Tíminn - 17.09.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.09.1975, Blaðsíða 3
Miftvikudagur 17. september 1975. TÍMINN 3 KONUR HYGGJAST LEGGJA NIDUR VINNU 24. OKTÓBER Aform um útifund, göngu og kvennalúðrasveit SJ-Reykjavík — Á kvennaráð- stefnunni i sumar var ákveðið að konur leggi niður vinnu kauplaust 24. október næstkomandi til að leggja áherzlu á mikilvægi vinnu- framlags þeirra. Undirbúnings- nefnd hefur starfað að málinu siðan, og á mánudag var haldinn fundur um mál þetta i Norræna hiisinu og kosin framkvæmda- nefnd, sem tekur við af undirbún- ingsnefndinni. Á þeim fundi var samþykkt að halda einnig fund 24. október, á degi Sameinuðu þjóð- anna, annað hvort Utifund eða samkomu i einhverju stóru hUs- næði. I ráði er einnig að efna til göngu þennan dag i Reykjavik, og að kvennalUðrasveit leiki fyrir henni. Eflaust má búast við að margar stofnanir verði óvirkar, ef konur taka almennt þátt i að- gerðum þennan dag. í fram- kvæmdanefndinni eru Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Asdis Guð- mundsdóttir, Erna Ragnars- dóttir, Gerður Steinþórsdóttir, Stella Stefánsdóttir, Björk Thom- sen, Ásthildur ólafsdóttir, Val- borg Bentsdóttir og Margrét Einarsdóttir. Um siðustu helgí efndi Slysavarnafélag tslands og Björgunarfélag Vestmannaeyja til æfinga f Vest- mannaeyjum með nýja gerð af sjúkrabörum, sem sérstaklega eru hannaðar til þess að draga sjúk- ling á milli skipa, eða milli skips og lands, I neyðartilvikum. Þá efndu sömu aðilar til æfingar með slökkvitæki, og var kveikt i gömlum bát. Rcynd voru reykköfunartæki og ný gerð af kastfroðutæki til þess að slökkva elda I skipum. Með æfingunni fylgdust fulltrúar frá Siglingamálastofnun, Bruna- máiastofnun rfkisins og sjóslysanefndar. Var það samdóma álit þeirra, sem með fylgdust, að þessi nýju kastfroðutæki væru mjög gagnleg. Myndin sýnir nokkra þátttakendur I æfingunni virða fyrir sér hina nýju gerö af sjúkrabörum. Varmá og Þorleifslækur — Það hefur verið gott sumar hjá okkur, sagði Þorleifur Kol- beinsson, þegar hann hringdi i Veiðihornið i gær til þess að segja okkur fregnir af Varm- ánni og Þorleifslæknum. — 1 sumar komu tæpir 100 laxar upp úr ánni, og við erum vist með þann stærsta á þessu sumri, eða 30 punda lax, og enn eru ekki öll kurl komin til graf- ar, þvi að veiði lýkur ekki fyrr en þann 20.september. Þá sagði Þorleifur okkur frá þvi, að það hefði borið við fyrir skemmstu, að i ánni hefði veiðzt 5 punda hnúðlax, hvað svo sem það hefur nú að segja. Við inntum Þorleif eftir sjó- birtingsveiðinni, og kvað hann sjóbirtinginn veiðast vel. Hann væri ekkert sérstaklega stór, en það virtist vera nóg af honum, að minnsta kosti hefði hann ekki heyrt kvartað undan ónógri veiði. Stangveiðifélag Reykjavikur — Það er enginn vafi á þvi, að þetta verður metveiðiár hjá Stangveíðifélaginu, sagði Frið- rik Stefánsson framkvæmda- stjóri við Veiðihornið i gær.Ætli það verði ekki um að ræða svona 40% aukningu frá þvi i fyrra, og aflinn verður áreiðan- lega meiri en á fyrra metári, sem var 1973.