Tíminn - 17.09.1975, Side 11
Miðvikudagur 17. september 1975.
TÍMINN
n
Umsjón:
BOBBY LENNOX VAR
í LEIKBANNI
BOBBY LENNOX, slðasta
„Lissabon-ljónið” I Celtic-lið-
inu, lék ekki með Celtic gegn
Valsmönnum á Laugardals-
vellinum. Þessi snjalli leik-
maður, sem varð Evrópu-
meistari með Celtic I Lissabon
1967, tók I gærkvöldi út eins
leiks keppnisbann I Evrópu-
keppninni, sem hann var
dæmdur I fyrir slæma hegðun
á leikvelli I Grikklandi á slð-
asta keppnistlmabili.
GEORGE KIRBY ÁFRAM
MEÐ AKRANESLIÐIÐ
GEORGE Kirby og lærisveinar hans á Akranesi eru nú komnir til
Kýpur, þar sem þeir munu leika gegn Kýpur-liðinu Omonia Nicosia I
Evrópukeppni meistaraliða á sunnudaginn. Kirby, sem hefur náð
mjög góðum árangri með Akranes-liðið undanfarin tvö keppnistlma-
bil, mun að öllum Hkindum þjálfa Skagamenn næsta sumar — það var
ekki annað að heyra I herbúðum Skagamanna eftir bikarúrslitaleik-
inn.
AAúsin klóraði köttinn
duglega
Þungir leikmenn Celtic urðu fyrstir til að
leggja (2:0) Valsmenn að velli á
heimavelli í Evrópukeppni
★ Sigurður Dagsson varði vítaspyrnu
frd Jóhannesi Eðvaldssyni
Valsmönnum tókst prýðilega upp í músahlutverkinu á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi, þegar þeir mættu
skozka stórliðinu Celtic í Evrópukeppni bikarhafa. Um 8
þús. áhorfendur sáu þá berjast hetjulegri baráttu gegn
„stjörnuliði" Celtic, sem var í hlutverki kattarins. En sá
köttur var þungur á sér, honum tókst aldrei að klófesta
músina, sem oftsinnis tókst að klóra köttinn — og það
duglega. Hinir 8 þús. áhorfendur, sem sáu viðureignina,
urðu fyrir miklum vonbrigðum með Celtic-liðið, sem
sýndi lítið, sem gladdi hjarta knattspyrnuunnandans. En
yf ir einu gátu áhorfendur glaðzt, það var þegar Sigurður
Dagsson varði vítaspyrnu frá Jóhannesi Eðvaldssyni.
Þetta átti sér stað á 66. min,
leiksins, þegar vltaspyrna var
dæmd á Vilhjálm Kjartansson,
fyriraðhafa fellt Paul Wilsoninni
i vitateigÞað vakti mikla athygli,
þegar Jóhannes Eðvaldsson hljóp
að vitapunktinum, til að undirbúa
sig til að taka vitaspyrnuna —
sérstaklega þar sem hann er ekki
vitaskytta liðsins. — Þeir voru
eitthvað að þrasa um það, hver
ætti að taka spyrnuna, sögðu
Valsmenn eftir leikinn.—Sérstak-
lega var Kenny Daglish vondur
yfir, að fá ekki að taka spyrnuna,
sögðu þeir.En hvað um það, Jó-
hannes undirbió sig til að taka
spyrnuna, undir stöðugu bauli
áhorfenda, sem voru óánægðir
með vitaspyrnudóminn.
Þegar Jóhannes tók vitaspyrn-
una, sem fór himinhátt yfir
markið, var Sigurður Dagsson
kominn út úr markinu — þannig
að dómarinn M.Wright, lét endur-
taka spyrnuna.
