrifað vin-
sámlega um myndina, sem tók
upp undir klukkustund i sýningu,
Dómar Aftenposten væru frekar
góðir, ýmislegt væri gagnrýnt, en
mörgum atriðum hrósað og þau
talin mjög vel gerð.
Dagbladet gagnrýnir nauðgun-
arsenurnar og telur, að þar hefði
mátt láta koma fram á finni hátt,
hvað um var að vera, og hefðu
sum atriði myndarinnar verið
helzt til hrjúf og nánast ruddaleg.
Agnar Kl. Jónsson kvaðst hafa
rætt við marga um myndina, og
hefðu dómar manna verið mildir.
Kvað Agnar marga hafa haft orð
á þvi, að Norðmenn hefðu lika
haft danska konungsfógeta og
fengið.að kenna á þeim á svipað-
an hátt og Islendingar, og þvi
hefðu þeir skilið myndina mæta-
vel.
UPPSKERAN ER BARA
GÓÐ HJÁ OKKUR
Sagan af útlenda stráknum, sem
veiddi laxinn af Elliðaárstiflunni.
Það var fyrir þó nokkru siðan — þú sérð seinna
af hverju við timasetjum söguna ekki nákvæm-
lega, að útlendur strákpatti, sem var hér I heim-
sókn, og bjó uppi i Breiðholtinu, fékk veiðileyfi I
Elliðavatni frá gestgjöfum sinum. Strákurinn
átti fyrir veiðistöng, prikbUt einn, sem færið
skauzt Ut úr, heldur ólánlegt apparat, sem hann
bar gjarnan i vasa sinum.
En hann arkar semsé af stað I veiðiferð I
Elliðavatnið, og er ekki fjarverandi nema smá-
stund, þá kemur hann aftur og rogar heljarmikl-
um laxi, sjálfsagt 10 pund að þyngd, upp á eld-
húsborðið.
HUsfreyju bregður heldur en ekki I brún og
spyr, hvort hann hafi fengið laxinn I Elliðavatni.
Nei, ekki kvaðst strákur hafa fengiö hann þar.
Hann hefði hins vegar labbað fyrst niður að
stiflu og hent færinu I vatnið þar fyrir neðan, og
þá hefði fiskurinn bitiö undireins á, og hann heföi
kippt honum i land!
Fyrsta hugsun dauðhræddrar húsmóöurinnar
var að sjálfsögöu, að einhver hefði nú séð til
hans, og nú væri lögreglan á leiðinni.
JUjU, það góndi fjöldi manns á stráksa, meðan
hann rykkti fiski sinum á land. Hvað með það?
Það fylgir ekki sögunni, hvernig fiskurinn
bragðaðist um kvöldið, en svo mikið er vist, að
ekki fór sagan hátt lengi vel — og ekki kom lögg-
an til að hirða veiöiþjófinn.
Voru þau gestgjafahjón stráksa loks komin á
þá skoðun, að menn heföu álitið þarna vera álf
eða huldumann á ferð, plnulitinn, skringilegan I
klæðaburöi, eða a.m.k. óvenjulegan, skálmandi
uppi á stiflunni, rifa prikbút upp Ur vasa sínum
og galdra lax samstundis á krókinn, rykkja hon-
um á land og hlaupa með hann Ut I buskann!
Hrútafjarðará
MagnUs Ólafsson frá Sveinsstöðum hafði sam-
band viö Veiðihorniö I gær og sagði okkur nýjar
fregnir af HrUtafjaröará.
NU eru komnir um 300 laxar upp Ur HrUta-
fjaröará á þessu sumri, þar af veiddust 50 laxar
á 3 dögum fyrir siðustu helgi.
Þetta er mun betri veiði en I fyrra, en þá
veiddust alls rúmlega 200 laxar. Mest hefur
veiðzt I ánni á einu timabili um 400 laxar, en það
var fyrir fimm árum.
Þann 1. september sl. var veiðisvæðið minnk-
að og var þá ekki lengur leyfilegt að fara upp I
ána, eins og kallað er. Hins vegar má veiða á
neðsta svæði árinnar alveg fram að 20. septem-
ber.
A neösta svæðinu er fremur litið um lax. Hins
vegar er þar mikið um silung, og er það aðal-
lega bleikja. Að sögn er hún að meðaltali 4-5
pund, en hefur veiðzt allt upp I sjöpund.
