Tíminn - 16.10.1975, Síða 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 16. október 1975.
SKRIF ERLENDRA BLAÐA
UM ÚTFÆRSLUNA í GÆR
YFIRLEITT HÓFSAMLEG
Mó—Keykjavik. — I tilefni af
útfærslu islenzku fiskveiðilög-
sögunnar i tvö hundruð milur
hafði blaðið samband við sendi-
ráð tslands i London og Bonn og
spurðist fyrir um viðbrögð fjöl-
miðla við útfærslunni.
Helgi Agústsson, sendiráðs-
ritari i London, sagði að ekki
hefðu verið mikil blaðaskrif um
málið i morgun, og ekki hefðu
neinar neikvæðar greinar birzt.
ttarleg grein birtist þó i timarit-
inu Financial Times. Er hún
skrifuð af Wilham Dullforsce,
sem staddur er i Reykjavik.
Ritar hann af skilningi um
málið og greinir bæði frá rökum
með og á móti. Þótt ekki sé hægt
að segja að hann styðji málstað
okkar, er þakkarvert þegar
skýrt er frá staðreyndum, en
málstaður okkar ekki affluttur.
Þá birtist einnig alllöng grein
Flóamarkaður
FÉLAG einstæðra foreldra held-
ur flóamarkað sinn i báðum söl-
um Hallveigarstaða laugardag
18. okt. og hefst hann kl. 3 e.h.
Verður þar á boðstólum mikið úr-
val af nýjum og notuðm varningi
svo sem fatnaður, búsáhöld, leik-
föng, bækur, matvara, hljómplöt-
ur, lukkupakkar ásamt með
nokkrum stærri hlutum, útvarps-
tæki, barnarúmi, barnavagni,
ryksugu, silfurref, pelskápu og
mætti svo áfram telja.
FEF hefur siðustu ár haldið
flóamarkaði um þetta leyti og að-
sókn verið ákaflega mikil. Er fólk
hvatt til að koma á markaðinn,
gera reyfarakaup og styrkja gott
málefni, en allur ágóði rennur i
Húsbygginga- og styrktasjóð
FEF.
i Daily Telegraph, en i henni
kemur fátt markvert fram.
önnur blöð geta einungis um út-
færsluna með smáklausum, en
sendiráðinu berst mikið af
fyrirspurnum vegna útfærsl-
unnar. Má búast við að mun
meira verði skrifað um útfærsl-
una, þegar samningurinn við
Breta rennur út 13. nóv. næst
komandi.
Hjá Arna Tryggvasyni, sendi-
herra i Bonn, fengum við þær
upplýsingar, að timaritið Die
Welt hefði birt langt viðtal við
Geir Hallgrimsson forsætisráð-
herra, og einnig rætt við tals-
menn utanrikisráðuneytisins.
Málstaður Islendinga væri
nokkuð skýrður i þessum viðtöl-
um, og einnig fjölluðu önnur
blöð litilsháttar um málið af til-
tölulegri hófsemi.
Ekki hafði neitt blaðanna i
Bonn fjallað um málið i leiðara i
morgun, en fregnir af blaða-
skrifum annarra blaða höfðu
ekki borizt sendiráðinu ennþá.
Arni taldi að búast mætti við
harðari viðbrögðum blaða á
norðvesturhorni landsins, þar
sem aðal útgerðarbæirnir eru.
Þrjú stærstu morgunblöð Svi-
þjóðar minntust i gær útfærslu
islenzku fiskveiðilögsögunnar á
mjög vinsamlegan hátt, sagði
Eirikur Tómasson fréttaritari
Timans. Dagens Nyheter i
Stokkhólmi birti greinar um
hana bæði á forsiðu og baksiðu,
og kemur þar fram samúð með
málstað tslendinga. Göteborgs-
posten i Gautaborg og
Syd-svenska Dagbladet gátu
hennar einnig áberandi i frétt-
um, og kom fram i þeim stuðn-
ingur við Island.
Hins vegar er ekki sömu sögu
að segja varðandi dönsku blöð-
in. Berlinske Tidende minnist
ekki á útfærsluna, en Politiken
birtir um hana forustugrein, þar
sem hún er talin ótimabær og
likleg til að valda glundroða og
upplausn i hafréttarmálum,
M.a. kunni bæði Mexikó og
Bandarikin að fylgja fordæmi
Islands.
I leiðara norska blaðsins Aft-
enposten i gær sagði fyrst, að
það hafi verið álit alþjóðadóm-
stólsins i Haag, að einhliða út-
færsla islenzku landhelginnar i
50 milur á sinum tima hafi ekki
átt sér lagastoð i meginreglum
þjóðaréttarins, og að þvi eigi
frekari útfærsla landhelginnar
ekki frekar lagastoð.