Ég geri alveg ráð fyrir, að það verði hátt á niunda þúsund laxar, sem koma á land i sumar. Veiðitimanúm er lokið i þrem ám, sem Stangveiðifélagið hefur á leigu, og vilja nú sumir meina, að þær séu i hópi þeirra beztu, en hér er um að ræða Elliðaárnar, Grimsá og Norðurá. 1 Elliðaám veiddust 2066 laxar á sumrinu á móti 2033 i fyrra, en 5 stangir eru leyfðar i Elliðaán- um. 1 Grimsá veiddust 2100 laxar, en i fyrra 1419, og eru 10 stengur leyfðar i ánni. 1 Norðurá veiddust eitthvað yfir 2000 laxar, en tölur eru ekki fyrirliggjandi enn.Stangveiðifé- lagið hafði ekki ána á leigu i júlimánuði. Veiöisagan Og þá kemur veiðisagan okk- ar i dag, en það var Þórður Pét- ursson veiöivörður i Aðaldal, sem sagði okkur hana. Tveir laxar i einu Laxveiðimaður fékk tvo fjórtán punda laxa á i einu á sömu stöngina i Laxá i Aðaldal. Hvernig það má verða? Jú, hann var rétt búinn að festa i laxi og var að eiga við hann, þegar hann tók eftir þvi, að ann- ar lax stökk alltaf rétt fyrir aft- an þann, sem hann hafði fest i. Ekki skildi laxveiðimaðurinn neitt i neinu, hefur sennilega helzt haldið, að seinni laxinn væri að gera grin af hinum fyrir að láta góma sig svona. Þegar tekizt hafði að koma laxinum á land, sá veiðimaður- inn, að bútur úr færi hafði vafizt utan um laxinn og var annar lax i hinum enda færisbútsins.Málið skýrðist svo, þegar annar veiði- maður sagði frá þvi, að hann hefði misst lax 'á sömu slóðim daginn áður.Hefði sá slit- ið hjá honum færiö, en eftir hafði orðið i honum nokkur bút- ur af færinu, sem svo vafðist ut- an um hinn laxinn.Geri svo aðr- ir betur, tveir fjórtán pundarar I einu! Bílgreinasambandið - vill láta lækka tolla og fella niður inn- flutningsgjöld á bílum Gsal-Reykjavik — Bíll er nauðsyn á tslandi, en ekki lúxus, segir i á- lyktun aðalfundar Bilgreinasam- bandsins sem nýlega var haldinn. t ályktuninni vekur fundurinn at- hygli á þvi, að islendingar séu sú þjóð Evrópu, sem sé mest háð bifreiðum til fóiks- og vöruflutn- inga.Nægir aft minna á, segir i ályktuninni, að landift er stórt og strjálbýit, auk þess án járn- brauta, sem gegna stóru flutn- ingahlutverki annárs staöar i álf- unni.Bilgreinasambandið hefur i þessu sambandi látið gera lim- miða með áletruninni „Bill er nauðsyn”. Aðalfundurinn varar alvarlega við þeirri þróun, sem á Sér stað i skattheimtu hér á landi á nýjum bifreiðumSegir fundurinn í álykt- un sinhi, að afleiðing þessarar stefnu sé að bilum er haldið óeðli- lega lengi i umferð, sem valdi mjög auknum viðhaldskostnaði, sem sé orðinn mikill baggi á flutningafyrirtækjum og almenn- um bifreiðaeigendum. Bendir fundurinn á, að billinn sé ein ó- dýrasta fjöldaframleidda varan I heiminum i dag. — Fundurinn skorar þvi á fjár- málaráðherra að endurskoða tekjuöflun rikisins með það i huga að lækka tolla og afnema inn- flutningsgjald af bifreiðum hiö fyrsta. Þá taldi aðalfundurinn að efla þyrfti Iðnlánasjóð svo og að stór- auka þyrfti lán Byggðasjóðs til þjónustuverkstæða i dreifbýli til hagræðisframkvæmda. Ennfremur taldi fundurinn að einnig eigi að stórbæta námsað- stöðu bifvélavirkja i iðnskólunum út á landi, ma.