Tíminn - 22.10.1975, Blaðsíða 1
Landvélarhf
PRIMUS
HREYFILHITARAR
í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKÚLATUNI 6 - SÍMI (91)19460
Samstarfsncfndin, sem ræddi
til blaðamenn i gærkvöldi um
borð i togaranum Júni. Frá
vinstri: Óskar Vigfússon,
sjómaður, Gunnþór Ólafsson,
Þorbirni II, Ólafur G. Gfsia-
son, stýrim. Júni, Björn
Ingólfssoná Frey, Jóhann Sig-
urgeirsson, skipstj. Guðmund-
ur Jónsson skipstj. á Júnf, og
Sigurður Kristjánsson, skip-
stjóri á Framtíðinni KE.
FISKISKIPAFLOTINN
Á LEIÐ TIL LANDS
SKYRSLA HAFRANNSOKNA
STOFNUNARINNAR STAÐ-
FESTIR NAUÐSYN ÚT-
FÆRSLU LANDHELGINNAR
— segir Ólafur Jóhannesson
FB-Reykjavik. — Það má segja,
að skýrsla Hafrannsókna-
stofnunarinnar um veiði fisk-
stofnanna hérlensis sé i stórum
dráttum staðfesting á þvi, að ekki
mátti dragast lengur að taka
ákvörðun um útfærslu landhelg-
innar, sagði ólafur Jóhannesson
viðskiptaráðherra, þegar Timinn
spurði hann álits á skýrslunni,
sem frá var skýrt i blaðinu i gær.
— Staðreyndin um ástand fisk-
stofnanna og ofveiðina hlýtur að
verða sterkt vopn i okkar höndum
gagnvart viðmælendum okkar i
landhelgisviðræðum. Það má
segja, að skýrslan sé tviþætt.
Annars vegar er staðreyndatal,
þar sem talað er um aflamagnið,
sem fengizt hefur, og verður sá
hluti skýrslunnar tæpást véfengd-
ur. Hins vegar eru svo þær
ályktanir, sem dregnar eru af
þessum staðreyndum um það,
hversu mikið megi veiða af hverri
tegund. Ég hef ekki aðstöðu til
þess að meta þessar ályktanir, né
þær visindalegu aðferðir, sem þar
er byggt á, en komist erlendir
sérfræðingar að sömu niðurstöðu
og þeir islenzku, þá styrkir það
okkar málstað á allan hátt.
— Gagnvart okkur sjálfum er
þetta alvarleg áminning, sem
kallar á það, að við setjum hér
skynsamlegar reglur varðandi
veiði, og það sem allra fyrst.
Þá spurðum við ráðherrann,
hvort nokkuð hefði verið athugað,
Framhald á bls. 12
BH—Reykjavik. — Síðdegis I gær
lagði Samstarfsnefnd yfir- og
undirmanna á fiskiskipum fram
við Jón L. Arnalds, ráðuneytis-
stjóra i sjávarútvegsráðuneytinu
kröfur slnar varðandi verðlagn-
ingu og endurskoðun sjóðakerfa
sjávarútvegsins, og lýstu þvi
jafnframt yfir, að fiskiskipaflot-
inn myndi sigla I höfn og dvelja
þar, þangað til samkomulag hefði
náðst varðandi þessi atriði. Voru
ailmörg fiskiskip komin tii hafnar
I gærkvöldi og ijóst, að ekkert
þeirra myndi fara út fyrr en að
samkomulagi yrði, og velflest
önnur fiskiskip á leið til lands,
þannig að ekkert yrði af veiðum
eftir miðnætti I gærkvöldi. A
biaðamannafundi með sam-
starfsnefndinni um borð I
togaranum Júni I Hafnarfjarðar-
höfn I gærkvöidi var að þvi spurt,
hvort fiskiskipaflotinn væri að
safnastsaman úti fyrir Malarrifi
með það fyrir augum að sigla I
fylkingu til Reykjavikur með
morgninum. Var þvi svarað til,
að ekki væri kunnugt um slik
samtök, það væri undir hverjum
og einum komið, hvernig aðgerð-
um væri háttaö. Samstaða væri
um það eitt, aö hætta veiðum i
siðasta lagi á miðnætti og hefja
þær ekki fyrr en samkomulagiö
lægi fyrir.
