Tíminn - 09.10.1975, Page 13
Fimmtudagur 9, október 1975.
13
O Iðnþing
hvernig unnt sé að beita opinber-
um innkaupum beinlinis sem tæki
til eflingar iðnþróun.
Iðnaðarráðuneytið hefur unnið
að því að beina innkaupum,
vegna framkvæmda á vegum
opinberra aðila, til innlendra
framleiðenda. Hefur m.a. verið
lögð sérstök áherzla á viðskipti
við innlenda framleiðendur vegna
þeirra framkvæmda sem hafnar
eru á Grundartanga i Hvalfirði.
Ráðuneytið hefur i þvi sambandi
lagt áherzlu á það við stjörn Járn-
blendifélagsins, að útboðum verði
hagað þannig, að islenzk fyrir-
tæki eigi þess kost að bjöða i verk
eða einstaka verkhluta og islenzk
iðnaðarframleiðsla njóti forgangs
svo sem kostur er. Einnig að
stefnt sé að þvi' að mannvirki
verði smiðuð og reist af innlend-
um aðilum, þegar viðunandi boð
fást.
Hagræðing
og framleiðni
A sviði hagræðingarmála og
framleiðniaukandi aðgerða hefur
viða verið unnið gagnlegt starf,
og þarf áfram að halda og efla
þann stuðning, sem veittur er iðn-
fyrirtækjum á þessum sviðum.
Er þess að vænta að tæknistofnun
fyrir iðnaðinn verði merkur
áfangi i þeirri viðleitni.
Fyrir rúmu ári gerði Iðn-
þróunarstofnun íslands samning
við danska ráðgjafastofnun um
tækniaðstoð við innlendar skipa-
smiðastöðvar. Framkvæmd
þessa verks hófst á s.l. hausti og
er enn haldið áfram. Fram til
þessa eru það einkum þrjár
skipasmiðastöðvar, sem orðið
hafa þeirrar aðstoðar aðnjótandi,
en ekkert ætti að vera þvi til
fyrirstöðu að fleiri stöðvar njóti
góðs af þvi starfi, sem hér er unn-
ið og þarf að stefna að þvi'.
Á þéim skamma tima, sem lið-
inn er frá þvi tækniaðstoð þessi
hófst, hefur framleiðni i þeirri
stöð sem beztum árangri hefur
náð, aukizt um 15-20%, sem er af-
ar athyglisvert. Fyrir liggur nú i
ráðuneytinu beiðni um áframhald
fjárhagslegrar fyrirgreiðslu
vegna framhalds á tækniaðstoð.
Mun ráðuneytið beita sér fyrir þvi
að sú beiðni fái jákvæða úrlausn.
Ég vék áðan að mótun stefnu
um innkaup opinberra aðila til
áhrifa á þróun islenzks iðnaðar.
Það er einnig mikilvægt, að mót-
uð verði ákveðnari stefna gagn-
vart Islenzkum skipasmiðaiðnaði
við endurnýjun og aukningu fiski-
skipaflota okkar, ekki sizt i
endurnýjun og uppbyggingu
togaraflotans, sem nú mun gegna
vaxandi hlutverki við nýtingu
fiskimiðanna innan hinnar stækk-
uðu landhelgi. Ætti að vera unnt
að framfylgja fastmótaðri stefnu
I þessum efnum, með lánaregl-
um, veitingu ábyrgða til kaup-
enda o.fl.
Um árabil hefur verið reynt að
hafa hér áhrif á með þvi að veita
kaupendum skipa, sem smiðuð
eru innanlands, 10% viðbótarlán
umfram það sem fæst, þegar er-
lend skip eru keypt. Á s.l. vetri fól
rikisstjórnin Byggðasjóði að hafa
lánveitingar þessar með höndum
og er þvi komin föst skipan á
þessi mál. Þótt þessi 10% lán
skipti verulegu máli fyrir inn-
Tilboð óskast
i fólksbifreiðar, Pick-Up og sendiferðabif-
reiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 14. október kl. 12-3.
Sala varnarliðseigna.
Fossvogur
Ný 4ra herbergja ibúð á 2. hæð við Selja-
land.
tbúðin er 1 stofa og forstofa með parket, hjónaherbergi
með skápum og 2 barnaherberg, baðherbergi með flisum
og búr inn af eldhúsi. Verð: 7,5 millj. kr.
