Tíminn - 17.09.1975, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 17. september 1975.
TÍMINN
15
Fyrsta leiksýningin á Stóra sviði Þjóðleikhússins á þessu leikári verður á laugardagskvöld en þá verður
ÞJÓÐNÍÐINGUR Ibsens tekinn til sýningar á ný. Sýningin hlaut afbragðsgóða dóma I vor en ekki var
þá unnt að hafa nema 8 sýningar. Með sýningu þessari minnast þeir Baldvin Halldórsson, leikstjóri og
Gunnar Eyjólfsson, sem fer með aðalhlutverkið 30ára leikafmælis slns. í öðrum helztu hlutverkum eru:
Þóra Friðriksdóttir, Rúrik Haraldsson, Valur Gfslason, Sigurður Skúlason, Jón Júliusson, Ævar R.
Kvaran, Steinunn Jóhannesdóttir og Hákon Waage. Leikritið er fiutt lleikgerð Arthurs Miilers i þýðingu
Árna Guðnasonar. Leikmyndir gerði Snorri Sveinn Friðriksson. Ákveðið hefur verið að sýna leikritið á
laugardags- og sunnudagskvöldum fyrst um sinn. Á myndinni eru Gunnar Eyjólfsson og Þóra Friðriks-
dóttir.
7 leikmenn Celtic-liðsins stöðva hér eina sóknarlotu Valsmanna inn I
vitateig hjá sér i fyrri hálfieik.
VILHJALMUR KJARTANSSON.......sést hér fella Wilson inn I vita-
teig. Vegna þessa brots fengu leikmenn Celtic vitaspyrnuna.
WESPER
Hitablásarar
fyrir heitt vatn og gufu
„TYPEISLANDAIS” sérbyggð
fyrir hitaveitu.
Þeir voru ekki á Laugardalssýningunni, en
nokkur hundruð eru I notkun I Reykjavik og
t.d. er Trésmiðjan VIÐIR með 40 stk. Þaö
er engin goðgá, ÞEIR eru bestir. Þaö sanna
afköstin og hve hljóðlátir þeir eru.
Vinsamlegast sendið skriflegar fyrirspurn-
ir.
HELGI THORVALDSSON
Háagerði 29 — Reykjavik
Simi 3-4932
0 íþróttir
tækifæri — en það var ekki nógu
mikill kraftur i kollspyrnunni,
sagði Hermann eftir leikinn.
Annars var leikurinn i gær-
kvöldi litið spennandi fyrir áhorf-
endur, sem urðu fyrir mikum
vonbrigðum með „Stjörnulið”
Ceitic, sem er skipað þungum
leikmönnum, sem sýndu ekki
skemmtilega knattspyrnu. Leik-
aðferð þeirra einkenndist af lang-
spörkum fram völlinn, þar sem
þeir treystu á sóknarleikmenn
liðsins. Kenny Daglish og Jackey
McNamara sýndu beztan leik
liðsins — frábærir knattspyrnu-
menn. Jóhannes Eðvaldsson átti
lélegan leik — hann var einum of
grófur við sina gömlu félaga.
Valsliðið, sem tapaði sinum
fyrsta Evrópuleik á heimavelli,
sýndi ágæta knattspyrnu á köfl-
um, en datt niður þess á milli.
Maður hefur oft séð liðið leika
betur, heldur en gegn Celtic.Beztu
menn liðsins voru þeir Magnús
Bergs og Guðmundur Þorbjörns-
son.
1 Íb UT y
Kjósarsýsla
Héraðsmót framsóknarmanna I Kjósarsýslu verður haldið laug-
ardaginn 4. október i Hlégarði, Mosfellssveit. Hefst það kl. 21.
Olafur Jóhannesson dómsmálaráðherra og Jón Skaftason al-
þingismaður flytja ávörp. Sungin verða og leikin lög eftir Sigfús
Halldórsson. Kátir félagar leika fyrir dansi.
Kópavogur—
fulltrúaróð
Ariðandi fundur verður i félagsheimili Kópavogs, efri sal, föstu-
daginn 19. september kl. 20:30. Fjallað verður um bæjarmálin.
Framsögu hefur Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri. Stjórnin.
FUF — Reykjavík
Stjórn FUF i Reykjavik verður til viðtals á Rauðarárstig 18,
millikl. 5og 7 þriðjudaginn 23. september. Stjórnin.
'rv'
•p>Æ
Aðstoðariæknir
Íi
í H
K'
,r;v
V s.,;
Staöa aðstoöarlæknis á Geðdeild Borgarspitalans er
laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykja-
víkur við Reykjavikurborg.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
skulu sendar yfirlækni deildarinnar, sem jafnframt
veitir frekari upplýsingar.
y«-}
ý’V
$
1
$
'lft
•rvi,;
iVi
\>/
y -
Reykjavik, 15. september 1975
Stjórn sjúkrastofnana
Reykjavikurborgar.
M
Menntamálaráðuneytið,
10. september 1975.
Styrkur til hóskólanóms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram handa is-
lendingi til háskólanáms i Japan námsár-
ið 1976-77 en til greina kemur að styrk-
tímabil verði framlengt til marz 1978.
Ætlast er til að styrkþegi hafi lokið há-
skólaprófi eða sé kominn nokkuð áleiðis i
háskólanámi. Þar sem kennsla við
japanska háskóla fer fram á japönsku er
til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á
japanska tungu um a.m.k. sex mánaða
skeið. Umsækjendur skulu ekki vera eldri
en 35 ára. Styrkf járhæðin er 111.000.- yen á
mánuði og styrkþegi er undanþeginn
skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi
25.000.- yen við upphaf styrktimabilsins og
allt að 44.000.- yen til kaupa á námsgögn-
um. Þá er og veittur ferðastyrkur.
Umsóknir um styrk þennan, ásamt stað-
festum afritum prófskirteina, meðmælum
og heilbrigðisvottorði, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 11. október n.k. — Sér-
stök umsóknareyðublöð fást i ráðuneyt-
inu.
i