A blaðamannafundinum kynnti
samstarfsnefndin kröfuatriði
sjómanna, sem eru þessi (og er
byrjað á fiskverðinu, sem krafizt
er):
„Þorskur
70cmogyfir 47.00 kr.
54cmtil70cm. 40.00 kr.
43til54cm. 20.00 kr.
Ýsa
50cmogyfir 45.00 kr.
40til50cm 19.00 kr.
Ufsi
75 cm og yfir
54 til 75 cm
undir 54 cm
Langa
75 cm og yfir
undir 75 cm
Steinbftur
Karfi
500 gr.og yfir
Keiia
54 cm og yfir
Bláianga
54 cm og yfir
undir 54 cm
27.00 kr.
23.00 kr.
14.40 kr.
34.70
22.40
26.50 kr.
22.00 kr.
22.00 kr.
23.00 kr.
14.40 kr.
Þessa verðlagningu leggur
samstarfshópur yfir- og undir-
manna á fiskiskipum fram, sem
grundvöll fyrir þvi að við getum
haldiðáfram róðrum. Ennfremur
gerum við þá kröfu að sjóðakerfi
sjávarútvegsins verði tekið til
rækilegrar yfirvegunar, og að sú
nefnd sem að þeim störfum vinn-
ur skili áliti eigi siðar en 1.
desember 1975.
Einnig gerum við þá kröfu að
þegar málið verður tekið fyrir á
þingi, að það hljóti skjóta af-
greiðslu og sjóðakerfið verði lagt
niður með öllu.”
Breytingar frá þvi verði, sem
sjómenn viðurkenna, en það var
gefið út 20. júni sl., eru þær helzt-
ar, að stærðarhlutföllum er
breytt, þau eru lækkuð á stórum
fiski en hækkuð á smáfiski, og
kvað samstarfsnefndin, sem við
blaðamenn ræddi,það vera und-
irstrikun sjómanna á þvi, að þeir
vildu alls ekki stuðla að
smáfiskadrápi eða mæla með þvi.
Fyrir máli sýnu gerði sam-
Framhald á bls. 12
EINAR AGÚSTSSON, UTANRIKISRÁÐHERRA:
Herskipahótanir
herða okkur bara
Skrifar um
svaeðismótið
FJ-Reykjavik. Bragi
Kristjánsson mun skrifa
greinar um svæðismótið i
skák, sem nú fer fram hér á
landi. Fyrsta grein Braga
birtist á bls. 5, og rekur hann
þar m.a. tapskák Friðriks
Ólafssonar úr fyrstu umferð.
Bragi Kristjánsson er
kunnur skákmaður, og hefur
hann áður skrifað skákþætti
fyrir Timann. Bragi er að-
stoðardómari á svæðismót-
inu nú.
FJ-Reykjavik. Hótanir hafa
engin áhrif á okkur, nema ef vera
skyldi að herða okkur, sagði
Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra, þegar Timinn hafði
samband við hann i gærkvöidi
vegna þeirra ummæla Haroids
Wilsons, forsætisráðhcrra Breta, i
brezka þinginu i gær, að „enginn
brezkur togari myndi fara ó-
verndaðurá tslandsmið, ef vernd
reynist nauðsynleg.”
Wilson sagði þingheimi, að
brezka rikisstjórnin væri
„staðráðin i að tryggja
sanngjarnt samkomulag við ís-
lendinga” og að slikt samkomu-
lag yrði að tryggja brezkum
togurum veiðar innan 50 milna.
En, sagði forsætisráðherran
enginn brezkur togari mun fara
án verndar, ef slik vernd reynist
nauðsynleg.
Einar Agústsson sagði, að hann
myndi að sjálfsögðu leggja
skýrslu Hafrannsóknastofnunar-
innar um islenzku fiskistofnana
fram á viðræðufundinum við
Breta á morgun.
Verðlagsstjóri
kærir meint
verðlagsbrot
vegna ókvæðis-
vinnu til
saksóknarans
......> — Sjó þingfréttir Q