Á sama stigagandi er til sölu
einstaklingsibúð.
Vagn E. Jónsson hrl.
Fasteignadeild, Austurstræti 9, símar 2-14-10 & 14-400.
Stór kyndistöð
Til sölu er kyndistöð Hitaveitu Arnarness,
þ.e.a.s. einn ketill (1,6 KCAL/H) og einn
ketill (1,5 KCAL/H) ásamt fylgihlutum.
Einnig flytjanlegt stálgrindarhús með
einangrun, 12x12 m.
Upplýsingar gefur Kristján óli Hjaltason,
i sima 1-52-23 eða i sima 4-19-15 eftir kl. 18.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavik, 7. október 1975.
Fulltrúastaða í
utanríkisþjónustunni
Staða fulltrúa I utanrikisþjónustunni er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt iaunakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115,
Reykjavik, fyrir 10. nóvember 1975.
Staðan verður veitt frá og með 1. janúr 1976.
lendan skipasmiðaiðnað, verður
að gera hér enn betur og móta
langtimaáætlun um þörf okkar i
þvi skyni að draga úr þeim sveifl-
um sem hafa verið einkennandi i
endurnýjun fiskiskipaflotans og
tryggja skipasmiðaiðnaði okkar á
þann hátt meiri og jafnari eftir-
spurn.
En það er fleira en nýsmiðin,
sem máli skiptir. Hin mikla upp-
bygging skuttogaraflotans hefur
aukið mjög eftirspurn eftir hvers
konar viðhalds- og viðgerðar-
þjónustu fyrir þennan flota. Ekki
er vafi á þvi, að skipasmiða- og
dráttarbrautastöðvar þurfa að
búa sig sérstaklega undir aukna
eftirspurn eftir. þessari þjónustu,
og sérstaklega þarf að huga að
þvi, hvernig unnt sé að flytja inn I
landið sem mest af þeim skipa-
viðgerðum, sem nú fara fram er-
lendis.
Að undanförnu hefur einnig
verið unnið umtalsvert starf við
að efla framleiðni f.húsgagna- og
innréttingaiðnaði, með fjárhags-
legum stuðningi iðnaðarráðu-
neytis og Iðnþróunarsjóðs. Hér
hefur verið um árangursrikt og
gagnlegt starf að ræða, sem án
efa stuðlar að þvi að þessar fram-
leiðslugreinar verði færari en áð-
ur til að mæta aukinni erlendri
samkeppni.
Iðnaðarmálagjald
Á siðasta Alþingi voru sam-
þykkt lög um iðnaðarmálagjald,
sem fela i sér, að lagt er sérstakt
gjald, 0,1% á allan iðnrekstur i
landinu, á sama hátt og iðnlána-
sjóðsgjald og lagt á með þvi.
Tekjur af gjaldi þessu renna til
samtaka iðnaðarins i landinu og
skal ráðstafað til að vinna að efl-
ingu iðnaðar og iðnþróunar i
landinu. Er þess að vænta, að það
aukna fjármagn, sem samtökin
fá með gjaldi þessu, verði til þess
að efla starfsemi þeirra til hags-
bóta fyrir jákvæða iðnþróun i
landinu.
Rússneskir rifflar
fimm skota — með og án sjónauka —
Verð frá kr. 8.900
Rifflar
Riffilsjónaukar
Skot og
hlífðarföt
POSTSENDUM
SPORT&4L S
c7 IPLMMTORG] I
HAGLA-
BYSSUR
Við bjóðu
20% afslátt af
• •
0LLUIV
gleraugna-
umgjörðum
í dag og
nokkra næstu
daga, vegna
breytinga
á rekstri
fyrirtækisins.
N0TAÐU TÆKIFÆRIÐ
— ef þú þarft að endurnýja gleraugun
— ef þú þarft lestrargleraugu
— ef þú ert að byrja i skóla
— ef þú ert orðinn leiður á gömlu umgjörðinni.
Mundu: Ný gleraugu skapa nýtt andlit.
Mundu: Tilboð þetta stendur aðeins i nokkra daga.
T\/| | H GLERAUGNAVERSLUN,
lYLI F AUSTURSTRÆTI20.
l.