Tíminn - 16.10.1975, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 16. október 1975.
TÍMINN
7
V,
IV
mm
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargöty,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500
— afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð í
lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
Sturlungaöld stéttanna
Það er mikið talað um b.ióðareiningu þessa
dagana. Allar horfur benda til, að nýtt þorska
strið hefjist á Islandsmiðum hinn 13. nóvember.
Flestir ræða fagurlega um, að þá þurfi þjóðin að
standa vel saman. Margt virðist hins vegar
benda til þess, að sú samstaða verði meiri i orði
en á borði. Þegar til alvörunnar kemur, er þvi
miður þannig ástatt i islenzka þjóðfélaginu um
þessar mundir, að stéttarhagsmunir eru settir
ofar þjóðarhagsmunum. Aðeins nokkur nýleg
sýnishorn skulu nefnd þessu til sönnunar.
Fyrst er þá að geta um mótmæli frá áhöfnum
119 fiskiskipa gegn hinu nýja fiskverði, sem felur
i sér til jafnaðar 5% hækkun. Sú hækkun er ekki
mikil en mun þó geta kostað fjárvana rikissjóð
veruleg útgjöld. út af fyrir sig, er samt ekkert við
þvi að segja, þótt sjómenn mótmæli og styrki
þannig aðstöðu sina við nýja samningsgerð, en sá
böggull fylgir hér skammrifi, að krafizt er svara
innan viku, og siðan er látið að þvi liggja, að
flotanum verði öllum stefnt til hafnar, ef ekki
verði komið jákvætt svar fyrir þann tima. Það
ástand getur þvi skapazt, að islenzki fiskiflotinn
verði allur i höfn, þegar hinn sögulegi 13. nóvem-
ber rennur upp.
Næst þessu er svo að geta þess, að samkvæmt
atkvæðagreiðslu, sem hefur farið fram hjá opin-
berum starfsmönnum, hefur meirihlutinn lýst
yfir þvi, að hann sé fylgjandi þvi, að gripið verði
til sérstakra aðgerða eftir 1. nóvember, ef ekki
hafi verið fallizt á verkfallsrétt fyrir þann tima.
Ekki er ljóst, hvað átt er við með aðgerðum eftir 1.
nóvember, en flogið hefur fyrir, að gripið verði til
skæruverkfalla. Svo getur þvi verið ástatt, þegar
13. nóvember rennur upp, að opinberir starfsmenn
séu þá i meiri eða minni skæruverkföllum.
í þriðja lagi er svo að nefna stúdentana. Þeir
hafa látið i ljós, að þeir muni gripa til sérstakra
mótmælaaðgerða, ef ekki verður falTizt á hlu'tfalls-
lega hækkun námslána frá þvi sem nú er. Aðgerð-
irnar, sem taldar eru koma til greina, eru að hætta
að sækja háskólann eða hefja setuverkfall. Ef til
vill verða þvi flestir hinna uppvaxandi mennta-
manna þjóðarinnar i setuverkfalli hinn 13.
nóvember og leggja fram sinn skerf til þorska-
striðsins á þann hátt.
Sjómenn, opinberir starfsmenn eða stúdentar
eru ekki sérstaklega nefndir hér vegna þess, að
þeir haldi fastar fram einkakröfum sinum en
aðrir. Þessar stéttir eru aðeins nefndar hér vegna
þess, að þetta eru nýjustu dæmin um þá
sturlungaöld stéttanna, sem nú geisar á íslandi.
Þar keppist nú hver stéttarhópurinn um það,
sem bezt hann getur, að ota fram sinum tota. Á
sama tima fara viðskiptakjörin siversnandi.
Hver getur talað i alvöru um þjóðareiningu undir
slikum kringumstæðum?
Söguskekkja
Undarleg söguskekkja er það, að baráttan fyrir
200 milna fiskveiðilögsögu Islands hafi byrjað
með undirskrift svokallaðra fimmtiu-menninga
sem var birt 27. júli 1973. Nær fjórum mánuðum
áður eða 5. april 1973 hafði sendinefnd Islands
lagt fram tillögu á undirbúningsfundi hafréttar-
ráðstefnunnar um 200 milna fiskveiðilögsögu.
Stefna íslands hafði þannig verið mörkuð all-
löngu áður en 50-menningarnir komu til sögu.
-Þ.Þ.
Eiríkur Tómasson skrifar fró Lundi:
Fó kommúnistar
yfir 4% atkvæða?
Það getur róðið næstu stjórn Svíþjóðar
t grein, er birtist fyrir nokkru,
var fjallað um kosningahorfur
i Sviþjóð og skýrt stuttlega frá
stöðu tveggja stærstu stjórn-
málaflokkanna i Sviþjóð,
Jafnaðarflokksins og Mið-
flokksins. t þessari grein verð-
ur leitazt við að gera grein
fyrir þeim þrem flokkum öðr-
um, er fulltrúa eiga á sænska
þinginu, þ.e. Ihaldsflokknum,
Þjóðarflokknum og
Kommúnistaflokknum.
Hægri sveifla
ihaldsmanna
Það blés ekki byrlega fyrir
Ihaldsflokknum sænska
(Moderata Samlingspartiet)
árið 1970. 1 þingkosningunum
það ár hiaut flokkurinn aðeins
rúm 11% atkvæða eða minna
fylgi en nokkru sinni. Þvi var
það, að ihaldsmenn skiptu um
flokksleiðtoga árið 1971 og
Gösta Bohman tók við valda-
taumunum.