þyrfti að koma á fót framhaldsnámskeiðum fyrir bif- vélavirkjanema I iðnskólunum utan Reykjavikur svipað og þég- ar hefur verið komið á fót i Reykjavik. Forsætisráðherra í opinbera heim sókn til Noregs HHJ-Rvik — Geir Hallgrimsson og frú halda i dag til Noregs I opinbera heimsókn. Á morgun mun forsætisráðherra hitta Han- sen, forseta Stórþingsins norska, að máli, og að þviloknu mun hann ræða við Bratteli, forsætisráð- herra Noregs. Siðar um daginn heimsækir hann Nylands verk- sted og mun þar m.a. skoða oliu- borpalla. Um kvöldið heldur norska rikisstjórnin forsætisráð- herrahjónunum og fylgdarliði þeirra veizlu i Akershushöllinni. Að morgni föstudags mun Geir halda áfram viðræðum sinum við Bratteli, en um hádegið er mót- taka hjá Ólafi Noregskonungi, sem siðan býður til hádegisverð- ar. Um miðjan dag mun Geir Hallgrimsson halda blaðamanna- fund, og um kvöldið bjóða þau hjónin til kvöldverðar. A laugar- dag verður m.a. skoðað nýstár- legt sjúkrahús i nágrenni Osló og siðan farið i skoðunarferð. Erna Finnsdóttir forsætisráð- herrafrú mun m.a. skoða nokkur söfn i Osló og Holmenkollen. Heim halda þau hjónin um miðjan dag á laugardag. I fylgd með forsætisráðherra- hjónunum verður Guðmundur Benediktss-on ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, og sex is- lenzkir fréttamenn i boði utan- rikisráðuneytisins norska. Yfirmat taldi tjón Sunnu nema 26,6millj. — óbeina tjónið ekki talið með BH-Reykjavik — Yfirmatið hefur aðeins fjallað um mat á beinu tjóni, sem Ferftaskrifstofan Sunna hefur orftið fyrir vegna sviptingarinnar á flugleyfinu. Óbeina tjónið er ekki tekið inn i þetta mat, og þaft verður ein- göngu dómstólanna að fjalla um það. Krafan hljóðaði upphafl. á helmings skaðabætur af óbeinu tjóni og helmings skaðabætur af beinu tjóni.Við urðum fyrir þessu tjóni á árunum 1970—’71, og þá var doliarinn ekki nema 40 krón- ur, efta fjórum sinnum iægri en núna.Þar sem málið stendur um erlent leiguflug og erlendar leigu- flugvélar, er ekki nema eöliiegt, að tjónið fylgi gengisfellingum. Þannig komst Guðni Þórðar- son, forstjóri Ferðaskrifstofunn- ar Sunnu, að orði I gær, þegar Tíminn ræddi við hann af þvi til- efni, að yfirmat hefur nú fellt úr- skurð sinn i sambandi við mála- ferli Ferðaskrifstofunnar Sunnu gegn samgöngumálaráðherra fh. rikissjóðs, er ferðaskrifstofan taldi sig hafa orðið fyrir 60 milljón króna tjóni vegna svipt- ingar á flugrekstrarleyfi, sem henni hafði verið veitt. Undirmat komst aö þeirri niðurstöðu, að tjónið myndi nema kr. 3443041100 en yfirmat taldi tjónið vera kr. 2663511500. Búizt er við, að málflutningur fari fram fyrir undirrétti i haust, og skýrist þá enn frekar, hvort Ferðaskrifstofan eigi bótakröfu á hendur rikissjóði, og þá að sjálf- sögðu, hversu há hún verður. Fundu á fimmta hundrað fjdr í Fljótsdrögum Mó-Stórasandi — Gangna- menn úr Þingi og Vatnsdal eru nú á leið norður Stóra- sand með nokkuð á fimmta hundrað fjár, sem þeir fundu i Fljótsdrögum. Búizt er við þvi, að gangnamenn komi til byggða á föstudag, og verður réttað i Undirfellsrétt siðari hluta þess dags og á laugardegin- um. Veður var gott efra i gær — glampandi sól og bliða — en daginn áður höfðu gangna- menn hreppt leiðindaveður. Fé virðist allt vera óvenju vænt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.