Það er alltaf verið að segja Veiðihorninu veiði-
sögur. Hérna kemur
gébé Rvik ■— Lif og fjör er i
skólagörðum Reykjavikurborg-
ar þessa dagana. Krakkarnir
eru nú i óða önn að taka upp
grænmetið sitt og koma siðan
færandi hendi heim til sin með
fullar fötur og poka heim til
mömmu og pabba. Fimm skóla-
garðar eru starfræktir i borg-
inni i ár og lætur nærri að þar
séu um 850 börn á aidrinum
9—12 ára. Þau borga 1.200,00
krónur fyrir að fá reiti í görðun-
um, sem veröur að teljast litið
þegar miðað er við allt þaö
magn af grænmeti sem þau
rækta og fá til eignar. Það voru
broshýr og áhugasöm andlit
sem rétt gáfu sér tima til að lita
upp frá vinnunni i ægrdag þegar
við lögðum leið okkar i skóla-
garðinn í Breiðholti I.
„Uppskeran er bara ágæt
núna,” sagði litil hnáta þegar
við spurðum um hvernig gengi.
HUn heitir Lisa María Karls-
dóttir og var að enda við að taka
upp uppskeru sina Ur þeim
þrem reitum sem henni hafði
verið Uthlutað. HUn fékk góða
hjálp frá þrem vinkonum sin-
um.
Bræðurnir Styrkár og Hlynur
Hendrikssynir, niu og tiu ára,
koma aldeilis færandi hendi
heim til sin með mikið af græn-
meti sem þeir rækta i sinum sex
reitum. Auk þess eru þeir með
kartöflur i tveim reitum. Þeir
voru önnum kafnir við að taka
upp næpurnar og blómkálið
þegar viö trufluðum þá augna-
blik. Hlynur gaf blm. Timans
myndarlega næpu sem bragð-
aðist með ágætum.
SigrUn Franklin heitir verk-
stjórinn i skólagarðinum i
Breiðholti I, og sagði hún aö 130
krakkar á aldrinum 9—12 ára
væru i garðinum i sumar. Hver
krakki fær þrjá grænmetisreiti
og auk þess reiti fyrir kartöflur
og sumarblóm. 1 grænmetisreit-
unum finnast m.a. næpur,
hreðkur, salatblöö, spínat, róf-
ur, hvltkál, blómkál og grænkál.
kál.
SigrUn sagði að uppskeran
væri nU miklu betri heldur en i
fyrrasumar, sérstaklega væri
blómkálið fallegt. — Við gefum
krökkunum einkunnir meðan
þau vinna i þessu yfir sumarið
og erum nU að gefa þeim loka-
einkunnir sinar áður en þau
hætta, sagði hún. SigrUn sagði,
að þau myndu vera búin að taka
allt upp fyrir helgi, enda væru
flestir hinna ungu garöyrkju-
manna aö byrja i skóla.
Auk SigrUnar unnu i sumar
sex stúlkur i skólagarðinum,
þegar flestar voru, en að þær
væru aðeins fjórar núna seinni
hluta sumarsins.
Sigurður Runólfsson kennari
er yfirumsjónarmaður skóla-
garðanna i Reykjavik og sagði
hann, að stefnt væri að þvi ,aö
Kálhöfuðin voru stór og fall-
eg hjá Aksel Jansen, það er
vinkona hans Helena sem
hjálpar til við að hlaða græn-
metinu á hjólbörur.
Timamyndir: Róbert
lokið væri við uppskeru i öllum
görðunum um 12. september. —
Uppskeran er yfirleitt heldur lé-
leg og er það mest um að kenna
ákaflega erfiðu tiðarfari, sagði
hann. Krakkarnir hafa unnið i
görðum sinum meira og minna i
allt sumar, en vegna veðurs
hafa þau ekki getað verið þar
eins oft og þau vildu.
Hlynur Hendriksson, 9 ára er
einn af hinum ungu áhuga-
sömu garðyrkjumönnum,
sem voru önnum kafnir viö
að taka upp grænmetið sem
þeir hafa ræktað i sumar i
skólagarðinum i Breiðholti I.
Hlynur heldur á myndarlegu
blómkálshöfði og ánægju-
svipurinn leynir sér ekki.
Helga Sigurðardóttir, 10 ára
fékk hjálp hjá vinkonu sinni
óiafíu Laufdal við að taka
upp kartöflurnar.