Siðan segir i leiðara blaðsins,
að þrátt fyrir þessa neikvæðu
afstöðu þjóðaréttarins til ein-
hliða aðgerða Islendinga i land-
helgismálinu, breyti það ekki
þvi, að flestir Norðmenn hafi
skilning á skoðunum og rökum
vina sinna tslendinga. Ljóst sé,
að þeir njóti i þessu máli al-
gjörrar sérstöðu og að efna-
hagsleg afkoma þeirra byggist
á fiskveiðum og fiskvinnslu. Þá
segir i leiðara Aftenpostens, og
heyrzt hafi raddir i Noregi, sem
krefjist-þess, að Norðmenn fylgi
fordæmi Islendinga. Um það
séu hins vegar ekki allir sam-
mála, enda sé örðugt að bera Is-
land og Noreg saman, hvað
þessu viðviki. Blaðið sagði loks,
að tslendingar hefðu styrkt
stöðu sina i þessu máli, hefðu
þeir fyrst reynt samningaleið-
ina til þrautar.
1 Morgenbladet sagði, aö
reynt væri að leysa á alþjóða-
vettvangi deiluna um viðáttu
fiskveiðilögsögu standrikja, og
þvi væri þessi einhliða ákvörðun
Islendinga nokkurs konar sjálf-
taka, sem undir venjulegum
kringumstæðum ætti ekki rétt á
sér. Siðan segir blaðið, að ts-
lendingar njóti samúðar i þessu
máli vegna sérstöðu fiskveiða ,
fyrir afkomu þeirra.
1 leiðurum annarra norskra
blaða komu fram mjög svipuð
sjónarmið og þau, er hér voru
rakin.
Erum fluttir
Höfum flutt skrifstofu
Rætt um almenningsbókasöfn d Alþingi:
Nýyrði sótt
í Þrymskviðu
AÞ—Reykjavik — I gær mælti
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra fyrir
stjórnarfrumvarpi um almenn-
ingsbókasöfn, en sem kunnugt
er var þetta frumvarp lagt fyrir
siðasta þing, en hlaut ekki af-
greiðslu þá. Umræður urðu hin-
ar fjörugustu, einkum vegna
þáltar Gylfa Þ. Gislasonar (sjá
nánar á Viðavangi bls. 3), en inn
i umræðurnar spunnust einnig
spurningar um nýyrði sem í ljós
kom að sótt voru í Þrymskviðu.
Þetta frumvarp hefur i för
með sér nokkurn útgjaldaauka
fyrir rikissjóð, verði það sam-
þykkt. Frumvarpið miðar að
þvi, að sett verði rammalöggjöf
um almenningsbókasöfn, en
nánar verði kveðiö á um ýms
framkvæmdaatriði i reglugerð.
Nokkrar umræður urðu um
málið, en að þvi búnu var þvi
visað til menntamálanefndar
neðri deildar. Þeir, sem tóku til
máls, auk ráðherra, voru Gylfi
Þ. Gislason (A), Gils Guð-
mundsson (Ab), Magnús Torfi
Ólafsson (SFV), Benedikt Grön-
dal (A), Ellert B. Schram (S) og
Sverrir Hermannsson (S).
Lýstu flestir ræðumanna yfir
stuðningi við frumvarpið, nema
Ellert B. Schram. Sagði þing-
maðurinn, að á erfiðleikatimum
i efnahagsmálum yrði að mega
það og meta, hve langt ætti að
ganga i fjárveitingum, hversu
góð sem málefnin annars væru.
Enn fremur sagði hann, að ým-
islegt i þessu frumvarpi, sem
varðaði samskipti rikis og sveit-
arfélaga, stangaðist á við hug-
myndir sinar.
Gils Guðmundsson, Magnús
Torfi Ólafsson og Benedikt
Gröndal lýstu allir yfir stuðn-
ingi við frumvarpið. Sömuleiðis
Sverrir Hermannsson, en' hann
gerði að umræðuefni orðið lýsi-
gögn, sem getið er um i frum-
varpinu, og óskaði eftir upplýs-
ingum um þýðingu þess og upp-
runa. Menntamálaráðherra
upplýsti, að þetta orð væri tekið
upp úr Þrymskviðu. Lýsigögn
mun standa fyrir ljósatæki,
segulbönd, kvikmyndavélar og
fleira.
Tvö stjórnar-
frumvörp
AÞ—Reykjavik—A fundi neðri
deildar i gær mælti Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
fyrir tveimur stjórnarfrum-
vörpum. Hið fyrra var frum-
varp um byggingalög, en siðan
mælti ráðherrann fyrir frum-
varpi um skipulagslög.
og söludeild að
r r
ARMULA
ÞÓRf
SÍMI SISOa-ÁRMLJLA'H
f
Bílasalan Höfðatúni 10
SELUR ALLA BÍLA:
Fólksbíla — Stationbíla
Jeppa — Sendibila
Vörubila — Vöruflutningabíla
14 ára reynsla i bilaviðskiptum. Opið alla
virka daga kl. t)—7, laugardaga kl. 1—4.
