Tíminn - 17.09.1975, Blaðsíða 16
Mi&vikudagur
17. september 1975.
SÍMI 12234
‘HERRft
G*RÐURINN
AdDALSTRfETI 3
sís-iómit
SUNDAHÖFN
fyrir góéan mai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Norski hægri flokkurinn
vinnur stórsigur
— í sveitarstjórnar kosningunum um helgina
Flukkur Bratteli forsætisráö-
herra Verkamannaflokkurinn
bætti við sig 3,1% atkvæða.
NTB/Reuter Oslo — Um 2,7 mill-
jónir Norðmanna voru á kjörskrá
i sveitarstjórnarkosningunum,
scm fram fóru í Noregi um síð-
ustu helgi. Kosið var um 13,500
fulltriía i sveitarstjórnir og
bæjarráð. Verkamannaflokkur-
inn, sem nú situr í rikisstjórn,
bætti við sig, jafnvel þó að tap
hafi verið á fylgl hans I nokkrum
sveitahéruðum. Hægri flokkurinn
vann mikinn kosningasigur, hefur
bætt 4,8% atkvæða við sig, er
þetta mesti kosningasigur þeirra
i fjörutiu ár. Vinstri sinnaðir
sósialistar biðu langmest afhroð i
kosningunum, fengu nær helmingi
færri atkvæði en i kosningunum
1973.
Flokkur forsætisráðherrans,
Trygve Bratteli, Verkamanna-
flokkurinn, bætti við sig um 3,1%
atkvæða, þegar miðað er við
sveitarstjórnarkosningarnar
1973, fhaldsflokkurinn 4,8% at-
kvæða, kristilegi flokkurinn bætti
engu við sig en stóð i stað frá
kosningunum 1973. Langmestan
ósigur beið flokkur vinstrisinn-
aðra sósialista, en þeir töpuðu
nær helmingi þeirra atkvtölu
sem þeir fengu i sfðustu kosning-
um.
Aðalbaráttumálin i sveitar-
stjórnarkosningunum voru at-
vinnuleysi, skattar og verðbólga,
og gefa úrslitin i kosningunum
nokkra visbendingu um hver
stefnan verður i næstu þingkosn-
ingum.
Olé, olé fyrir
skæruliðunum
Sprengjan í Hilton
MYNDIN sýnir hvernig umhorfs
var í Hilton-hótelinu i London,
eftir að sprengja sprakk þar I síð-
ustu viku. Tveir létu lifið og tutt-
ugu og átta særðust, sumir mjög
hættulega. Þetta var fimmta
sprengingin i London á aðeins
tveim vikum, en á mánudag
sprungu tvær litlar bréfsprengj-
ur, og er nú óttazt, að ný alda
sprengjubréfasendinga sé að
hefjast i Bretlandi. Brezka lög-
reglan hefur grun um að hermd-
arverkamenn Irska lýðveldis-
hersins (IRA) hafi verið að verki i
flest ef ekki öil skiptin, sem
sprengingar hafi orðið i London
undanfarnar vikur.
— hrópaði mannfjöldinn, þegar þeir leiddu gísla
sína út úr sendiróðinu í Madrid
Reuter-Madrid/Alsir — Skærulið-
arnir fjórir, sem réðust til inn-
göngu I sendiráö Egypta á mánu-
dag og tóku þar þrjá gisla, eru nú
komnir til Alsir, en Egyptalands-
stjórn samþykkti að láta þá hafa
flugvél til að flytja þá og gislana.
Þá höfðu þeir bætt við nokkrum
gíslum, sem þeir tóku einnig með
sér. Umsátrið um sendiráðiö stóð
I sextán klukkustundir, en skæru-
liðarnir höföu hótað að sprengja
bygginguna I loft upp, væri ekki
farið að kröfum þeirra. Geysileg-
ur mannfjöldi safnaðist saman
fyrir framan sendiráöið, meðan á
umsátrinu stóð, og átti lögreglan I
mestu vandræöum við að halda i
skefjum fólki, sem ekki vildi
missa af neinu sem geröist.
Mannfjöldinn kallaöi „Olé”, þeg-
ar skæruliöarnir komu út með
gisla sina og færðu þá út I bifreið,
sem ók þeim á flugvöllinn.
Eftir langar viðræöur við
skæruliðana tókst að komast aö
samkomulagi við þá. Þeir höfðu
krafizt þess, að samkomulaginu
milli Egyptalands og Israel yrði
þegar rift, en gerðu sig á endan-
um ánægða meö skriflega yfirlýs-
ingu frá sendiherrum Iraks,
Alsir, Egyptalands, Kuwait og
Jórdaniu, þar sem samkomulagið
var fordæmt. Virtust skærulið-
arnir vera hæstánægðir með þau
málalok að fá flugvél til að flytja
sig til Alsir.
Mikill mannfjöldi var fyrir utan
egypzka sendiráðið meirihluta
þeirra sextán klukkustunda, sem
umsátrið stóð. Rikti þar hin bezta
stemmning, fólkið hrópaði og
klappaði, auk þess sem það virtist
skemmta sér konunglega. Viva,
viva og olé-olé, heyrðist hrópað I
taktföstum kór, þegar skærulið-
arnir fjórir komu út úr bygging-
unni með gisla sina. Veitinga-
staðir I nágrenninu höfðu meira
en nóg að gera. Fréttamenn lýstu
þessu eins og áramótagleði, eöa
eins og mannfjölda, sem væri að
horfa á nautaat. Margir voru meö
myndavélar og tóku óspart
myndir af skæruliðunum og gisl-
um þeirra.