Bohman hefur reynzt dug-
andi leiðtogi. Undir forystu
hans jók Ihaldsflokkurinn
fylgi sitt i þingkosningunum
1973 i 14,3% atkvæða og er
flokknum spáð enn meira fylgi
i komandi kosningum. Það
sem einkum hefur stuðlað að
þessari fylgisaukningu, er tal-
in vera sú hægri sveifla, sem
átt hefur sér stað hjá ihalds-
mönnum i valdatið Bohmans.
Ihaldsflokkurinn er nú ein-
drægnasti andstæðingur
Jafnaðarflokksins — og
ihaldsmenn halda þvi mjög á
lofti, að Bohman sé i raun og
veru leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar á þingi, en ekki Thor-
björn Fálldin, foringi stærsta
stjórnarandstöðuflokksins.
Ihaldsmenn og jafnaðar-
menn eru þó sammála um
eitt: Að halda áfram uppbygg-
ingu kjarnorkuvera i Sviþjóð.
Bohman hefur aftur á móti
lagt áherzlu á, að ágreiningur
Ihaldsflokksins og Miðflokks-
ins i þessu eina máli verði ekki
til þess að koma i veg fyrir
stjórnarsamvinnu flokkanna
tveggja, hljóti borgara-
flokkarnir meirihluta á þingi.
Ihaldsleiðtoginn gekk m.a.s.
svo langt i sjónvarpsviðtali
fyrir skömmu að lýsa sig
reiðubúinn til að leggja öll
áform um uppbyggingu kjarn-
orkuvera á hilluna, leiddi
visindaleg rannsókn i ljós, að
hætta stafaði af slikum orku-
verum.
Leiötogaskipti
i vændum hjá
Þjóðarflokknum
Staða Þjóðarflokksins er veik
— jafnvel enn veikari en i
þingkosningunum 1973, þegar
flokkurinn hlaut aðeins 9,3%
atkvæða. Og i beinu framhaldi
af þessu fylgishruni flokksins
— Þjóðarflokkurinn var árun-
um eftir 1960 stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn i Sviþjóð
— hefur flokksleiðtoginn
Gunnar Helén ákveðið að
draga sig í hlé.
Liklegast er talið, að Per
Ahlmark verði kjörinn for-
maður flokksins i stað Heléns.
Ahlmark er frá Stokkhólmi og
hefur setið á þingi i niu ár.
Hann er þó enn ungur að árum
og hefur getið sér gott orð fyr-
ir störf sin — innan þings sem
utan.
Stuðningsmenn Þjóðar-
flokksins vonast til þess, að
leiðtogaskiptin blási lifi i
Ilclén: Dregur sig I hié eftir
fylgishrun Þjóðarflokksins
glæðurnar, svo að flokkurinn
nái að rétta sig við eftir fallið i
siðustu kosningum. Hvort um
einbera óskhyggju er að ræða,
er ógerningur að dæma um á
þessu stigi.
Kommúnistar
,,vega salt”
Sænski Kommúnistaflokkur-
inn ( V á n s t e r p a r t i e t
kommunisterna) gengurnú til
kosninga undir forystu Lars
Werners, er fyrr á þessu ári
leysti C.H. Hermansson af
sem flokksleiðtogi. Werner er
enn sem komið er að mestu
leyti „óskrifað blað” i sænsk-
um stjórnmálum, en fyrstu
spor hans sem arftaki Her-
manssons þykja litt gæfuleg.
Sú ákvörðun Werners að
lýsa yfir stuðningi við Portú-
galska kommúnista i baráttu
þeirra við sósialista — og taka
þar með afstöðu með ólýð-
ræðislegum öflum i Portúgal
— hefur ekki fallið i góðan
jarðveg hjá sænskum kjósend-
um. Og hinum nýja leiðtoga
hefur ekki heldur tekizt að
jafna hugsjónaágreining
þann, er rikir milli forystu-
manna flokksins i norðurhluta
Sviþjóðar — þar sem flokkur-
inn stendur bezt að vigi — og
flokksleiðtoga annars staðar i
landinu.
Skoðanakannanir leiða og i
ljós, að Kommúnistaflokkur-
inn nýtur nú mun minna fylgis
meðal yngri kjósenda en áður
— kjósenda, sem geta auð-
veldlega ráðið þvi, hvort
kommúnistar eigi fulltrúa á
sænska þinginu næsta kjör-
timabil.
I Sviþjóð er i' gildi sú regla,
að þeir stjórnmálaflokkar ein-
ir, er hljóta 4% atkvæða i
þingkosningum, fái menn
kjöma á þing. I sfðustu tveim
kosningum var atkvæðahlut-
fall kommúnista rétt fyrir of-
an þetta mark, en ekki má
mikið út af bera, til að hlut-
fallið hrapi niður fyrir 4%.
Werner virðist láta sér i
léttu rúmi liggja, hvort
Kommúnistaflokkurinn komi
mönnum á þing — hann hefur
nýlega lýst þvi yfir, að stefna
flokksins eigi ekki að miðast
við það að hljóta sem mest
fylgi i kosningum. öðrum er
þó ekki eins rótt: Sú stað-
reynd, hvort kommúnistar fá
yfir 4% atkvæða, getur nefni-
lega ráðið úrslitum um það.
hvort stjórn jafnaðarmanna
sitji áfram að völdum i Svi-
þjóð eða hvort borgara-
flokkarnir myndi stjórn, að
kosningum loknum.