Bilasalan Höfðatúni 10
Urgur fyrir vestan
vegna rækjuverðs
BH—Reykjavik — Þaö er urgur
i mönnum hér vestra yfir rækju-
vcröinu, sagði Guðmundur Guð-
jónsson, formaður smábátaeig-
endafélagsins á tsafirði, I viðtali
við Timann i gærkvöldi, og ég
veit ekki, hvort menn róa héðan
upp á þetta. Þetta er svo mikil
verðlækkun, úr 56,00 i 44,00
krónur kilóið i efra flokknum og
úr 26.00 niður i 20 i neðra flokkn-
um, á sama tíma og allur út-
gerðarkostnaður hefur aukizt
stórlega. Við höfðum svo sem
reiknað með verðlækkun, en
bara ekki svona mikilli. En það
verður fundur i félaginu hjá
okkur einhvern næstu daga, og
þar vcrður tekin ákvörðun um
það, hvað gert verður.
Þannig komst formaður smá-
bátaeigendafélagsins á Isafirði
að orði. Við ræddum málið lika
við Theódór Nordquist, fram-
kvæmdastjóra Niðursuðuverk-
smiðju O. Olsen.
— Þetta er hærra verð en
verksmiðjurnar geta borgað,
eins og málum er nú háttað,
sagði Theódór, en rækju-
sjómennirnir eru ekkert of sælir
af þessu. Þetta er það mikil
kjaraskerðing miðað við siðustu
vertið. En hvað skal segja. Ég
held, að það verði erfitt fyrir
bátana að fara af stað.
Theódór Nordquist benti
okkur á, að hlutfallið væri mis-
munandi hvað stærðina snerti á
rækjunni i Djúpinu og i Flóan-
um.
— Hjá okkur i Djúpinu er
rækjan yfirleitt smærri en i
Flóanum. Það hefur sýnt sig, að
um 50% Djúprækjunnar lenda I
1. flokki og 50% i öðrum flokki.
Timinn sneri sér til Jóns
Kristinssonar á Hólmavik og
spurði hann eftir viðhorfum til
rækjuverðsins á þeim stað.
Fyrst báðum við hann að segja
okkur, hvernig stærðarskipting-
in væri á Húnaflóarækjunni.
— Eftir þvi, sem ég hef komizt
næst, mun um 90% af rækjunni
hérna lenda i 1. flokki og aðeins
um 10% i minni flokknum. Þetta
skapar sina erfiðleika hér, og ég
geri ekki ráð fyrir, að rækju-
vinnslan treysti sér til að kaupa
rækjuna á þessu verði, nema til
komi einhverjar breytingar á
stærðarhlutfalli. Þrátt fyrir
lækkunina geri ég ráð fyrir, að
menn rói upp á þetta, en spurn-
ingin er bara þessi, hvað kaup-
endur treysta sér til að gera.
Njarðvíkinga
slysahættu
Mó. Rvik. Aö undanförnu hafa
orðið mjög tið umferðarslys á
þeim hluta Reykjanesbrautar,
sem liggur i gegnum Njarðvikur.
Þar hagar svo til, að flestar þjón-
ustustofnanir hreppsins eru
neðan Reykjanesbrautar, en
ibúðahverfin aö langmestu leyti
ofan hennar. Umferð gangandi
fólks, og þó sérstaklega barna, er
þvi mjög mikil, og með auknum
umferðarþunga hefur slysahætta
stóraukizt. Hreppsnefnd Njarð-
vikur hefur þvi beint þvi til vega-
málastjóra og sýslumanns Gull-
bringusýslu, að Reykjanesbraut
verði lögð niður sem aðalum-
ferðaræð gegnum Ytri-Njarðvik,
r óttast
og að umferðinni verði beint á
Bolafót, eða aðra fullnægjandi
götu ofan byggðarlagsins. Enn
fremur, aö meðan þessari skipu-
lagsbreytingu verði komið á,
verði gerðar ráðstafanir til að
draga úr aksturshraða ökutækja,
áður en þau koma i mesta þétt-
bvlið. og komið verði upp um-
ferðarljósum á gatnamótum. Þá
hvetur hreppsnefndin til að lög-
gæzla verði hert og þess gætt, að
settum reglum um hámarks-
hraða verði hlýtt, ög leggur rika
áherzlu á að engar óþarfa tafir
verði á framkvæmd þessara
mála.