— Ég tek vitaspyrnuna aftur,
sagði Jóhannes við Kenny Dag-
lish, þegar Daglish spurði hann,
hvort hann treysti sér til að
endurtaka spyrnuna.En það var
greinilegt, að Jóhannesvar kom-
inn úr jafnvægi, eftir fyrri vita-
spyrnuna, þvi að honum brást
bogalistin — Sigurður varði frá
honum spyrnuna.— Ég er mjög
ánægður með, að hafa varið vita-
spyrnuna, þannig gat ég bætt
fyrir fyrra markið, sem ég skrifa
á minn reikning — ég náði ekki að
halda knettinum, sagði Sigurður
Sigurður mátti horfa tvisvar
sinnum á eftir knettinum i netið
hjá sér i gærkvöldi.Bæði mörkin
voru af ódýrari gerðinni, sérstak-
lega það fyrra, sem kom strax
eftir 7. minútur. Þá átti Kenny
Daglish skot að marki, sem
Sigurðurvarði, en hann náði ekki
að halda knettinum, þar sem
Harry Hood pressaði hann —
þannig að Sigurður missti knött-
inn frá sér, til Daglish.sem skor-
aði með lausu skotiSiðara markið
kom á 65.min.eftir slæm varnar-
mistök. Harry Hood tók þá horn-
GUÐMUNDUR ÞORBJÖRNSSON...... bezti maður Valsliðsins, sést hér sækja aö marki Celtic. Andy
Lynch er til varnar. (Tlmamyndir Róbert)
spyrnu — sendi knöttinn inn i
vitateig, þar sem miðvörðurinn
Roddy McDonald var einn og
óvaldaður — hann skallaði knött-
inn i netið.
Valsmenn áttu ágæt tækifæri I
leiknum, það bezta átti Hermann
Gunnarsson, þegar hann skallaði
rétt fram hjá Celtic-markinu,
eftir að hafa fengið sendingu frá
Bergsveini Alfonssyni,— Ég var
öruggur um að skora úr þessu
SAGT EFTIR LEIKINN:
„Valsmenn fá stóran
skell á Parkhead"
sagði Jóhannes Eðvaldsson, sem var fyrirliði Celtic
í gærkvöldi
— Biddu bara, þangað til að Vals-
menn leika á Parkhead, þá fá
Valsmenn stóran skell — við
vinnum þá með 6-7 marka mun,
sagði Jóhannes Eðvaldsson, sem
var fyrirliði Celtic I gærkvöldi,
þegar Timinn spurði hann, hvort
Celtic-liðið væri ekki sterkara,
heldur en það, sem það sýndi á
Laugarda Isvellinum. — Völlurinn
er mjög lélegur og það hafði slæm
áhrif á okkur — við sukkuni niður
I jörðina.
— Hvað vilt þú segja um vita-
spyrnunaa?
— Vitaspyrnuna? Ég fór úr
jafnvægi, þegar Sigurður kom út
á móti mér. Þegar ég tók siðari
vitaspyrnuna, ætlaði ég að skjóta
eins fast og ég gat — þar gerði ég
mistök, sagði Jóhannes, sem var
greinilega i miklu uppnámi eftir
leikinn.
JÓHANNES EÐVALDSSON....
var ekki I essinu slnu gegn slnum
gömlu félögum.
.Ánæaður
með Vals-
liðið
— sem lék sóknar-
knattspyrnu',
sagði Albert
Guðmundsson
— Ég var mjög ánægður meö
Valsliðið, sem reyndi að ná
árangri með þvi að leika knatt-
spyrnu gegn hinum sterku leik-
mönnum Celtic — þeir lögðust
ekki i vörn og reyndu aö ná
imynduðum árangri, með því að
leika með 11 markverði. Heldur
léku þeir opinn fótbolta, án þess
að það skapaðist veruleg hætta
upp við inark þeirra, sagði Albert
Guðmundsson, fyrrum formaður
KSt.
— Sigurður var óheppinn að fá
á sig fyrra markið, en hann bætti
það upp, með þvi að verja vita-
spyrnuna frá Jóhannesi, á frábær
an hátt.
— Þá er ég mjög ánægður með
þátt þjálfara Vals, Joe Gilroy, i
leiknum.Hann undirbjó Valsliðið
vel og lét strákana fara inn á völl-
inn með þvi hugarfari að leika
skemmtilega knattspyrnu, en
ekki að leggjast i vörn.