Það voru egypzk stjórnvöld,
sem létu undan kröfum skærulið-
anna og létu þeim I té farþega-
flugvél af Ilyushin-18 gerð.
Fyrstu viðbrögð egypzkra stjórn-
valda á mánudag, eftir að skæru-
liðarnir réðust inn i sendiráðið,
voru þau að lýsa Yasser Arafat,
leiðtoga sjálfstæöishreyfingu
Palestinuaraba, ábyrgan fyrir
árásinni, en Arafat neitaði þegar I
stað að hreyfingin ætti þarna
nokkurn hlut að máli.
New York:
Kennaraverk-
fallinu lokið
Reuter-New York — ! gær lauk
vikulöngu verkfalli 55.000 kenn-
ara i New York, er fulltrúar
þeirra greiddu atkvæði með
nýja launasa mningnum . NIu
hundruð og fimmtiu skólar voru
lokaðir I borginni þessa viku, er
kennararnir neituðu að endur-
nýja samninginn. Þeir kvörtuöu
yfir yfirfullum bekkjum — en I
þessum skólum eru rúmlega ein
milljón nemenda — og einnig
inótmæltu þeir of löngum vinnu-
tima. Ekki var vitað hvernig nýi
samningurinn hljóðaði, en opna
átti skólana I dag, svo nemend-
ur New York-borgar fá ekki
meira fri I bili.
Ekki var vitað, hvort eitthvað
af þeim 4.500 kennurum sem
sagt var upp störfum af borgar-
yfirvöldum, verða ráðnir aftur.
Kennurum var sagt upp, þvl
borgaryfirvöld New York eiga
nú I miklum efnahagslegum
erfiðleikum, og var þetta ein
sparnaðarráðstöfunin. Fréttir
herma þó, að samkvæmt nýja
samningnum, verði að ráða að
minnsta kosti tvö þúsund kenn-
ara aftur.
Harðir bardagar geisa í
Beirut og Tripoli
Yasser Arufat lofar að reyna að
stilla til friðar i Libanon.
Reuter Beirut — Að minnsta kosti
átta manns létuzt i gærdag i
átökum milli múhameðstrúar-
manna og kristinna manna i höf-
uöborg Libanon I gær, Beirut. Ör-
yggisvcrðir skutu á leyniskyttur,
sem földust á húsaþökum, til að
reyna að stöðva bardagana. i
fyrrakvöld létuzt fjórir, þar af
einn lögreglumaöur i átökum i
Beirut. Einnig var mikið um átök
i Tripoli hafnarborginni i norður
Lfbanon.
Riffilskothrið og sprengjuhá-
vaði heyrðist i suðaustur úthverf-
um Beirut i allan gærdag, en i
öðrum hlutum borgarinnar virtist
að mestu leyti rikja friður. Cam-
ille Chamoun innanrikisráðherra
sagði í gær, að ef átökin ættu enn
eftir að harðna i Beirut, myndi
herinn verða látinn gripa i taum-
ana til að stilla til friðar, eins og
gert var i Tripoli.
Að sögn lögreglunnar i Beirut i
gær, hafa nú yfir eitt hundrað og
fjörutiu mannslátið lifið i átökum
múhameðstrúarmanna og krist-
inna.
Sprengjur sprungu og skotbar-
dagar geisuðu i Tripoli i gær og
aðalvegurinn milli Beirut og Tri-
poli var umsetinn vopnuðum
mönnum. Fréttir herma, að rót-
tækir vinstrisinnar hefðu að
minnsta kosti fjörutiu lögreglu-
menn og niu hermenn i haldi, en
þeim náðu þeir á sitt vald eftir að
hafa ráðizt á fjórar lögreglu-
stöðvar á Tripolisvæðinu.
Á meðan átökin héldu áfram,
ræddu stjórnmálaflokkarnir,
bæði vinstri og hægri sinnar,
saman um ástandiö og reyndu að
finna lausn á þvi. Innanrikisráð-
herrann, Camille Chamoun ræddi
við Yasser Arafat, leiðtoga sjálf-
stæðishreyfingar Palestinuaraba
(PLO). Fréttir hermdu eftir fund
þeirra, að Arafat hefði fullvissað
libanönsku stjórnina um að þeir
myndu hjálpa til að koma á friði
og koma ástandinu i eðlilegt horf
á ný.
Pierre Gemayel, leiðtogi hægri
sinnaðra Falangista skoraði á
Rashid Karami forsætisráðherra,
Camille Chamoun og Arafat að
gera allt sem i þeirra valdi stæði
til að stilla til friðar og koma
ástandinu i eðlilegt horf.
Gemayel sagði fréttamönnum i
gær,aðhann krefðist þess að stillt
yrði til friðar sem allra fyrst, þótt
nota yrði til þess herstyrk, til þess
að binda endi á morðin, og eyði-
legginguna i landinu.
Að sögn lögreglunnar, var
leigubilstjöri skotinn til bana i
Beirut i gær, er hann var að aka
farþega sinum i einu af úthverf-
um borgarinnar. Farþeginn
reyndist vera Richard Murphy,
sem er nrófessor i ensku við
bandariska háskólann i Beirut
Hann slasaðist litillega þegar
leigubillinn stöðvaðist skyndi-
lega, eftir að bilstjórinn hafði
verið skotinn.
KHFFIÐ
ffrá Brasilíu